Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 70
Elín Edda Angantýsdóttir, verðandi háskólanemi, fór
í afar óvenjulegt ferðalag ásamt vinkonu sinni um
Evrópu.
Elín Edda hélt til Spánar ásamt vinkonum sínu þar
sem hún ætlaði að fara í spænskunám. Áfangastaðurinn
var Torreveja sem var nú ekki alveg rétti staðurinn
að mati Elínu og vinkonu hennar.
„Þetta er kannski ekki beint staðurinn fyrir ungt
fólk en fyrir eldra fólk er þetta trúlega paradís. Við
vinkonurnar fengu fljótlega nóg af staðnum þar sem
lítið var að gerast og við ákváðum því að skella okkur
bara í interrail og gera eitthvað gott úr þessu,“
útskýrir Elín Edda.
Elín og vinkona hennar skelltu sér út á lestarstöð
og keyptu sér interrail lestarmiða og héldu af stað í
fjögurra vikna ógleymanlegt ferðalag. Gaman að
segja frá því að þessi ferð var ákveðin með aðeins
nokkra daga fyrirvara.
„Við vorum eins og litlar stelpur í sælgætisbúð og
vorum mjög ánægðar að hafa tekið þessa ákvörðun
og næstu vikurnar áttu eftir að vera stórkotlegar,“
segir Elín Edda.
Fyrsti áfangastaður þeirra var Barcelona og þaðan
fóru þær í bæinn San Sebastian nyrst á Spáni en þar
fundu þær flesta bari á ferkílómetra í heiminum.
Eftir dvölina á Spáni skelltu vinkonurnar sig í sextán
tíma lestarferð til Parísar.
Í París lentu þær í smá vandræðum þar sem þær
voru hlaðnar ferðatöskum. Frá París var skellt sér á
mikla bjórhátíð í litlum bæ í Þýskalandi. Eftir hana
tók við stutt stopp í Tékklandi og var haldið til
Danmerkur.
„Við vorum hálfsmeykar á lestarstöðinni í Prag þar
sem við þurftum að bíða lengi að kvöldlagi og voru
þar ýmsar furðulegar persónur. En þetta hafðist og
við vorum mjög fegnar þegar við komum til
Danmerkur,“ segir Elín Edda. Að síðustu héldu þær
til Hollands og Englands áður en þær fóru aftur til
Danmerkur þaðan sem þær flugu heim til Íslands.
„Þessi ferð var vel þessi virði og frábær í alla staði
þrátt fyrir óskipulag. Við spiluðum okkur bara eftir
aðstæðum og allt gekk vel,“ segir Elín Edda kímin.
mikael@frettabladid.is
42 FERÐALÖG
Það er skemmtilegt að skella sér í ævintýri með skömmum
fyrirvara. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FLAKK UM EVRÓPU
Interrail lestarmiði er frábær kostur fyrir forvitna ferðalanga
LISTIR OG
MENNING
Í PARÍS
VERÐ 87.900 KR.*
Á MANN Í TVÍBÝLI
30. APRÍL–4. MAÍ
Fararstjóri:
Laufey Helgadóttir.
Skoðaðir allir helstu
merkisstaðir í París og farið í
valinkunn söfn eins og
Monetsafnið í Giverny
og Orsay eða
Marmottan safnið.
* Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 4 nætur á Holiday Inn Republique * * * * með morgunverði, íslensk
fararstjórn og íslensk leiðsögn, skoðunarferðir og aðgangseyrir á söfn, rútuferðir til og frá flugvelli erlendis.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
17
49
3
/0
8
+ Nánari upplýsingar á
www.icelandair.is/pakkaferdir
Auglýsingasími
– Mest lesið
14
La Sagrada Familia kirkjan í Barcelona á Spáni.
Stemning í San Sebastian.
SIGLT UM FIRÐI NOREGS
Ferðaþjónusta bænda býður upp á flotta ferð 7.-13. ágúst
þar sem siglt er um firði og strandlengju Noregs, sem er
nú oft sögð fallegasta strandlengja í heimi. Bæði er siglt
og svo er farið í skoðunarferðir á landi en flogið er til
Óslóar og svo heim frá Björgvin. Fararstjórinn er norskur
en talar þó reiprennandi íslensku svo Íslendingar njóta
góðs af því.