Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 20

Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 20
20 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna Kr ón ur 23 6 26 2 19 4 27 2 1999 2002 2005 2008 Nú fer í hönd tími umfelgana á bílunum okkar. Fréttablaðið kannaði verð á slíkri þjónustu og komst að því að munað getur umtalsverðum fjárhæðum á kostnaði við slíka þjónustu. Umfelgun á venjulegum fólksbíl með 13-15“ dekk á stálfelgum er ódýrust hjá Vöku og dýrust hjá N1. Hjá Vöku kostar slík umfelgun 4.800 krónur en 6.699 krónur hjá N1. Munurinn nemur 1.899 krónum. Svipaða sögu er að segja um verð á umfelgun á jeppa með 29“ dekk á járnfelgum. Hún er ódýrust hjá Vöku, sléttar 7.000 krónur, en dýrust hjá N1 eða 8.126 krónur. Munurinn á 29“ dekkja umfelgun er ekki eins afgerandi og á 13-15“ dekkja umfelgun, eða 1.126 krónur. Fréttablaðið kannaði verð á umfelgun á 13-15“ dekkjum hjá sömu sjö stöðunum á landinu annað árið í röð: Vöku, Dekkjaverkstæði Grafarvogs, Pitstop, Bílaáttunni, Bílkó, Gúmmívinnslunni Akureyri og N1. Vaka var einnig ódýrust í fyrra og býður upp á sama verð, kr. 4.800, meðan N1 hefur hækkað verðið um 609 krónur og býður enn upp á hæsta verðið eins og fyrir ári. Líkt og hjá Vöku stendur verðið hjá Dekkjaverk- stæði Grafarvogs í stað síðan í fyrra en mesta hækk- unin hefur orðið hjá Gúmmívinnslunni Akureyri, eða 1.273 krónur. Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðar- deildar lögreglunnar, segir mikinn misbrest á því að fólk fari eftir settum reglum er varða akstur á nagladekkjum: „Því miður er allt of algengt að fólk sé að keyra á glamrandi nöglum sem grafa ofan í malbikið og gera vegi verri til aksturs. Nagladekk skilja oft eftir sig rásir með vatni og slitin nagla- dekk geta lengt hemlunarvegalengd og virkað eins og skautar á blautum vegum.“ Lögreglan hefur heimild til að sekta bíleigendur á nagladekkjum um 5.000 krónur á hjólbarða eftir 15. apríl. Það er því vissara að fara að lögum til að vernda vegina, lágmarka hættu á slysum og forðast fjársektir. - kg MATUR & NÆRING IÐUNN GEIRSDÓTTIR MATVÆLAFRÆÐINGUR Notkun gers við brauðgerð fyrr og nú VERÐKÖNNUN Á UMFELGUN Kostnaður við verð á umfelgun á venjulegum fólksbíl með 13“-15“ dekk á stálfelgum annars vegar og hins vegar jeppa með 29“ dekk á stálfelgum Verð 13-15“ 29“ Vaka 4.800 7.000 Dekkjaverkst. Grafarvogs 5.752 7.551 Pitstop 5.971 8.002 Bílaáttan 6.200 7.500 Bílkó 6.236 7.750 Gúmmívinnslan Akureyri 6.590 7.890 N1 6.699 8.126 Misdýrt að láta skipta um dekk fyrir sumarið Ger kemur mjög víða við í matvælaframleiðslu. Það er meðal annars eitt af lykilhráefnum brauðgerðar og hefur það verið notað allt frá tímum Forn-Egypta. Fyrstu brauðin voru flatar og harðar kökur sem voru lagaðar úr mjöli og vatni og bakaðar á heitum steinum. Upphaflega var ger notað á formi súrdeigs en úr því fengust mun léttari og bragðmeiri brauð en áður þekktist. Menn komu sér upp „skemmdu“ deigi og í það var sett malað korn og vatn til þess að laga brauðhleif. Hluta af deiginu var svo alltaf haldið eftir til næstu brauðgerðar. Á þennan hátt gat súrdeigið gengið manna á milli og jafnvel kynslóða á milli. Í súrdeigi eru auk gersveppa svokallaðir mjólkursýrugerlar sem gefa brauðum mjög einkennandi bragð sem margir sækjast eftir. Það var vísindamaðurinn Louis Pasteur sem uppgötvaði síðar að gersveppir eru lifandi frumur sem mynda lofttegundina kolsýru og vínanda við að gerja sykrur mjölsins ef þeim eru búin hagstæð lífsskil- yrði. Til gamans má geta þess að í einu grammi af geri geta verið um 20 millj- arðar gerfruma. Gerfrumur dafna best í brauðdeigi við 35°C. Ef vökvinn er of heitur drepast gerfrumurnar (54°C) og þá verður deigið þungt og klesst. Of kaldur vökvi eða umhverfi lamar mátt þeirra svo það tekur lengri tíma fyrir deig að lyfta sér. Bein snerting við salt hefur einnig hamlandi áhrif á gerfrumur. Hitinn í ofninum veldur því að kolsýran þenst út þannig að deigið lyftir sér enn frekar. Þegar hit- inn í brauðinu nær 54°C deyr gerið og verður óvirkt. Þótt vísindamenn hafi greint yfir 400 mismundandi tegundir af gersveppum er bakaragerið (Sacharomyces Cerevic- eae) nær allsráðandi við brauðgerð. Bakarager er ýmist notað sem pressuger eða þurr- ger. Það er lítill munur á þessum tveimur gertegundum þótt sumum bökurum finnist pressuger gefa betra bragð. Þurrgerið er notað í minna magni og er