Fréttablaðið - 10.04.2008, Síða 56
10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
Óperusmiðjan frumsýndi í húsi
Íslensku óperunnar á sunnudags-
kvöld Così fan tutte eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Hljómsveit, kór
og burðarhlutverkin sex voru skip-
uð ungu listafólki sem komið er að
þröskuldi framhaldsnámsins, sumt
stigið yfir hann og hefur tekið upp
búsetu í erlendum borgum til að
fullframa sig áður en lagt er á hina
þyrnum stráðu braut atvinnu-
mennskunnar. Óperusmiðjan er
sett á stofn til þess að veita því
tækifæri og nýtur til þess stuðn-
ings Glitnis.
Frumsýningin á sunnudag var
um margt ánægjuleg kvöldstund.
Óperustúdíóið réð Ágústu Skúla-
dóttur til að leikstýra verkinu. Hún
er vön að vinna með áhugafólki og
atvinnumönnum og skilar hér
afbragðsvinnu með listamönnun-
um ungu. Daníel Bjarnason hljóm-
sveitarstjóri átti við ramman reip
að draga: hljómsveitin náði engan
veginn þeim kröfuríka hljómi sem
tónlist Mozarts útheimtir .
Sýningin var falleg í öllum
útbúnaði, búningar smart í stílis-
eringu sinni, lýsing fjölbreytileg
eftir efninu, leikmyndin ekki of
rúmfrek og bauð upp á snör atriða-
skipti. Katrín Þorvaldsdóttir, Páll
Ragnarsson og Guðrún Öyahals
eru smekkvísir atvinnumenn. Það
var enginn fátæktarbragur á
neinu, einfaldleiki skilaði sýning-
unni fullkomlega verðugri umgerð
sem var ekki ofþrengd og lýsti fág-
aðri smekkvísi.
Systurnar tvær og strákarnir
þeirra hafa mér reyndar alltaf þótt
óttalega leiðinlegar persónur, eink-
um þær tvær og þröngt um vik að
gera úr þeim eitthvað lífandi á
sviði. Þau sem skipuleggja gabbið
sem er plottið í verkinu, Herra
Alfonso og þjónustan Despina, eru
skemmtilegra fólk.
Gripið er til þess ráðs að deila
sýningum milli söngvara: þannig
eru tvær söngkonur í hlutverki
Fiordigli, og aðrar tvær í hlutverki
Despinu á þessum sýningarkvöld-
um sem eftir eru: 11. og 13. apríl.
Þorvaldur Þorvaldsson bassi
fer með hlutverk Alfonsos á öllum
sýningunum, vörpulegur maður
með fína rödd sem enn skortir
þroska til að ná hinum fínu blæ-
brigðum slægðar og undirferlis
en með sterka nærveru og örugg-
an leikstíl. Falleg frammistaða.
Hlutverk Despinu var á frumsýn-
ingunni sungið og leikið af Unni
Helgu Möller sópran en Tinna
Árnadóttir mun einnig fara með
það. Unnur Helga er konfektmoli
þótt rödd hennar sé ekki full-
þroskuð og hana vanti styrk.
Framburður hennar eins og Þor-
valdar var til sóma en mestu
skipti þó frábær skilningur henn-
ar í öllum hreyfingum og fasi sem
gladdi áhorfendur sinn eftir sinn
á frumsýningarkvöldinu. Vonir
eru að hún nái öruggari tökum á
rödd sinni og þá eru henni margar
leiðir færar.
Piltarnir tveir sem láta tilleiðast
að reyna á trygglyndi þeirra
systra eru sungnir af Sveini Dúa
Hjörleifssyni tenór og Jóni Svav-
ari Jósefssyni barítón sem báðir
eru orðnir nýtir söngvarar og
liprir leikarar. Misvel fórst þeim í
erfiðustu einsöngsatriðum en
æskuþokki þeirra og lifandi nær-
vera bætti það upp. Jón er vaskur
í framgöngu og sýndi hörku af
öryggi, en Sveinn hefur sýnilega
tilburði til að verða söngvari með
snert af gamanleikara.
Systurnar tvær, þessar stilltu
dúkkur, sungu þær Sólveig Samú-
elsdóttir mezzo og Steinunn Skjen-
stad sópran sem deilir hlutverkinu
með Hönnu Þóru Guð brands dóttur.
Þær voru leiklega séð í veikastri
stöðu í sviðsetningu Ágústu en
komu fallega fram og sungu víða
ljómandi. Sólveig er styrkari í
söng sínum en Steinunn.
Allir eru þessir krakkar mis-
langt komnir í raddþroska.
