Fréttablaðið - 10.04.2008, Page 10
10 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI Afnema á annars vegar lög
um ríkisábyrgð á láni Íslenskrar
erfðagreiningar frá 2002 og hins
vegar lög um miðlægan gagna-
grunn á heilbrigðissviði frá 1998.
Hvorug lögin hafa komið til fram-
kvæmda.
Þetta er skoðun Þuríðar Back-
man, þingmanns Vinstri hreyfing-
arinnar – græns framboðs. Hún
hefur sent heilbrigðis- og fjár-
málaráðherrum fyrirspurnir
vegna málanna.
Þuríður tekur fram að í þessu
felist engin afstaða til fyrirtækis-
ins en hún telji óþarfa og ábyrgð-
arleysi að lögin séu virk þar sem
þau hafi ekki verið notuð og ekki
sé útlit fyrir að svo verði.
Hún tekur jafnframt fram að
viljinn til afnáms laganna sé háður
því að fyrirtækið eigi ekki skaða-
bótakröfur á hendur ríkinu.
Þuríður er enn fremur andvíg
sölu Íslenskrar erfðagreiningar á
erfðamengi einstaklinga og innir
heilbrigðisráðherra svara um
hana. „Ég held að við séum komin
á vafasama slóð hvað varðar vænt-
ingar fólks. Þegar selt er aðgengi
að erfðamengi með tilliti til hugs-
anlegra sjúkdóma getur það skap-
að meiri ótta og óróa og fólk getur
búið við ímyndaðar eða óraunhæf-
ar væntingar. Við getum hugsað
okkur að konur láti fjarlægja
brjóst af því þær halda að þær
muni fá brjóstakrabbamein,“ segir
Þuríður sem óttast líka að trygg-
ingafélög ásælist upplýsingarnar.
- bþs
Þuríður Backman VG vill afnám tvennra laga er snúa að Íslenskri erfðagreiningu:
Ríkisábyrgðin verði afnumin
ÞURÍÐUR BACKMAN Hún vill afnema lög
um ríkisábyrgð á láni Íslenskrar erfða-
greiningar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÉLAGSMÁL Málefni innflytjenda á
Suðurlandi verða rædd á málþingi
Velferðarmálanefndar Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga og
Menningarráðs Suðurlands í
Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn á
föstudaginn.
Fjölmörg erindi verða flutt á
málþinginu og má þar nefna erindi
Bryndísar Friðgeirsdóttur um
aðkomu almennings að málefnum
innflytjenda. Sr. Baldur Kristjáns-
son, sóknarprestur mun og leita
svara við hvort Íslendingar þurfi
að endurskoða afstöðu sína til
innflytjenda. Þá munu stofnanir
kynna upplýsingar af ýmsu tagi á
upplýsingatorgi. - ovd
Málþing í ráðhúsi Ölfuss:
Ræða málefni
innflytjenda
MAKINDALEGAR PÖNDUR Pandabirn-
ir fá sér lúr á verndarsvæði þeirra í
Wolong í Setsúan-héraði í Suðvestur-
Kína. Átta birnir af verndarsvæðinu
verða fluttir í dýragarðinn í Peking
til að gleðja gesti Ólympíuleikanna í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
05
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Fagleg og persónuleg
þjónusta
Sjúkraliði RV, Jóhanna Runólfsdóttir, leiðbeinir skjólstæðingum TR,
einstaklingum með þvagleka og aðstandendum þeirra og veitir
ráðgjöf varðandi hjúkrunarvörur.
Sími: 520 6673
johanna@rv.is
www.rv.is
1Ýmis úrræði
og ráðgjöf
vegna þvagl
eka
Við höfum gefið út vandaðan TENA bækling- um úrræði og ráðgjöf vegna þvagleka. Hafðu samband og við sendum þér eintak.
Sparakstur með Volkswagen
18
Horfðu fram
á veginn!
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
Das Auto.
Þegar bíl er ekið með sparakstur í huga er mikilvægt að horfa ávallt vel fram á
veginn. Taktu eftir öllum ljósum, beygjum og gatnamótum tímanlega til að þú þurfir
ekki að hemla. Notaðu heldur hreyfiorku bílsins til að knýja hann sem lengst.
