Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 32
[ ]
Feðgarnir Björn Ingi Hilm-
arsson og Arnmundur Ernst
Backman brugðu nýverið á leik
og völdu föt hvor á annan.
Arnmundur, sem er nemi á þriðja
ári í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð og einn liðsmanna Morfís-liðs
MH, valdi föt á föður sinn í versl-
uninni Bask á Laugavegi.
Fyrir valinu urðu gallabuxur,
skyrta, svört peysa og svartir stiga-
skór og þegar Björn Ingi var kom-
inn í fötin komst sonur hans svo að
orði: „Þarna er kominn pabbinn
sem ég eignaðist aldrei,“ en Arn-
mundur hvíslaði því að blaðamanni
að hann hefði oft furðað sig á fata-
smekk föður síns. Eftir að Björn
Ingi hafði fengið leiðbeiningar frá
afreiðslustúlkunni um hvar buxna-
strengurinn, sem hann hafði helst
til of hátt uppi, ætti að vera sagðist
hann bara nokkuð ánægður með
útkomuna. „Ég gæti jafnvel hugsað
mér að vera svona til fara.“
Björn Ingi, sem leikur um þessar
mundir í Jesus Christ Superstar
ásamt því að vera í fæðingarorlofi,
langaði mikið til að sjá son sinn í
fötum úr Herrafataverslun Kor-
máks og Skjaldar. „Hann er reynd-
ar yfirleitt mjög snyrtilega klædd-
ur og ég get ekki kvartað yfir
fatasmekk hans ef frá er talinn sá
tími sem hann virtist ekki getað
hysjað upp um sig buxurnar,“ segir
hann og hlær. „Hann spáir að
minnsta kosti mun meira í föt en ég
gerði á hans aldri. Mér leið yfirleitt
bara best í íþróttabuxum,“ bætir
hann við.
Arnmundur leyfði föður sínum
að ráða ferðinni hjá Kormáki og
Skildi og var ekki síður ánægður
með útkomuna. Þeir feðgar sam-
mældust um að þarna væri jafnvel
útskriftardressið komið. Arnmund-
ur, sem venjulega gengur í galla-
buxum og hettupeysu, lifði sig inn í
hið nýja tennis-lúkk og pósaði af
stakri snilld. vera@frettabladid.is
„Svona er hann pabbinn
sem ég eignaðist aldrei“
Arnmundur gengur yfirleitt í gallabuxum
og hettupeysu.
Birni Inga líður yfirleitt best í íþrótta-
buxum en það hefur stundum farið fyrir
brjóstið á syni hans.
Loðstígvél má ekki setja inn í skáp strax. Íslenska veðrið er óút-
reiknanlegt svo hælaskór og kuldabomsur verða að fá að standa hlið
við hlið í skóhillunni.
Arnmundur Ernst valdi gallabuxur,
skyrtu, peysu og svarta strigaskó úr Bask
á pabba sinn og voru báðir ánægðir
með útkomuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Svona myndi
Björn Ingi vilja sjá
Arnmund til fara
og var Arnmundur
mjög sáttur við hið
nýja útlit. Skórnir,
buxurnar, skyrtan,
peysan, trefillinn
og hatturinn eru
úr Herrafataversl-
un Kormáks og
Skjaldar.
HEKLAÐAR FLÍKUR ERU FLOTTAR, AUK ÞESS SEM FLJÓTLEGT ER AÐ BÚA ÞÆR
TIL FYRIR ÞÆR SEM KUNNA AÐ MUNDA HEKLUNÁL.
Í mörgum prjónablöðum er að finna uppskriftir að hekluðum fatnaði, svo sem
peysum og jafnvel pilsum. Þó að heklmynstur séu fjölbreytileg í útliti er grunn-
urinn alltaf sá sami og mynstrin yfirleitt einföld og auðveld við að eiga.
Guðrún Hannele, verslunarstjóri í Storkinum á Laugavegi 59, segir ungar
stúlkur spenntar fyrir hekli og býður hún öðru hvoru upp á námskeið í því. Kennt
er einu sinni í viku, alls fjögur skipti frá klukkan 18 til 21.
Uppáhald þeirra ungu
Jakkapeysa í Storkinum gefur hugmynd um
hvað hægt er að gera með hekli og útsaum.
Nýjar vörur
Sportjakkar
Stuttkápur
Vattkápur
Ullarkápur
Silkislæður
Mörkinni 6, s. 588 5518
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS
20% afsláttur
fram á laugardag
Láttu
taka
eftir
þér!Ein heitasta
búðin í dag!