Fréttablaðið - 30.03.2008, Síða 82
26 30. mars 2008 SUNNUDAGUR
SENDU SMS BTC SPV
Á NÚMERIÐ 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, DVD myndir,
varningur tengdur myndinni og margt fleira!
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Enska Úrvalsdeildin
BIRMINGHAM-MAN. CITY 3-1
1-0 Mauro Zárate (39.), 2-0 Mauro Zárate
(54.), 2-1 Elano (58.), 2-1 Elano (59.), 3-1 Gary
McSheffrey (76.).
BOLTON-ARSENAL 2-3
1-0 Matthew Taylor (14.), 2-0 Matthew Taylor
(43.), 2-1 William Gallas (63.), 2-2 Robin van
Persie (68.), sjálfsmark (90.)
DERBY-FULHAM 2-2
1-0 Emanuel Villa (10.), 1-1 Diomansy Kamará
(24.), 1-2 Hameur Bouazza (79.), 2-2 Emanuel
Villa (80.).
MAN. UNITED-ASTON VILLA 4-0
1-0 Cristiano Ronaldo (17.), 2-0 Carlos Tevez
(33.), 3-0 Wayne Rooney (53.), 4-0 Wayne
Rooney (70.).
PORTSMOUTH-WIGAN 2-0
1-0 Jermain Defoe (32.), 2-0 Jermain Defoe
(95.).
SUNDERLAND-WEST HAM 2-1
0-1 Fredrik Ljungberg (18.), 1-1 Kenwyne Jones
(29.), 2-1 (90.)
STAÐAN:
Man. United 32 24 4 4 68-15 76
Arsenal 32 20 10 2 62-26 70
Chelsea 31 20 8 3 55-23 68
Liverpool 31 16 11 4 55-24 59
Everton 31 17 6 8 48-26 57
Portsmouth 32 15 8 9 46-33 53
Blackburn 32 13 11 8 42-38 50
Aston Villa 32 13 10 9 52-44 49
Man.City 32 13 10 9 37-37 49
West Ham 32 12 8 12 35-39 44
Tottenham 31 10 9 12 60-51 39
Middlesbrough 31 8 10 13 28-44 34
Sunderland 32 9 6 17 29-49 33
Reading 32 9 5 18 37-58 32
Newcastle 31 8 8 15 33-57 32
Wigan 32 8 7 17 28-47 31
Birmingham 32 7 9 16 38-49 30
Bolton 32 6 8 18 30-48 26
Fulham 32 4 12 16 29-53 24
Derby 32 1 8 23 16-67 11
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Arsenal vann mikinn kar-
aktersigur á Bolton, 3-2, í ensku
úrvalsdeildinni í gær og er því enn
með í baráttunni um enska titilinn
en baráttan er búin hjá Derby sem
varð fyrsta félagið í sögunni til
þess að falla í marsmánuði.
Arsenal hafði ekki unnið í síð-
ustu sex leikjum og útlitið var
ekki bjart í hálfleik því liðið var
þá komið 0-2 undir og var þegar
búið að spila manni færra í 14 mín-
útur. Grétar Rafn Steinsson kom
mikið við sögu í leik Bolton og
Arsenal á Reebok-vellinum en
hann lagði upp fyrsta mark liðsins
og Abou Diaby var síðan rekinn
útaf með rautt spjald eftir mjög
ljóta tæklingu á Grétari. Arsenal
skoraði hinsvegar þrjú mörk í
seinni hálfleik og sigurmarkið var
sjálfsmark hjá Jlloyd Samuel.
Diaby fékk rautt spjald fyrir að
tækla Grétar Rafn ekkert ósvipað
og þegar Martin Taylor batt enda
á leiktíðina hjá Eduardo. Sem
betur fer náði Grétar að hoppa
upp og forðast það að Diaby tækl-
aði fótinn á meðan hann stóð á
jörðinni. „Það var ekki ásetningur
í þessu hjá honum en hann var
með löppina of ofarlega þannig að
við getum ekki mótmælt rauða
spjaldinu. Mér finnst ekki hægt að
bera þessar tæklingar saman því
tækling Taylor var mikið hærri,”
sagði Arsene Wenger, stjóri Ars-
enal, en það var miklu frekar
heppni sem forðaði Grétari frá því
að stórslasast.
„Við erum allir reiðir okkur
sjálfum því við frömdum hreinlega
sjálfsmorð inni á vellinum. Liðið
féll algjörlega saman eftir 64 mín-
útur. Við gáfum þeim fyrsta mark-
ið og fórum síðan á taugum í lokin,”
sagði Gary Megson, stjóri Bolton.
„Ég er mjög stoltur af frammi-
stöðu míns liðs. Við spiluðum ekki
illa í fyrri hálfleik en það var allt á
móti okkur. Þeir skora úr fyrsta
skoti sínu, við missum mann af
velli og þeir skora síðan rétt fyrir
hálfleik,” sagði Arsene Wenger.
„Við gáfumst ekki upp og það var
mikið andlegt próf að vera manni
og marki undir þegar klukkutími
var eftir af leiknum. Við gáfum
allt í það að vinna leikinn því jafn-
tefli var ekki nóg, aðeins þrjú stig
voru ásættanleg,” bætti Wenger
við.
Jermain Defoe skoraði tvö
mörk í 2-0 sigri Portsmouth á
Wigan og hefur nú skorað átta
mörk í fyrstu sjö leikjum sínum
með liðinu. Hermann Hreiðars-
son var í byrjunarliði Port-
smouth en þurfti að yfirgefa
völlinn á 63. mínútu líklega
vegna sömu meiðsla og sáu til
þess að hann gat ekki spilað
landsleikinn á móti Slóvakíu.
