Fréttablaðið - 10.04.2008, Síða 30

Fréttablaðið - 10.04.2008, Síða 30
[ ]Pottar þurfa að vera til í öllum stærðum. Stór þegar von er á mörgum í grjónagrautinn í hádeginu og lítill þegar allir afboða komu sína. Rjúkandi Ottósopi FÁTT KEMUR DEGINUM Á EINS GOTT RÓL OG NÝLAGAÐUR ESPRESSO Á HELLUNNI HEIMA. Margir eiga í eldhúsinu gamaldags espresso-kaffikönnu til uppáhellinga á eldavélinni, en sú hönnun er í senn sígild, gamaldags og fögur. Nú hefur hún hins vegar eignast keppi- naut í ástralskri stallsystur sinni, sem reyndar heitir Ottó, en Ottó hefur þann kost líka að búa yfir kröftugum gufustút til að flóa mjólk svo hægt sé að útbúa ilmandi cappuccino, latté eða aðrar útfærslur af ljúffengum kaffidrykkjum heimsins um leið og rótsterkur espressóinn rennur í gegn. Ottó-espressokaffikönnuna verður fyrst hægt að kaupa þegar maísól tindrar hæst á www. ottoespresso.com. - þlgTímarit og dagblöð er oft erfitt að hemja á borði. Á hringlaga borðum sem standa ekki uppi við vegg er erfitt að koma fyrir möppum eða rekkum undir tímaritin. Tyrk- nesku hönnuðirnir á hönnunarstofunni Ünal&Böler hönn- uðu sniðugt borð með innbyggðum tímaritarekka. Í miðju borðinu er skál í mörgum lögum sem hægt er að stinga tímaritunum ofan í. Blöð- in raðast í hring eins og blóm á miðju borðinu sem hönnuðirnir nefna „Kase“ sem þýðir skál á tyrknesku. Alper Böler & Ömer Ünal stofn- uðu hönnunarstof- una árið 2000 og hafa verk þeirra hlotið fjölda verð- launa. Nánar má lesa um verk þeirra á vefsíðunni www.ub-studio.com heida@frettabladid.is Blöðin raðast eins og blóm í borðið Tímaritahirslan í miðju borðinu nýtist einnig sem skál. MYND/ÜNAL&BÖLER Tímaritin raðast eins og blóm á miðju borði.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.