Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 34
[ ]Ávextir eru góður biti milli mála. Í staðinn fyrir popp og nammi fyrir framan sjónvarpið er sniðugt að setja þurrkaða ávexti í skál.
Hvernig spörum við orku og hvernig verjumst
við eiturefnum? Þessum spurningum og ótal
öðrum verður svarað framvegis í litlum klausum
á síðum Alltsins. Listakonan Guðrún Tryggva-
dóttir stendur þar á bak við.
„Þetta verða vistvæn húsráð sem eiga að hjálpa fólki
í innkaupum á hlutum og notkun á þeim,“ byrjar Guð-
rún þegar hún er beðin að útskýra tilgang greinanna
sem birtast munu frá henni í Fréttablaðinu. „Þetta
eru upplýsingar af vefnum www.natturan.is og þær
eru komnar þar inn fyrir atbeina starfsfólk vefsins.
Til dæmis fróðleikur um hvernig ýmsir hlutir á heim-
ilinu voru gerðir, hvernig á að spara orku á notkunar-
tíma þeirra og hvernig þeim verður fargað á sem
bestan hátt.“ Guðrún segir allar vörur hafa mögu-
leika á því að vera vottaðar og viðurkenndar og
útskýrir það nánar. „Það eru til borð sem eru úr viði
úr sjálfbærum skógum og það er til vottun fyrir
því.“
Guðrún, sem er myndlistarkona, bjó og starfaði við
list og hönnun erlendis um átján ára skeið, fyrst í
París og síðan í München. „Þegar ég kom heim þótti
mér svo vænt um þetta land en fannst vera farið illa
með það. Við gætum gert svo miklu betur og nýtt
okkur þá forgjöf sem við höfum. Ég hugsaði hvernig
ég gæti lagt mitt af mörkum til þjóðfélagsins, til nátt-
úrunnar og til að búa til betri framtíð fyrir þennan
heim.“
Afsprengið af þessum hugleiðingum Guðrúnar er
vefurinn www.natturan.is. Hann fór í loftið á degi
umhverfisins 25. apríl fyrir ári og veitir margs konar
upplýsingar sem fólk á að geta nýtt sér í dagsins önn,
því eins og Guðrún orðar það: „Fólk á ekki að þurfa
að vera umhverfisfræðingar til að kaupa þvottaefni
sem ekki drepur fiskinn í sjónum.“
Guðrún kveðst njóta sérfræðiþekkingar fjölda
fólks við vinnslu vefsins. „Við höfum viðað að okkur
gríðarlegum upplýsingum, púslað saman og unnið úr
þeim. Fengum styrk af fjárlögum í ár, sem er viður-
kenning á því að við séum að uppfylla þörf sem var
fyrir hendi og miðla upplýsingum sem ríkinu ber í
raun skylda til að koma til neytenda. Þetta er samt
unnið af áhuga til að geta byggt upp vistvænni heim.
Við getum það ekki ef allir halda áfram að kaupa það
sem er framleitt á neikvæðan hátt,“ segir Guðrún og
bætir við: „Ég vil koma samvisku fólks í gang því við
erum öll hluti af umhverfinu.“
gun@frettabladid.is
Erum hluti af umhverfinu
Guðrún er gegnheill umhverfissinni og leggur sitt af mörkum
með því að miðla fróðleik til almennings á www.natturan.is
og líka í Fréttablaðinu. FRÉTTABLAIÐ/ARNÞÓR
Frískandi og mildir hreinsiklútar
fyrir augn- og andlitsfarða.
Fást í verslunum um land allt.
RAFMAGNSHITARAR
VERÐ FRÁ 1.990
ne
tv
er
slu
n
ish
us
id
.is