Volkswagen hjálpar þér að fara betur með eldsneytið. Fylgstu með
átakinu okkar og lærðu fleiri aðferðir til að spara í akstri.
KJARAMÁL Kennarar eru með mun
lægri laun en háskólamenntaðir
félagar í Bandalagi háskólamanna
(BHM). Þetta kemur fram í nýrri
könnun sem Capacent vann fyrir
Kennarasamband Íslands (KÍ) og
kynnt var á fjórða þingi þess sem
sett var í gær. Félagar í KÍ eru
með ríflega 85 þúsund lægri
heildarlaun á mánuði að meðal-
tali.
Meðaltal grunnlauna félaga í
KÍ er 280.135 krónur samkvæmt
könnuninni, en 343.390 hjá félög-
um í BHM. Munurinn eykst enn
þegar kemur að heildarlaunum
sem eru 334.991 að meðaltali hjá
félögum KÍ og 420.327 hjá félög-
um BHM.
Elna Katrín Jónsdóttir, vara-
formaður KÍ, segir könnunina
staðfesta það sem kennarar hafi
lengi vitað. Vonandi átti fleiri sig
á ástandinu með tilkomu skýrsl-
unnar. „Það er ljóst að kennarar
eru komnir langt aftur úr saman-
burðarhópum, jafnvel hjá hinu
opinbera. Síðan hafa opinberir
starfsmenn dregist aftur úr
öðrum,“ segir Elna Katrín.
Framhaldsskólakennarar hafa
hæstu launin af félögum KÍ, þeir
eru með tæplega 295 þúsund
króna grunnlaun að meðaltali.
Grunnskólakennarar hafa lægstu
launin, eða tæplega 242 þúsund
krónur. Það sama er upp á ten-
ingnum þegar kemur að heildar-
launum. Framhaldsskólakennar-
ar eru hæstir með 406 þúsund
krónur að meðaltali og grunn-
skólakennarar tæplega 289 þús-
und krónur í heildarlaun að með-
altali.
Óánægja með laun er mest hjá
grunnskólakennurum. Þeir telja
að heildarlaun sín þurfi að hækka
um 46 prósent til að verða sann-
gjörn, en framhaldsskólakennar-
ar telja sín laun þurfa að hækka
um 24 prósent.
Á bak við þessi heildarlaun
liggur mismunandi fjöldi vinnu-
stunda. Framhaldsskólakennarar
vinna flestar stundir, eða 52,2, en
leikskólakennarar fæstar, 42,7.
Athygli vekur að grunnskóla-
kennarar vinna fleiri stundir en
bæði tónlistar- og leikskólakenn-
arar, en hafa lægri laun.
Launamunur kynja er ríflega
18 prósent, konum í óhag. Í niður-
stöðum er kynbundinn launamun-
ur þó ekki sagður nema fimm pró-
sent, en þá hefur verið tekið tillit
til ýmissa breytna, svo sem vinnu-
tíma, fjölda greiddra yfirvinnu-
tíma og aldurs.
Elna Katrín segir að skýrslan
verði innlegg í kjarabaráttu kenn-
ara. kolbeinn@fréttabladid.is
Grunnskóla-
kennarar með
lægstu launin
Félagar Kennarafélags Íslands eru með ríflega 85
þúsund krónum lægri heildarlaun á mánuði en fé-
lagar í Bandalagi háskólamanna. Grunnskólakenn-
arar telja laun sín þurfa að hækka um 46 prósent.
LAUN KENNARA 2008
Grunnlaun kennara
Framhaldsskólakennarar 294.808
Tónlistarskólakennarar 291.772
Leikskólakennarar 261.854
Grunnskólakennarar 242.349
Vinnustundir á viku
Framhaldsskólakennarar 52,2
Grunnskólakennarar 46,4
Tónlistarkennarar 44,4
Leikskólakennarar 42,7
Kennarar heildarlaun
Framhaldsskólakennarar 405.967
Tónlistarkennarar 331.064
Leikskólakennarar 297.237
Grunnskólakennarar 285.921
HEIMILD: CAPACENT GALLUP
KENNARAR ÞINGA Kennaraþing stendur yfir og þar þinga kennarar um málefni sín,
meðal annars laun, en mikil óánægja er í þeirra röðum með þau. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON