Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 27
ATVINNA
SUNNUDAGUR 30. mars 2008 113
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár-
málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.
landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á
Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðn-
ingu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður.
Starfsmenn - Upplýsingar
Starfsmenn óskast í hlutastarf í upplýsingar í anddyri LSH
við Hringbraut. Unnið er í vaktavinnu. Vinnutími er frá
kl. 16–21 virka daga og kl. 10–21 um helgar og helgidaga.
Unnið er í viku í senn og frí í viku.
Leitað er eftir samviskusömum einstaklingum, þægilegum í
samskiptum og með góða þjónustulund. Við hvetjum konur
jafnt sem karla til að sækja um.
Umsóknir berist fyrir 14. apríl 2008 til Pálma Þórs
Ævarssonar, öryggisstjóra, 10W Hringbraut, netfang
palmiaev@landspitali.is, sími 543 1806, 824 5230, og veitir
hann upplýsingar ásamt Elíasi Rúnari Elíassyni, verkstjóra,
sími 543 1820, 824 5239.
Störf hjá IKEA
Útstillingadeild
Einnig er laust til umsóknar starf smiðs eða handlagins
einstaklings. Starfið felst aðallega í framkvæmd á
breytingum í verslun og á starfsmannasvæðum auk
annarra tilfallandi verkefna.
Hæfniskröfur:
• Sköpunargleði og hagsýni
• Handlagni
• Þekking á efnivið og eiginleikum hans
• Þekking á réttri notkun verkfæra
• Frumkvæði
• Stundvísi
• Samskiptahæfni
Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er frá klukkan
8:00-17:00.
Innréttingadeild
Við erum að leita að fólki 22 ára og eldra sem hefur
áhuga á að starfa hjá okkur í innréttingadeild. Starfið
felst í ráðgjöf og sölu á innréttingum til viðskiptavina auk
annarra tilfallandi verkefna.
Hæfniskröfur:
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
• Samviskusemi
• Góð og rík þjónustulund
• Vönduð vinnubrögð
• Gott auga fyrir hönnun
• Góð tölvuþekking
• Þekking á Navision er kostur
Um er að ræða fullt starf þar sem viðkomandi kemur
til með að starfa virka daga frá klukkan 10:00–18:00
aðra vikuna og 12:00–20:00 hina vikuna. Aukavinna
er í samráði við yfirmann.
Umsóknum má skila á þjónustuborð IKEA eða fylla út umsókn á www.IKEA.is
Nánari upplýsingar veita Auður Gunnarsdóttir (audur@ikea.is) og Fjóla Kristín Helgadóttir (fjola@ikea.is) í síma 520-2500.
Hjá IKEA starfa rúmlega 300 manns. Starfsmenn eru á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn og af ýmsum þjóðernum. Við fögnum slíkri
breidd og viljum meina að það sé skemmtilegt að vinna hjá IKEA, þar sem allir standa saman í því að starfrækja eina vinsælustu
verslun landsins. Við ráðningu er mikið lagt upp úr þjálfun nýliða, bæði almennri sem og sértækri þjálfun.