Portsmouth er því enn í baráttu
um Evrópusæti.
Harry Redknapp var sérstak-
lega ánægður með David James
sem varði oft vel frá leikmönn-
um Wigan. „Þú verður að hafa
toppmarkmann til þess að gera
eitthvað og hann er sá besti í
dag. Fyrir mér þá er hann Ron-
aldo markvarðanna af því að
hann gerir alltaf eitthvað sér-
stakt,” sagði Redknapp eftir
leik.
Andy Reid tryggði Sunderland
2-1 sigur á West Ham með því að
skora sigurmarkið á fimmtu
mínútu í uppbótartíma. útlitið er
því gott fyrir Roy Keane og læri-
sveina hans með að halda sér
upp í deildinni.
„Ég var mjög ánægður með að
fá markið í lokin og mér fannst
við eiga sigurinn skilinn,” sagði
Roy Keane, stjóri Sunderland
eftir leikinn.
Derby er fallið eftir aðeins 32
leiki en liðið hefur aðeins unnið
einn leik og bara skorað 16 mörk.
Það var ekki nóg að ná 2-2 jafn-
tefli á móti Fulham.
„Þetta er búið að vera langt og
hræðilegt tímabil. Þar sem við
erum fallnir þá getum við farið
að hugsa um næsta tímabili.
Þetta er frábær klúbbur og með
rétta leikmenn og rétt hugarfar
þá getum við komið aftur upp,”
sagði Paul Jewell, stjóri Derby.
Derby þarf að ná fimm stig út úr
síðustu sex leikjunum til þess að
sleppa við það að ná versta
árangrinum í sögu ensku úrvals-
deildarinnar. ooj@frettabladid.is
Grétar slapp úr svakalegri tæklingu
Bolton tapaði á heimavelli fyrir Arsenal þrátt fyrir að komast 2-0 yfir og vera manni fleira í 59 mínútur.
Grétar Rafn Steinsson komið mikið við sögu í leiknum. Derby féll úr deildinni eftir jafntefli við Fulham.
DÝRMÆTT Cesc Fabregas átti stóran þátt
í sigurmarki Arsenal sem heldur titilvon-
um Lundúnaliðsins lifandi.
NORDICPHOTOS/GETTY
ROSALEG TÆKLING Abou Diaby sést hér tækla Grétar
Rafn Steinsson í leiknum í gær og eins og sjá má þá
mátti ekki miklu muna að illa færi fyrir okkar manni.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Manchester United er á
mikilli siglingu þessa dagana enda
með portúgalska snillinginn
Cristiano Ronaldo í sínu liði.
Ronaldo skoraði fyrsta markið, í
4-0 sigri á Aston Villa í gær, með
óvæntri en stórglæsilegri hæl-
spyrnu og lagði síðan upp sitthvort
markið fyrir félaga sína í United-
sókninni; Carlos Tevez og Wayne
Rooney. Áður en Rooney fékk þá
stoðsendingu hafði hann sloppið í
gegn og skorað sitt fimmtugasta
mark fyrir félagið. United hefur
þar með sex stiga forskot á
Arsenal. United-liðið hefur nú
unnið sex deildarleiki í röð
„Mínir menn náði toppnum í síð-
ustu viku og héldu sér þar í þessum
leik. Okkur finnst við ekki vera
komnir nærri titlinum en það fylg-
ir því mikið sjálfstraust hvernig
liðið er að spila og það er frábært
að geta gert það á þessum tíma
ársins. Það er bara kapphlaup
framundan og þá er mikilvægt að
ná upp stöðugleika og góðri ein-
beitingu. Þetta var ein besta
frammistaðan hjá liðinu á tímabil-
inu,” sagði Sir Alex Ferguson eftir
leikinn.
Wayne Rooney var ekki búinn
að skora í síðustu sex leikjum en
setti tvö í gær. „Ef ég segi alveg
eins og er þá hélt ég að hann myndi
aldrei skora. En hann er svona
framherji sem getur hrokkið í
gang og skorað í sex til sjö leikjum
í röð,” sagði Ferguson.
„Það hefur verið pirrandi að ná
ekki að skora undanfarnar vikur
og ég fékk líka gott færi áður en
ég skoraði í dag. Það var því mjög
ánægjulegt að skora þessi tvö
mörk. Við komust nær titlinum
með hverjum leik en við verðum
að halda áfram að spila á okkar
styrk og vona að það dugi,” sagði
Rooney eftir leikinn.
Fyrsta markið í leiknum var
snilldarlega útfærð hælspyrna
frá Ronaldo úr miðjum teig en
þetta var 35. markið sem hann
skorar á tímabilinu. „Ég áttaði
mig ekki á því hvað hann hafði
gert fyrr en ég sá endursýning-
una. Þetta var stórbrotin
afgreiðsla,” sagði Sir Alex um
markið hans Ronaldo.
„Við eigum eftir sex leiki þar af
fjóra þeirra á útivelli. En við
erum að spila vel og erum búnir
að laga markatöluna þannig að
þetta lítur ágætlega út,” sagði
Ferguson að lokum. - óój
Manchester United er komið með sex stiga forskot eftir 4-0 sigur á Aston Villa:
Sýning Ronaldo heldur áfram
AUÐVELT Cristiano Ronaldo skoraði einstakt mark og fagnaði því á sérstakan hátt.
NORDICPHOTOS/GETTY