Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 66
Þ
ótt við Íslendingar séum lítt kunnir
Vappu-hátíðarhöldunum eru þau
haldin víðs vegar um Norður-
Evrópu og í Finnlandi. Í Helsinki
sem og annars staðar hefjast þessi
skemmtilegu vorhátíðarhöldin 30. apríl. Þá er
eitt helsta stolt Helsinki – styttan Havis
Amanda, hafmeyja borgarinnar, – þvegin hátt
og lágt eftir vetrarslabbið. Þvotturinn hefst á
slaginu sex og safnast múgur og margmenni
saman á torginu til að horfa á styttuna þvegna
og um kvöldið fyllast svo veitingastaðir af
fólki sem fer út að borða.
Garðarnir teppalagðir
„Vappu er í raun stúdentahátíð í Helskini en
eftir þvottinn og kvöldskemmtunina 30. apríl
hittast Finnar morguninn eftir kl. 10 þegar
útskriftin er í almennings görðunum, með
húfurnar á hausnum og Finnarnir allir
samgleðjast með því að setja gömlu húfurnar
sínar á kollinn og mæta til leiks,“ segir Áslaug
sem gengur þennan fyrsta dag maímánaðar
um svæðið og myndar stemninguna. „Svo ef
næstu daga á eftir 1. maí ber upp á helgi geta
hátíðarhöldin dregist á langinn sem er mjög
skemmtilegt. Fólk er í marga daga að fylla
Tupperware-box af alls kyns „gourmet“ mat
og svo eru garðarnir hreinlega teppalagðir
þar sem allir mæta með pikknikk-teppið sitt
og sitja svo og gæða sér á góðgætinu og
drekka kampavín allan daginn. Sumir taka
meira að segja sófasettið með sér.“ Allan
daginn þýðir bókstaflega allan daginn því
enginn fer heim fyrr en allt er klárað sem er
ekki fyrr en þegar nálgast kvöld, um kl. 6 og
umgjörðin sjálf – garðarnir fullir af hvítum
kollum, teppum og fallegum mat í fallegum
ílátum – er ekki síður falleg en að hátíðin sé
skemmtileg.
Keyrt frá skólum á vörubílum
Í byrjun dagsins er keyrt með stúdentana
á vörubílspöllum frá skólunum þeirra í
garðana, og ég hef verið samferða einu
sinni og í för með mér var bandarísk blaða-
kona. Hún botnaði ekkert í því hvernig
drengurinn sem hún var að taka viðtal við
gat klárað úr heilli kampavínsflösku á
þessari 20 mínútna leið. Þetta er finnskt
eðalfyllerí með góðum mat þar sem fagn-
að er menntun og því að borgin er að koma
undan vetrinum.“ Undir áti og drykkju
spila lúðrasveitir hér og þar en Áslaug
segir að á þessum tíma í Helsinki sé mikil
stemning í borginni allri og margt að ger-
ast. „Borgin hefur breyst mikið frá því að
ég kom þangað fyrst fyrir um átta árum en
á þeim tíma voru í raun bara örfáir góðir
veitingastaðir í borginni. Nú er ekki þver-
fótað fyrir þeim og ég sé alltaf eitthvað
nýtt í hverri ferð. “
38 FERÐALÖG
SJARMERANDI
VORGLEÐI
Í HELSINKI
Allt frá því að Áslaug Snorradóttir upplifði sitt fyrsta „Vappu“ í
Helsinki árið 2000 hefur hún ekki getað hætt og er nú að fara út
í sjöunda skiptið til að vera vitni að þessum stórskemmtilegu há-
tíðarhöldum. Ekki síður er borgin sjálf í miklu uppáhaldi og fékk
Ferðalög leiðsögn um Helsinki á la Áslaug.
Kvöldfegurð Áslaug fer til Helsinki í byrjun maí ár hvert en þá er borgin að skríða undan vetrarfeldinum og veðrið
milt og gott.
Finnskur kraftamatur Áslaug fer ekki til Helsinki nema gæða sér á súrum gúrkum sem hægt
er að kaupa upp úr tunnum í matvöruverslunum.
Fyrsta flokks finnsk gleði Vappu-hátíðargestir sem
Áslaug rakst á við hafmeyju Helsinki-borgar.
10