Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Sundkonan Erla Dögg Haraldsdóttir, sem náði
ólympíulágmarkinu í tveimur greinum á Meist-
aramóti Íslands í sundi, þarf á stórum fataskáp
að halda. Hún er veik fyrir fötum og þá sérstak-
lega gallabuxum.
Þrátt fyrir að
ég féll strax fyrir enda eru þær ólíkar þeim sem ég á
fyrir,“ segir Erla Dögg.Buxurnar, sem eru með snúnum saumum og
tvöföldum rassvösum, eru þröngar að neðan og notar
hún þær annað hvort við stígvél eða opna skó
Erla, sem sigraði sexf l ás di
Öðruvísi gallabuxur
Erla Dögg á gallabuxur í stöflum en þessar, sem eru drappplitaðar, með snúnum saumum og tvöföldum rassvösum, eru ólíkar þeim sem hún á fyrir.
DRESSAÐIR UPPFeðgarnir Björn Ingi Hilmarsson og Arnmundur Ernst Backman fóru nýlega í búðir og völdu föt hvor á annan.
TÍSKA 4
NÁTTÚRAN.ISListakonan Guðrún Tryggvadóttir heldur úti vefsíðu þar sem hún fjallar um náttúruvernd í sem víðustum skilningi.
HEILSA 6
M
YN
D
/E
LL
ER
T
G
RÉ
TA
RS
SO
N
suðurlandFIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008
Hótel Laki
Ný heilsulind í haustBLS. 4
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18–49 ára
skv. könnun Capacent 1. nóv. 2007–31. jan. 2008
Við stöndum upp úr
41,96%
35,99%
68,90%
Fréttablaðið er með 64,20% meiri lestur
en 24 stundir og 91,44% meiri lestur
en Morgunblaðið.
Fréttablaðið
24 stundir
M
orgunblaðið
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
10. apríl 2008 — 97. tölublað — 8. árgangur
Byggja mest
á útflutningi
Sjötíu ár frá
stofnun Lýsis hf.
TÍMAMÓT 34
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum eina
slysadeildin á Reykjavíkursvæð-
inu þannig að við þurfum bara að
fylla í skörðin, við getum ekki
minnkað við okkur,“ segir Ófeigur
Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa-
og bráðasviði Landspítalans.
Yfirlæknar á slysadeild hafa
undanfarið þurft að taka vaktir
deildarlækna vegna manneklu.
Dæmi eru einnig um að yfirlækn-
ar hafi farið í útköll með neyðar-
bíl, sem aðrir læknar sinntu áður.
Landspítalinn lagði niður fasta
læknavakt á neyðarbíl spítalans í
upphafi árs og fara læknar nú ein-
göngu með bílnum þegar það er
talið nauðsynlegt. Nokkrir ung-
læknar á slysadeild sögðu upp
störfum vegna óánægju með
ákvörðunina.
Ófeigur segir að lækna vanti nú
í þrjú stöðugildi á slysadeild. Ólík-
legt sé að hægt verði að ráða í
störfin fyrr en í haust. Þangað til
þurfi aðrir læknar að bæta á sig
vöktum, umfram fulla vinnu.
„Læknar liggja vanalega ekki á
lausu með litlum fyrirvara, menn
eru oftast búnir að skipuleggja sig
fram í tímann,“ segir Bjarni Þór
Eyvindsson, læknir á slysadeild.
„Það er ljóst að það verður mönn-
unarvandamál þarna fram á haust,
nema eitthvað nýtt komi til.“
Bjarni segir að suma daga hafi
ekki fengist neinn tiltækur læknir
í neyðarbílinn. „Þegar vantar
svona marga lækna á slysadeild-
ina verður álagið meira á þá sem
eftir sitja. Síðan um áramótin
hefur verið skortur á deildarlækn-
um og það hefur orðið til þess að
læknar þurfa að taka fleiri vaktir
og færri eru til að sinna þeim
verkefnum sem þarf að sinna,“
segir Bjarni.
steindor@frettabladid.is
Yfirlæknar í neyðar-
bíl vegna manneklu
Yfirlæknar á slysa- og bráðasviði Landspítalans taka sjálfir vaktir deildarlækna
vegna manneklu í kjölfar uppsagna. Dæmi eru um að yfirlæknar hafi farið í
útköll með neyðarbíl. Ólíklegt að nýir læknar fáist í stöðurnar fyrr en í haust.
23 ára ritstjóri
Atli Fannar
Bjarkason
tekur við
ritstjórn
Mónitors.
FÓLK 46
Syngur með Bubba
Björn Jörundur og Bubbi Morthens
syngja saman í fyrsta sinn.
FÓLK 58
BJARTAST VIÐ FAXAFLÓA Í dag
verða NA 5-10 m/s víðast hvar. Él
á Vestfjörðum, stöku él norðan til
og austan og hætt við lítilsháttar
vætu allra syðst. Bjart með köflum
suðvestan og vestan til. Frostlaust.
