Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 29
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Sundkonan Erla Dögg Haraldsdóttir, sem náði
ólympíulágmarkinu í tveimur greinum á Meist-
aramóti Íslands í sundi, þarf á stórum fataskáp
að halda. Hún er veik fyrir fötum og þá sérstak-
lega gallabuxum.
Þrátt fyrir að sundkonan Erla Dögg Haraldsdóttir
verji miklum tíma ofan í laug gefur hún sér tíma til
að kíkja í búðir og hefur gaman af því að kaupa sér
föt.
„Ég er mest fyrir gallabuxur og boli og á Levi‘s- og
Diesel-gallabuxur í stöflum. Um daginn var ég að
rölta niðri í miðbæ Reykjavíkur og kíkti inn í
verslunina Munthe plus Simonsen á Vatnsstíg. Þar
fann ég rosalega flottar drapplitaðar gallabuxur sem
ég féll strax fyrir enda eru þær ólíkar þeim sem ég á
fyrir,“ segir Erla Dögg.
Buxurnar, sem eru með snúnum saumum og
tvöföldum rassvösum, eru þröngar að neðan og notar
hún þær annað hvort við stígvél eða opna skó.
Erla, sem sigraði sexfalt á Meistaramóti Íslands í
sundi um helgina og setti fjögur Íslandsmet, náði
lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana í Peking í 200
metra fjórsundi og 100 metra bringusundi. Fyrir
fjórum árum var hún einungis 0,14 hundruðustu úr
sekúndu frá því að ná lágmarkinu og var takmarkið
að ná því næst.
„Ég fór á Ólympíuleikana í Aþenu fyrir fjórum
árum og þá varð ég enn ákveðnari í því að komast
núna,“ segir Erla Dögg. Leikarnir í ár leggjast vel í
hana og hún neitar því ekki að hún muni nota lausan
tíma til að kíkja á markaði í Peking. vera@frettabladid.is
Öðruvísi gallabuxur
Erla Dögg á gallabuxur í
stöflum en þessar, sem
eru drappplitaðar, með
snúnum saumum og
tvöföldum rassvösum,
eru ólíkar þeim sem
hún á fyrir.
DRESSAÐIR UPP
Feðgarnir Björn Ingi
Hilmarsson og Arnmundur
Ernst Backman fóru nýlega
í búðir og völdu föt hvor á
annan.
TÍSKA 4
NÁTTÚRAN.IS
Listakonan Guðrún Tryggvadóttir
heldur úti vefsíðu þar sem hún fjallar
um náttúruvernd í sem víðustum
skilningi.
HEILSA 6
M
YN
D
/E
LL
ER
T
G
R
ÉT
A
R
SS
O
N
Fæst í apótekum