Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 75
SUNNUDAGUR 30. mars 2008 19
30. mars - uppselt
3. april
4. april
10. april
11. april
17. april
18. april
23. april
24. april
Í dag kl. 15 býður Borghildur Óskarsdóttir, annar
höfundur myndlistarsýningarinnar sem nú stendur
yfir í Listasafni Árnesinga, gestum upp á spjall um
verk sitt og sýninguna. Þar gefst kærkomið tæki-
færi til þess að ræða við listamanninn um tilurð,
framsetningu og inntak þess sem til sýnis er.
Myndlist og manneskjur, sögur úr sveitinni.
Tveimur ólíkum listakonum, Borghildi og Sigríði
Melrós Ólafsdóttur, er teflt saman á þessari sýningu
og Hjálmar Sveinsson, hinn þekkti útvarpsmaður, er
sýningarstjóri hennar. Myndlistarkonurnar vinna
með samfélagstengt efni og verk þeirra eiga
sérstaka skírskotun til svæðisins. Við fyrstu sýn
virðast verk þeirra eiga fátt sameiginlegt enda eru
þær hvor af sinni kynslóðinni og hafa unnið með ólík
efni út frá ólíkum forsendum án þess að vita mikið
hvor af annarri. En þegar verkum þeirra er teflt
saman skapast óvæntir snertifletir og spenna.
Borghildur nam við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1959-60, Listaháskólann í Edinborg, Skot-
landi 1961-63 og síðar lauk hún einnig prófi frá
kennaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Samhliða vinnu við eigin listsköpun kenndi hún
myndlist í tíu ár, aðallega við Myndlistaskólann í
Reykjavík. Borghildur hefur einkum fengist við
þrívíð verk og efniviður hennar hefur verið af
ýmsum toga sem hæfir viðfangsefninu. Á löngum
ferli hefur hún sýnt víða innanlands og erlendis svo
sem í New York, Kanada, Þýskalandi, Póllandi og á
Norðurlöndunum. - pbb
Heimsókn í Hveragerði
Inga Jónsdóttir safnstjóri ásamt þeim stöllum og Hjálmari
sýningarstjóra.
Í dag verða tónleikar í Norræna
húsinu á vegum 15:15. Þar frum-
flytur Kristín Mjöll Jakobsdóttir
tvö verk fyrir einleiksfagott eftir
tónskáldin Önnu S. Þorvaldsdóttur
og Atla Heimi Sveinsson. Hugleið-
ingu samdi Anna S. Þorvaldsdótt-
ur sérstaklega fyrir Kristínu Mjöll
sem pantaði verkið hjá henni á síð-
asta ári. Fönsun IV eftir Atla
Heimi Sveinsson er samin 1968
fyrir tilstuðlan Sigurðar Markús-
sonar fagottleikara en það hefur
enn ekki verið flutt. Atli Heimir
endurskoðaði verkið í upphafi árs
2008 fyrir Kristínu Mjöll sem
flytur verkið í nýju útgáfunni.
Auk verka Önnu og Atla Heimis
flytur Kristín Mjöll nokkra kafla
úr Sumarsólstöðum 1991 fyrir ein-
leiksfagott eftir Jónas Tómasson.
Verkið var samið í kjölfar fagottn-
ámskeiðs sem haldið var á Ísafirði
í júní 1991. Að lokum mun Kristín
Mjöll ásamt Guðrúnu Óskardóttur
semballeikara flytja tvö íslensk
verk fyrir fagott og sembal, Úr
rímum af Rollant eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson frá 1970 og Sónötu
XII frá 1976 einnig eftir Jónas
Tómasson.
Kristín Mjöll Jakobsdóttir nam
við Tónlistarskólann í Reykjavík
og lauk Mastersprófi frá Yale
School of Music vorið 1989. Enn-
fremur stundaði hún nám við
Sweelinck Conservatorium í
Amsterdam og í Cincinnati, Ohio.