VEÐUR 4
3
1
4
1
1
ERLA DÖGG HARALDSDÓTTIR
Öðruvísi
gallabuxur
tíska heimili heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
SUÐURLAND
Hekla, heilsa og
guðdómleg kyrrð
Sérblað um Suðurland
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
LÖGREGLUMÁL Margir starfsmenn
lögreglustjórans á Suðurnesjum
telja Harald Johannessen
ríkislögreglustjóra standa að
baki breytingunum á löggæslu-
störfum á Suðurnesjum sem
dómsmálaráðherra hefur boðað,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Margir heimildarmenn
Fréttablaðsins telja að samskipti
embættis lögreglustjórans á
Suðurnesjum og ríkislögreglu-
stjóra hafi lengi verið stirð og
það geri deiluna um breytingarn-
ar enn erfiðari að leysa.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að embætti ríkislög-
reglustjóra hafi oftar en einu
sinni gagnrýnt embætti lögreglu-
stjóra á Suðurnesjum og hafi
meðal annars einu sinni látið
gera óformlega rannsókn vegna
gruns um upplýsingaleka.
- mh / sjá síðu 16
Löggæsla á Suðurnesjum:
Segja embætti
hafa deilt hart
Á VETTVANGI Menn úr slökkviliði höfuðborgarsvæðisins rýmdu Turninn og börðust við að slökkva eldinn þegar ljósmyndara
Fréttablaðsins bar að garði. Rýma þurfti Turninn en fólk var á 12. og 19. hæð hans þegar eldurinn kviknaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN Til ryskinga kom milli stuðningsmanna
Kína og stuðningsmanna Tíbets þegar ólympíueldur-
inn kom til San Francisco í gær. Þúsundir manna
höfðu safnast saman meðfram leiðinni þar sem
hlaupa átti með kyndilinn.
Hlaupararnir þurftu að kljást við fleiri hópa en þá
sem styðja málstað Tíbeta, því á staðinn voru
mættir hópar sem notuðu tækifærið til ýmiss konar
mótmæla. Þar á meðal voru nektarsinnar sem vilja
að ólympíuleikarnir verði haldnir án fata eins og
tíðkaðist í Grikklandi til forna.
Ólympíueldurinn var fluttur frá París til San
Franscico með óvenju mikilli leynd. Flugvélin, sem
flutti logann, lenti í skjóli nætur og öryggisgæslan
minnti helst á það sem þekkist þegar þjóðarleiðtogar
koma í heimsókn.
Hvarvetna þar sem eldurinn hefur komið hafa
mótmælendur mætt á svæðið og látið á sér bera, allt
frá því kveikt var á kyndlinum í Grikklandi 25. mars
síðastliðinn.
Í París þurfti að slökkva nokkrum sinnum á
kyndlinum á mánudaginn og hluta af leiðinni var
hann fluttur í bifreið. Daginn áður átti lögreglan í
London fullt í fangi með að halda mótmælendum í
skefjum. - gb
Ólympíueldurinn fluttur í skjóli nætur til San Francisco:
Ryskingar fylgdu ólympíukyndlinum
Man. Utd og
Barcelona
mætast
Man. Utd og
Barcelona
komust í undan-
úrslit Meistara-
deildarinnar í
gær.
ÍÞRÓTTIR 52
VEÐRIÐ Í DAG
HÖRÐ MÓTMÆLI Lögreglan fylgdist með mótmælendum í
San Francisco í gær þegar hlaupið var með ólympíueldinn um
borgina. Kyndilsins var vandlega gætt enda hafa verið gerðar
þó nokkrar tilraunir til að slökkva á honum síðustu daga.
NORDICPHOTOS/AFP
ELDSVOÐI Mikill viðbúnaður var í
gærkvöldi hjá slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins þegar reyk
lagði frá hliðarbyggingu Turnsins
á Smáratorgi í Kópavogi.
Að sögn varðstjóra hjá
slökkviliðinu var Turninn rýmdur
en fólk var bæði á veitingastaðn-
um á 19. hæð turnins sem og í
líkamsræktarstöðinni World
Class sem er á 12. hæð.
Reykkafarar fundu upptök
eldsins á annarri hæð, fyrir ofan
leikfangaverslunina Toys´R´Us,
þegar klukkan var níu mínútur
gengin í ellefu og hófust handa
við að ráða niðurlögum hans. Svo
virtist sem kviknað hefði í
brettum og spýtnadrasli.
Þannig var staðan þegar Frétta-
blaðið fór í prentun. Ekki var
unnt að segja til um upptök
eldsins á því stigi. - gar
Viðbúnaður á Smáratorgi:
Rýmdu Turninn
vegna eldsvoða í
viðbyggingu