gott viðmið að einn pakki af þurrgeri (um 12 g) komi í stað 50 g af pressugeri í uppskrift. Pressuger á að geyma í kæli og hefur það tiltölulega stuttan líftíma (nokkrar vikur). Þurrgerið geymist vel við stofuhita og endist í marga mánuði í loftþéttum umbúðum. Ger hefur ekki teljandi áhrif á næringargildi brauða þar sem það er ekki notað í miklu magni. Það hefur aftur á móti mikil áhrif á bragðgæði og áferð. Í ljósi þess að gerið er lifandi örvera, sem deyr við bakstur, er ekki möguleiki að gersveppurinn haldi áfram að gerjast í líkamanum eftir neyslu brauða. Það á bæði við um brauð löguð úr bakarageri og súrdeigi. www.mni.is „Að loknum vinnudegi er gott að koma heim sé allt á sínum stað og loftið ferskt og gott. Gott ráð til þess er að opna glugga áður en farið er í vinnuna,“ segir Halldór Tinni Sveinsson, ritstjóri Húsa og hýbýla. „Það er alveg frábært að koma heim í ferksa loftið. Þetta er gott lítið tipps sem auðvelt er að framkvæma.“ GÓÐ HÚSRÁÐ: FERSKT LOFT Í HÚSIÐ Bestu kaup sem ég hef gert um ævina var þegar ég fjárfesti í flugmiða til Bang- kok síðasta vor. Ég ákvað að skella mér út í óvissuna og næstu fjóra mánuði eftir þá flugferð ferðaðist ég með kær- ustunni minni um Suðaustur-Asíu, frjáls eins og fuglinn. Þar upplifði ég margt og sit eftir með ómetanlegar minningar. Af mörgu ógleymanlegu ber gestrisni Taílendinga hæst, en henni var viðbrugðið. Þá var umferðin í Hanoí alveg mögnuð, ótrúlega kaótísk og gaman að fylgjast með henni. Ég upplifði líka nýárshátíð- arhöld í Bangkok sem ég hefði alls ekki viljað missa af. Þá smyrja allir leir framan í sig, fara út á götur með vatnsbyssur, fötur, hvaða ílát sem er og ausa vatni hver yfir annan. Þetta er forn hefð og stendur fyrir hreinsun, nýtt upphaf. Aðallega er þetta samt bara eitt stórt partí, þar sem allir eru glaðir, enginn fullur og enginn er lam- inn; ólíkt nýársgleði Íslendinga. Verstu kaupin voru einnig áður- nefndur flugmiði – því hann var ekki bara til Bangkok – heldur einnig aftur heim. Því þó að „Ísland sé land þitt“ – þá er „hér ekkert sem heldur í“. Ég hefði gjarnan viljað vera um aldur og ævi áfram á suðrænni strönd. NEYTANDINN: PÁLL HILMARSSON ALÞJÓÐAFULLTRÚI Flugmiðinn góð og slæm kaup Útgjöldin > 200 grömm af suðusúkkulaði. HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Í kjölfar styrkingar krónunnar síðustu daga ákvað bifreiðaumboðið B&L að lækka verð á nýjum bílum. Nemur lækkunin að meðaltali 5 prósentum en hún er breytileg eftir bílgerðum. Verð á bifreiðum lækkar þá aftur hjá fyrirtækinu í kjölfar hækkana sem urðu vegna gengissveiflna í mars. Er um umtalsverðar lækkanir að ræða á sumum bílunum, frá nokkur hundruð þúsundum upp í rúmlega milljón krónur á dýrustu bílunum. Vonast forráðamenn fyrirtæk- isins til að styrking krónunnar haldi svo ekki þurfi að koma til hækkana að nýju. ■ Verð á bifreiðum B&L lækkar verð á bílum TÍMI DEKKJASKIPTA Lögreglan hefur heimild til að sekta öku- menn sem keyra á nagladekkjum eftir 15. þessa mánaðar. Ráðstefnustjóri: Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður Dagskrá: Kl. 13.15 Setning ráðstefnu. Kristján Möller samgönguráðherra Kl. 13.30 Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis: Stjórnsýslueftirlit með sveitarfélögum - réttaröryggi eða ógn við sjálfstæði sveitarfélaga? Kl. 14.00 Sesselja Árnadóttir, lögfræðingur KPMG og höfundur skýringarrits um sveitarstjórnarlögin: Ábyrgð sveitarstjórnarmanna, réttindi og skyldur, hefur aukin dreifstýring hjá sveitarfélögum áhrif? Kl. 14.30 Guðjón Bragason, lögfræðingur Sambands sveitarfélaga: “Er rammalöggjöf betri en miðstýring? – Sjálfsstjórnarsvið sveitarfélaga skv. 4. gr. Evrópusáttmála um sjálfsstjórn sveitarfélaga” Kl. 15.00 Kaffihlé Kl. 15.30 Trausti Fannar Valsson, lögfræðingur og doktorsnemi í sveitarstjórnarrétti: Heimild sveitarfélaga til að ákveða sér afrakstur af fyrirtækjum sínum og stofnunum. Kl. 16.00 Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður: Hver á að bera kostnað við rekstur máls fyrir stjórnvöldum? Kl. 16.30 Ráðstefnuslit Aðgangur án endurgjalds - allir velkomnir Ráðstefnan er styrkt af Verkefnasjóði Háskólans á Akureyri og EYÞING - Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum Ráðstefna um sveitarstjórnarrétt verður haldin á Hótel KEA, Akureyri 11. apríl, kl. 13.15 EYÞING Á S P R E N T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.