Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 18
18 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ ■ Það eru erfðir sem stýra háralit okkar. Nokkur gen hafa áhrif á húð- og háralit og genin geta komið saman á ýmsa vegu enda er háralitur manna mjög mismunandi. ■ Það er litarefn- ið melanín sem gefur hárinu lit. Tvö afbrigði eru til af því, faeómelanín (gult, rautt) og eumelanín (dökk- brúnt, svart). Í dökku hári er aðallega eumelanín en í ljósu og rauðu hári er faeómelanín. Þegar hárið á okkur fer að grána er það vegna þess að frumurnar sem mynda melanínið hrörna og framleiðslan minnkar þess vegna. Heimild: Vísindavefur.is ERFÐIR HÁRALITUR „Skynsemin ræður“ var kjörorð félags Trabant- eigenda og vísaði það til þess hve bíllinn var ódýr og sparneytinn. Bíllinn var framleiddur í Austur- Þýskalandi og afar vinsæll austan við hið svokallaða járntjald. Þegar Berlínarmúrinn féll og Þýska alþýðulýðveldið leið undir lok lagðist austur-þýsk bílafram- leiðsla af en nú er stefnt á að þessi sögufræga bílategund komist aftur á færibandið í nýrri og endurbættri mynd. Fall Berlínarmúrsins hafði í raun í för með sér endalok á framleiðslu á Trabant-bílum. En út í frelsið í vestri óku Austur-Evrópubúar á Traböntum og það mörgum enda höfðu fáir aðrir bílar verið þar til sölu. Glaðir og reifir fögnuðu Austur- Evrópubúar nýfengnu ferðafrelsi með því að flykkjast út á hrað- brautirnar og það gerðu þeir auð- vitað á Traböntunum sínum. Stefán Ásgrímsson, starfsmaður hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, segir fréttamyndir sem síðan bár- ust fjölmiðlum af umferðaröng- þveiti Trabant-eigenda úr austri hafa gert bílinn að eins konar tákn- mynd nýfengins frelsis. Sjálfur eignaðist Stefán fyrsta Trabantinn sinn í kringum 1970. „Hann var hræódýr og í sjálfu sér ekki afleit- ur. Ég væri alveg til í að eiga gömlu týpuna,“ segir Stefán. Hann segist þó ekki jafn spenntur fyrir nýju týpunni sem fyrirtækið Herpa, sem þekktast er fyrir leikfangaút- gáfur af raunverulegum bílum, hyggur á að koma á markað innan tíðar. „Gamli Trabantinn var ef til vill ekki tákn um velgengni en hann var allavega táknmynd um bar- áttuvilja og þrautseigju. Ef marka má það sem ég hef lesið um þessa nýju týpu þá verður hann eins konar uppabíll sem hentar helst þeim sem vilja snobba niður á við,“ segir Stefán sem ekki segist munu kunna við að sjá auðkýfinga á Tra- bant. Karl Tómasson, forseti bæjar- stjórnar í Mosfellsbæ, segir að sér þyki mikil gleðitíðindi að heyra að von sé á Traböntum aftur af færi- bandinu. „Ég átti „trabba“, þann fyrsta keypti ég nýjan árið 1984 á 84 þúsund krónur og seldi hann tveimur árum síðar á 75 þús- und krónur. Af honum voru því afar lítil afföll. Það eina sem ég keypti í hann á þessum tveimur árum voru þurrkublöð. Ég er því ekki hissa að Trabant-eigendur hafi stofnað klúbbinn Skynsemin ræður,“ segir Karl sem greinilega hefur ánægju af því að rifja upp gömul kynni af bílnum. Karl segir að eftir að hann hafði fóðrað hurðirnar með steinull og látið sníða ullaráklæði frá Álafoss á sætin hafi hann verið svo vel hljóðeinangraður að ökumanni hafi liðið eins og hann æki hinum besta Bens. „Ég hef haft afskaplega góða reynslu af þessum bílum og myndi vel vilja fá mér annan,“ segir hann. Undir orð Karls tekur Guð- mundur Pálsson, framkvæmda- stjóri Digitaltækni. „Ég eignaðist nýjan station-bíl af Trabant-gerð árið 1987 og eftir að hafa sett undir hann pínulítið stærri dekk komst ég allra minna leiða hvernig sem færðin var. Hann eyddi nánast engu en eina vesenið sem ég man eftir var þegar hætt var að selja