Frammistaða þeirra sýnir að hér
er að vaxa upp mannvænlegur
hópur söngvara. Þá er ónefndur
kór sem söng fallega og sinnti sínu
vel, meðal annars hópatriðum í
leik sem Ágústa hefur lagt af mik-
illi smekkvísi. Hæfileikum Ágústu
til að ná vel hinu besta úr viðvan-
ingum er hér ekki brugðið. Stíll
hennar hefur löngum tekið mið af
mímunni og stílfærslunni fremur
en hinum sálfræðilega leikmáta
natúralismans. Það tekst hér víða
afar vel og sýnir enn hvar styrkur
hennar liggur sem leikstjóra. Vilji
menn nota hann.
Áhorfendur skemmtu sér vel á
frumsýningunni. Hún er öllum til
sóma sem að henni standa.
Páll Baldvin Baldvinsson
Öll eru þau til prýði
LEIKLIST
Cosi fan tutte
Wolfgang Amadeus Mozart og
Lorenzo da Ponte.
Leikmynd: Guðrún Öyehals.
Búningar: Katrín Þorvaldsdóttir.
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason.
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.
★★★
Glæsileg nemendasýning með
efnilegum leikurum með góðar raddir
sem munu eflast í reynslunnar eldi.
Lucyna Aleksandrowicz-
Pedich, prófessor í bókmennt-
um og fjölmenningarsamskipt-
um við Sálfræðiháskólann í
Varsjá, heldur opinn fyrirlest-
ur í Háskólanum á Akureyri í
dag kl. 15.20. Fyrirlesturinn
ber titilinn Bókmenntir og
fjölmenningarvitund fyrir
„mestu bókmenntaþjóð í
heimi“.
Í fyrirlestrinum verður
skýrt hvernig bókmenntir geta
stuðlað að betri skilningi á
„Hinum“ og auðveldað
samskipti í heimi sem einkenn-
ist af æ fjölbreyttari menning-
artengslum.
Fyrirlesturinn verður
haldinn í Háskólanum á
Akureyri, stofu L103 á
Sólborg. - vþ
Bókmenntir
og „Hinn“
NÝ OG FÁRÁNLEGA SKEMMTILEG SÝNING UM FJÁRMÁL ÍSLENDINGA!
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
IK Sýnt í Salnum Kópavogi
Miðasala hjá Salnum í síma 5700 400, á salurinn.is
og midi.is. Miðaverð 2000 kr. 50% afsláttur er fyrir
viðskiptavini Byrs (hámark 5 miðar) ef keypt er í miða-
sölunni í Salnum. ATH! Takmarkaður sýningafjöldi.
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
IK
Þri 15/4 kl. 20
Mið 16/4 kl. 20
Fös 18/4 kl. 21
Lau 19/4 kl. 19
Lau 19/4 kl. 21
Fös 2/5 kl. 19
Fös 2/5 kl. 21
Lau 3/5 kl. 20
Lau 3/5 kl. 22
Fös 16/5 kl. 19
Fös 16/5 kl. 21
Lau 17/5 kl. 19
Lau 17/5 kl. 21
Forsýning - uppselt
Forsýning - uppselt
Frumsýning - uppselt
Uppselt
S Ý N I N G A R
Fyrst var það Hellisbúinn, síðan Pabbinn og nú er það HVERS VIRÐI ER ÉG?
Óborganlega fyndin sýning Bjarna Hauks Þórssonar um fjármál Íslendinga.
Frábær sýning í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar.
10 - 11 - 17 - 18 - 24 - 30. apríl
kl 20.00 alla daga
ALLAR SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Engisprettur e. Biljana Srbljanovic
sýn. fim 10/4 örfá sæti laus, fös. 11/4 örfá sæti laus
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
sýn. lau 12/4 næst síðasta sýning
Sólarferð e.Guðmund Steinsson
Tvær sýningar lau. 12/4 örfá sæti laus, sýn 13/4 uppselt
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
sýn. lau 12/4 örfá sæti laus
Skilaboðaskjóðan e. Þorvald Þorsteinsson
sýn. sun. 13/4 uppselt
Sá ljóti e. Marius von Mayenburg
sýn. mið 9/4 uppselt, fös 11/4 sun. 13/4 örfá sæti laus
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL KL. 20
TIL FLUGS – SÖNGTÓNLEIKAR.
HÖRN HRAFNSDÓTTIR OG
ANTONÍA HEVESI.
LÖG GUNNAR REYNIR OG
LJÓÐ HRAFN HARÐARSON.
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL KL. 16
FIÐLUTÓNLEIKAR – LHÍ.
GUÐNÝ ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir
LAUGARDAGUR 12. APRÍL KL. 17
TÍBRÁ: PÍANÓTÓNLEIKAR
IVAN KLÁNSKÝ.
TUNGLSKINSSÓNATAN,
NÆTURLJÓÐ CHOPINS O.FL.
SLAGHÖRPUSNILLD!
SUNNUDAGUR 13. APRÍL KL. 16
KLARÍNETTUTÓNLEIKAR - LHÍ
KRISTJÁN RÚNARSSON
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir