Fréttablaðið - 10.04.2008, Síða 14
14 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
LAGADEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
Við lagadeild HR er í boði metnaðarfullt og nútímalegt laganám, sem miðar að því að
útskrifaðir nemendur verði framúrskarandi lögfræðingar og í fremstu röð á sínu sviði.
Hlutverk lagadeildar HR er að skapa og miðla þekkingu í umhverfi sem hvetur til
frumkvæðis, gagnrýninnar hugsunar og vísindalegra vinnubragða og auka þannig
lífsgæði og samkeppnishæfni í samfélaginu.
Lagadeild HR er brautryðjandi í nútímavæðingu laganáms hér á landi, hvort sem litið
er til skipulags námsins, kennsluaðferða eða þeirra miklu krafna sem gerðar eru til
nemenda á öllum námsstigum.
Grunnnámið tekur 3 ár og að því loknu gefst nemendum kostur á 2ja ára framhalds-
námi til meistaraprófs í lögfræði.
Kynntu þér spennandi og krefjandi laganám við Háskólann í Reykjavík á vef lagadeildar,
www.lagadeild.is.
ARMENÍA, AP Serzh Sarkisian sór í
gær embættiseið sem forseti
Armeníu. Hann er þriðji maðurinn
til að gegna
embættinu frá því
landið hlaut
sjálfstæði er
Sovétríkin
leystust upp fyrir
rúmum 16 árum.
Nærri tveir
mánuðir eru nú
frá forsetakosn-
ingunum, sem
vestrænir
eftirlitsmenn úrskurðuðu að hefðu
að mestu farið vel fram en gerðu
þó nokkrar alvarlegar athugasemd-
ir við.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
sökuðu stjórnarliða um kosninga-
svik í þágu forsætisráðherrans
Sarkisians. - aa
Stjórnmál í Armeníu:
Nýr forseti sver
embættiseið
SERZH
SARKISIAN.
UTANRÍKISMÁL
Endurskoða þarf
starfsemi utan-
ríkisráðuneytis-
ins í heild vegna
breyttra tíma, að
því er fram
kemur í greinar-
gerð Sigurbjarg-
ar Sigurgeirsdótt-
ur,
stjórnsýsluráð-
gjafa um skipulag þróunarsam-
vinnu Íslands.
Í greinargerðinni leggur Sigur-
björg fram ýmsar tillögur, þar á
meðal að Ísland gerist aðili að
DAC, þróunarsamvinnunefnd
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar OECD.
Þá verði sett á fót nýtt svið
innan utanríkisráðuneytisins, þró-
unarsamvinnusvið, þó að Þróunar-
samvinnustofnun Íslands starfi
áfram sem sérstök stofnun. Sigur-
björg leggst gegn hugmyndum
þess efnis að fella stofnunina
undir ráðuneytið.
Í greinargerðinni kemur fram
að utanríkisráðuneytið kanni nú
hagkvæmni þess að Ísland gerist
aðili að Þróunarbanka Afríku.
Bankinn sé ein helsta þróunar-
stofnun Afríku og geti einnig skap-
að ný tækifæri fyrir íslensk fyrir-
tæki. Ísland er eina norræna ríkið
sem ekki er aðili að bankanum.
Frumvarp um alþjóðlega þróun-
arsamvinnu Íslands liggur nú
fyrir á Alþingi. - sgj
Tillögur um skipulag þróunarsamvinnu á Íslandi:
Nýir tímar kalla á
endurmat starfsins
SIGURBJÖRG
SIGURGEIRS-
DÓTTIR.
STÓR STUBBUR Á TRAFALGARTORGI
Risastórri eftirlíkingu af sígarettustubbi
var komið fyrir á Trafalgartorgi í Lond-
on til að vekja athygli á þeim óhrein-
indum sem stafa af því að reykingafólk
hendir stubbum sínum á almannafæri.
NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Einar K. Guðfinnsson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, fjallaði um
sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og
mikilvægi verðmætasköpunar á grundvelli
hennar á alþjóðlegri ráðstefnu í Færeyjum um
áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar í
Norður-Atlantshafi og þann vanda sem þær
skapa fyrir lönd á svæðinu.
Ráðherra greindi frá hvernig skynsamleg,
hófsöm og ábyrg nýting sjávarauðlindarinnar
ásamt fullum yfirráðum yfir 200 mílna
efnahagslögsögu hafi skipt algjörum sköpum
fyrir íslenskt samfélag. Sjávarútvegurinn hafi
verið og sé burðarás efnahagslífsins. Því sé
óhjákvæmilegt að hann lúti lögmálum
markaðarins og hvorki geti né eigi að þiggja
ríkisframlög, ólíkt því sem gerist í mörgum
samkeppnislöndum Íslendinga.