blandað bensín á bensínstöðinni í Borgartúni því þá þurfti maður sjálfur að blanda bensínið á hann,“ segir Guðmundur en undir plast- vélarhlíf gömlu Trabantanna var tveggjastrokka vél svipaðir að gerð og garðsláttuvélar eru og var hún knúin áfram með smurolíu- blönduðu bensíni. „Þetta var samt góður bíll sem hentaði mér og fjölskyldunni alveg prýðilega,“ segir Guðmundur um reynslu sína af litla bílnum frá Austur-Þýskalandi. karen@frettabladid.is Nýi trabantinn verður uppabíll Rafmagnaður út- varpsmaður „Hluti námskeiðsins var að vera skotinn til að skilja tækið betur. Þetta var vont, á að vera vont en um leið og lokað var fyrir strauminn var allur sársauki fyrir bí og engin eftirköst.“ KRISTÓFER HELGASON Fréttablaðið, 9. apríl 2008. Sama tuggan Þetta er bara bull og sama tuggan og við fengum þegar við hittum Geir Haarde fyrir þremur árum í sama ráðu- neyti. Hvar er niðurstaðan af þeim fundi? STURLA JÓNSSON Morgunblaðið, 9. apríl 2008 „Ég skil mótmælin mjög vel,“ segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir varaborgarfulltrúi. „Það er auðvitað verið að mótmæla framferði kínverskra stjórnvalda gagnvart íbúum Tíbet.“ Hún skilur að þeir sem samúð hafa með málstað Tíbeta og berjast fyrir mannréttinda- málum láti til sín taka þar sem Ólympíu- eldurinn fer um heiminn. „En auðvitað hafa mótmælin gengið of langt í sumum tilfellum.“ Bryndísi finnst mótmæli við hlaup íþróttamanna með Ólympíueldinn vera réttur vettvangur. „Það er alþjóðasamfélagið sem tekur þátt í Ólympíuleikunum og mér finnst það ekki geta skilið að pólitískar ofsóknir og mannréttindabrot stjórnvalda í Kína frá Ólympíu- leikunum.“ Hún telur líklegt og fullkomlega eðlilegt að þessi sami vettvangur verði notaður í fram- tíðinni til að mótmæla því sem miður fer í því landi sem Ólympíu- leikarnir eru haldnir hverju sinni. SJÓNARHÓLL ÁTÖK UM ÓLYMPÍUELDINN Fullkomlega eðlileg BRYNDÍS ÍSFOLD HLÖÐVERSDÓTTIR „Það er allt alveg glimrandi gott að frétta af mér,“ segir Hermann Gunnarsson, fjölmiðlamaður með meiru. „Þessa dag- ana er Meistaradeildin í knattspyrnu mér ofarlega í huga og sú skrautsýning sem er iðulega á boðstólum í þessari frábæru keppni. Ég fylgist vel með fótboltanum og mæti reglulega í þáttinn 4-4-2 á Stöð 2 Sport þar sem ég lýsi skoðunum mínum á mönnum og málefnum í boltanum. Svo er ég á leið í frí á næstu dögum og fótboltaandinn mun svífa yfir því ferðalagi, því ég ætla meðal annars að sjá leik Barcelona og Manchester United á Nou Camp eftir tæplega tvær vikur. Einnig ætla ég að koma við í Austurríki, en þar á ég marga góða vini frá þeim dögum þegar ég var þar í atvinnumennsku. Við gömlu liðsfélagarnir höfum hist reglulega í tíu ár og það er alltaf jafn gaman,“ segir Hermann og hlær. Það er líka nóg að gera í vinnu hjá Hemma. „Ég er alltaf með þættina mína á Bylgjunni á sunnudögum og það er frábært að fást við mannleg samskipti á hverjum degi í tengslum við þá. Á sunnudaginn verða meðal annarra hjá mér hljómsveit sem er að vinna að plötu en spilar ekki opinberlega nema bara fyrir mig, Deep Jimi and the Zep Creams. Ég hef þekkt þessa stráka síðan þeir voru tíu ára og þeir verða góðir um helgina.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HERMANN GUNNARSSON FJÖLMIÐLAMAÐUR: Á leið í sannkallað fótboltafrí NÝI TRABANTINN Leikfangafyrirtæk- ið Herpa hyggst koma Trabant af þessu tagi á markað. TÁKNMYND FRELSIS Stefán Ásgrímsson, hjá FÍB, segir frétta- myndir sem bárust af umferð- aröngþveiti Trabanteigenda hafi gert bílinn að eins konar táknmynd nýfengins frelsis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.