Veturinn 1991-92 starfaði Kristín
með Fílharmóníuhljómsveitinni í
Hong Kong og var búsett þar til
1998. Hún hefur síðan leikið með
Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Kammersveit Reykjavíkur,
Íslensku óperunni og ýmsum
kammerhópum. Hún hefur stofnað
Blásaraoktettinn Hnúkaþey og
Fagottkvartettinn Fagotterí.
Kristín Mjöll starfar jafnframt
við kennslu auk þess að stýra
ýmsum verkefnum í íslensku
tónlistarlífi.
Guðrún Óskarsdóttir: Að loknu
píanókennaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1986 nam
Guðrún semballeik hjá Helgu Ing-
ólfsdóttur. Framhaldsnám stund-
aði hún hjá Anneke Uittenbosch
við Sweelinck Conservatorium í
Amsterdam, hjá Jesper Böje
Christensen við Scola Cantorum í
Basel og hjá Francoise Langéllé í
París. Guðrún hefur leikið inn á
nokkra hljómdiska og komið fram
sem einleikari, meðleikari eða
sem þáttakandi í kammertónlist á
fjölmörgum tónleikum á íslandi
og víða í Evrópu. Hún hefur leikið
með Bach-sveitinni í Skálholti,
Caput-hópnum, Kammersveit
Reykjavíkur og með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Guðrún hefur
einnig unnið í Íslensku óperunni
og með Íslenska dansflokknum.
Guðrún hefur nýverið verið ráðin
sem sembalkennari við Tónlistar-
skóla Kópavogs.
Tónleikarnir hefjast kl. 15:15.
- pbb
Ný verk fyrir fagott
TÓNLIST Guðrún og Kristín Mjöll við
æfingar. MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
Í dag kl. 17 flytur
tónlistarhópurinn
Camerarctica, ásamt
Mörtu Halldórsdóttur
sópransöngkonu,
tónleika í
Hallgrímskirkju undir
yfirskriftinni „Sálmar
og tónaljóð“. Það
verður frumflutt nýtt
verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, „Allir
verði eitt“, sem samið
er við sálm í þýðingu
föður Þorkels, herra
Sigurbjörns
Einarssonar biskups.
Önnur verk á
efnisskránni eru
„Sálmar á atómöld“
eftir Elinu Gunnlaugsdóttur sem
samdi verkið fyrir Camerarctica
árið 2004 við ljóð Matthíasar
Johannessens og Klarinettukvintett
orgelleikarans og tónskáldsins Max
Regers. Kvintettinn sem er op.146
var síðasta verk Regers, samið árið
1916 og er kvintettinn oft borinn
saman við klarinettukvintetta
Mozarts og Brahms enda svipar
honum til þeirra hvað varðar form
og uppbyggingu.
Tónlistarhópurinn Camerarct ica
kemur nú í annað sinn fram á vegum
Listvinafélags Hallgrímskirkju, en
hópurinn flutti Kvartett um endalok
tímans eftir Olivier
Messiaen í Hallgríms-
kirkju á afmælisári
Listvina félagsins 2007.
Camer arctica hefur
starfað frá árinu 1992
um það leyti sem
hljóðfæra leikararnir
komu heim frá námi
við tónlistar háskóla
erlendis. Félagar hóps-
ins hafa meðal annars
leikið með Sinfóníu-
hljóm sveit Íslands,
kennt hljóðfæraleik við
tónlistarskólana á
höfuðborgarsvæðinu
og komið víða fram
sem einleikarar. Camer-
arctica hefur sér-
staklega vakið athygli og hlotið
lofsamlega dóma fyrir flutning sinn
á verkum Mozarts á árlegum
kertaljósatónleikum í kirkjum á
höfuðborgarsvæðinu og á
strengjakvartettum Shostakovitch
á tónleikum Kammermúsík-
klúbbsins í Reykjavík. Hópurinn
hefur leikið á Myrkum músík-
dögum, Listahátíð í Reykjavík,
Norrænum músíkdögum, Salis-
bury-hátíðinni í Bretlandi og gefið
út geisladisk með verkum eftir W.
A. Mozart. Camerarctica var
Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar
árið 2005. - pbb
Allir verði eitt
TÓNLIST Nýtt verk eftir
Þorkel er flutt í dag í
Hallgrímskirkju.