Einar sagði í ræðu sinni að ekki sé hægt að
útiloka að hlýnun sjávar undanfarin ár hafi
haft áhrif á þorskstofninn við Ísland og einnig
verði að huga vel að ýmsum öðrum þáttum
svo sem áhrifum af vexti og viðgangi hvala-
stofna. „Það er til dæmis alveg ljóst að vöxtur
hvalastofna hér við N-Atlantshaf hefur haft
neikvæð áhrif á stærð ýmissa fiskistofna og
hvalurinn er í beinni samkeppni við manninn
þegar kemur að nýtingu fiskistofnanna. Þess
vegna teljum við nýtingu hvala vera óhjá-
kvæmilegan þátt í því að nýta auðlindir
hafsins með sem bestum og skynsamlegustum
hætti.“
Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkj-
anna og Nóbelsverðlaunahafi, flutti aðalerindi
ráðstefnunnar.
- shá
Sjávarútvegsráðherra fjallaði um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda í Færeyjum:
Möguleg áhrif hlýnunar á fiskistofna
FRÁ FÆREYJUM Einar K. Guðfinnsson og Al Gore
ræddu um umhverfismál í Færeyjum og á leiðinni til
Íslands, enda voru þeir samferða.
MYND/SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
UMFERÐARMÁL Vegagerðin hyggst
á allra næstu dögum aðskilja akst-
urstefnur á framkvæmdasvæði á
Reykjanesbrautinni með föstum
rauðum og hvítum gátskiltum á
milli akreina. Framúrakstur verð-
ur því ekki mögulegur á löngum
kafla auk þess sem skilti á miðjum
vegi draga úr umferðarhraða. Því
má búast við að ferðatími á
Reykjanesbrautinni lengist.
Samkvæmt upplýsingum frá
Umferðarstofu urðu 55 slys og
óhöpp á tímabilinu frá ágúst 2007
til og með janúar síðastliðnum á
umræddum vegarkafla. Síðan þá
hafa orðið mörg alvarleg slys, síð-
ast í gærmorgun þegar fjórir slös-
uðust alvarlega.
„Þegar öllu er á botninn hvolft
er það á ábyrgð ökumanns að
keyra eftir aðstæðum,“ segir
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu.
„En hins vegar er ekki einleikið
hvað þarna eiga sér stað mörg
óhöpp og slys sem greinilega má
rekja til þess að ökumenn átta sig
ekki á aðstæðum.“ Eins telur Einar
Magnús að í einstaka tilfellum taki
ökumenn óþarfa áhættu miðað við
aðstæður.
„Við hjá Umferðarstofu erum
þeirrar skoðunar að hægt sé að
gera þetta mun betur en hefur
verið gert þarna á Reykjanes-
brautinni.“ Segir hann því miður
vera mörg dæmi um að merkingar
við framkvæmdir séu ekki í lagi.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni
segir að ekki hafi staðið til að
framhjáhlaup yrðu opin þetta
lengi og heldur ekki að þau væru
svo mörg opin í einu en að verk-
takinn hafi ekki staðið við kröfur
Vegagerðarinnar. Þá segir að frá
því verktakinn, Jarðvélar ehf.,
sagði sig frá tvöföldun Reykjanes-
brautarinnar í desember síðast-
liðnum hafi Vegagerðin unnið að
því að bæta merkingar og umferð-
aröryggi á framkvæmdasvæðinu.
„Það virðist ekki hafa dugað til
að setja skilti á þriðja hvern
staur,“ segir G. Pétur Matthías-
son, upplýsingafulltrúi Vegagerð-
arinnar. Segir hann Vegagerðina
hafa sett tvístefnumerkingar á
ljósastaura en fleiri og stærri
skilti verði sett upp nú fyrir helg-
ina. „Ég held að klárlega til fram-
tíðar þurfi menn að skoða leiðir til
að aðskilja aksturstefnurnar í
svona tilvikum,“ segir G. Pétur.
Tilboð í þá vinnu sem eftir er
við tvöföldun Reykjanesbrautar
voru opnuð á þriðjudaginn og voru
Adakris uab. og Toppverktakar
ehf. með lægsta boðið. Er gert ráð
fyrir að framkvæmdir geti hafist
að nýju eftir um tvær til þrjár
vikur. olav@frettabladid.is
Slysum fjölgað
um helming á
Reykjanesbraut
Slysum hefur fjölgað á Reykjanesbrautinni frá því
framkvæmdir við tvöföldun hennar hófust. Vega-
gerðin hyggst aðskilja akstursstefnur með skiltum
milli akreina til að koma í veg fyrir framúrakstur.
UMFERÐARSKILIT Varúðarskiltum verður
fjölgað á Reykjanesbrautinni.
UMFERÐARSLYS Á
REYKJANESBRAUT
Slys og óhöpp á vegarkaflanum þar
sem vegaframkvæmdir eiga sér stað
frá Vogaafleggjara að Njarðvík
Frá ágúst 2004 til og með janúar 2005
Alvarleg slys 1
Slys með litlum meiðslum 6
Óhöpp án meiðsla 17
Samtals 24
Frá ágúst 2007 til og með janúar 2008
Alvarleg slys 0
Slys með litlum meiðslum 15
Óhöpp án meiðsla 40
Samtals 55
HEIMILD: UMFERÐARSTOFA
FRÁ REYKJANESBRAUTINNI
Jarðvélar efh. sögðu sig frá fram-
kvæmdum í desember en áætlað
er að þær hefjist að nýju innan
þriggja vikna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M