Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 26

Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 26
ATVINNA 30. mars 2008 SUNNUDAGUR102 G ra fik a 20 08 Síðumúla 5 108 Reykjavík Sími 511 1225 Fax 511 1126 intellecta@intellecta.is www.intellecta.is Skipulagsstofnun heyrir undir umhverfis- ráðherra og starfar skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og einnig samkvæmt lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Skipulagsstofnun er umhverfisráðherra til aðstoðar við yfirstjórn og framkvæmd skipulags- og byggingarlaga og laga um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun veitir ráðgjöf og leiðbein- ingar og sinnir afgreiðslu skipulags-, byggingarmála og mati á umhverfisáhrifum framkvæmda. Hjá Skipulagsstofnun starfar metnaðarfullt og samhent lið sérfræðinga. www.skipulag.is Ef þú vilt... spyrjast nánar fyrir um þetta starf er þér velkomið að hafa samband við Sigrúnu H. Kristjánsdóttur hjá intellecta í síma 511 1225. Umsækjendum er jafnframt bent á að kynna sér auglýsinguna sem einnig er birt á www.starfatorg.is Umsókn... sendist til intellecta á neðangreint heimilisfang eða á sigrun@intellecta fyrir 14. apríl 2008. Umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og helstu verkefnum sem umsækjendur hafa tekist á við á undanförnum árum og sem þeir telja að koma muni að gagni í því starfi sem sótt er um. Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar og verður öllum umsóknum svarað. Umhverfissvið Leitað er að sérfræðingi í mati á umhverfisáhrifum til starfa á umhverfissviði Skipulagsstofnunar. Helstu verkefni eru: • Störf að verkefnum stofnunarinnar varðandi mat á umhverfis- áhrifum framkvæmda og umhverfismati áætlana. • Störf eftir atvikum að öðrum verkefnum sviðsins, s.s. varðandi kynningar og leiðbeiningar. • Önnur þau verkefni er sviðsstjóri kann að fela sérfræðingi umhverfissviðs Þú þarft að... • Hafa háskólapróf í umhverfisfræðum eða aðra sérmenntun sem nýtist í starfi. • Hafa starfsreynslu sem nýtist beint í starfinu (æskilegt) • Vera skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum. • Hafa gott vald á íslenskri tungu og færni til að skrifa góðan texta. • Geta unnið í samhentum hópi og sýnt lipurð í mannlegum samskiptum. Laun greiðast samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins við viðkomandi stéttarfélög svo og stofnanasamningum stofnunarinnar við þau. Sérfræðingur óskast til starfa á umhverfissvið Skipulagsstofnunar HYUNDAI RENAULT BMW LAND ROVER RENAULT TRUCKS IRISBUS ARCTIC CAT Óskum eftir bifreiðasmið eða vönum réttingarmanni. Starfi ð felur í sér réttingar á ökutækjum og umsjón með réttingum á verkstæði. Á verkstæðinu er nýr tölvuréttingar- bekkur, nýr sprautuklefi og mikið af nýjum verkfærum. Við erum rótgróið fyrirtæki sem hefur gert miklar endurbætur á aðstöðu okkar og erum enn að sækja í okkur veðrið. Góð kjör í boði fyrir réttan mann. Vinsamlega hafi ð samband í síma 5525780.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.