Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 69
54 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
GOLF Hið stórskemmtilega risa-
mót, Masters, hefst á Augusta-
golfvellinum í dag. Masters er
fyrsta risamót ársins af fjórum.
Líkt og venjulega er búist við sigri
hjá Tiger Woods sem hefur byrjað
árið með látum og unnið sjö af síð-
ustu níu mótum sem hann hefur
tekið þátt í.
Þess utan hefur Tiger oftar en
ekki gengið vel á Augusta þar sem
hann hefur fjórum sinnum endað
mótið í græna jakkanum.
Stefnan hjá Tiger á þessu ári er
að vinna öll risamótin. Hann hefur
einu sinni áður haldið öllum fjór-
um titlunum á sama tíma en það
gerðist ekki á sama árinu.
„Ég held að þetta sé mitt tólfta
eða þrettánda tímabil og níu af
þessum árum hef ég unnið fimm
eða fleiri mót. Nú þarf ég bara að
vinna réttu fjögur mótin í röð,“
sagði Tiger léttur á blaðamanna-
fundi fyrir mótið en árið 2000
vann hann opna breska, opna
bandaríska og PGA-meistaramót-
ið og sigur á Masters fylgdi árið
eftir.
„Það verður ekkert gefið á þessu
móti enda eru flestir þeirra bestu
að spila vel þessa dagana og nægir
þar að nefna Vijay Singh og Phil
Mickelson. Retief Goosen og Ernie
Els eru líka að hitna svo ég nefni
einhverja. Það þarf margt að
ganga upp svo maður sigri risa-
mót. Ein slæm mistök geta hæg-
lega eyðilagt mótið fyrir manni,“
sagði Tiger sem líkar vel að spila á
Augusta.
„Það er venjulega hægt að ná
fuglum á þessum velli en veðrið í
fyrra leyfði okkur ekki að spila
okkar besta leik. Lykilatriði á
þessum velli er að pútta vel. Það
er ekki hægt að pútta illa hérna og
vinna. Maður þarf einnig að spila
ákveðið og upphafshöggin þurfa
að vera bein. Hér áður fyrr var
hægt að vera villtari í upphafs-
höggum en það er liðin tíð,“ sagði
Tiger.
Eins og áður segir kann Tiger
vel við sig á Augusta-vellinum en
hann hefur samt ekki unnið þar
síðustu tvö ár. Það lengsta sem
hann hefur beðið eftir sigri á þess-
um velli er þrjú ár. Hann tapaði
naumlega fyrir Zach Johnson í
fyrra og er oftar en ekki í toppbar-
áttunni þó hann vinni ekki alltaf.
Veðbankar hallast þó að sigri Tig-
ers í ár og það verður enginn ríkur
á því að setja peninga á hann í ár.
henry@frettabladid.is
Tiger Woods segist geta unnið
öll risamótin á sama árinu
Golfsérfræðingar búast flestir við mjög öruggum sigri hjá Tiger Woods á Masters-mótinu sem hefst á hin-
um fornfræga Augusta-golfvelli í dag. Tiger hefur verið í ótrúlegu formi á árinu og unnið sjö af níu síðustu
mótum sínum. Tiger hefur trú á því að hann geti unnið öll risamótin á þessu ári.
FERSKUR Tiger Woods sést hér hress og kátur á æfingu fyrir Mastersmótið fyrr í
vikunni. Honum er sem fyrr spáð sigri á mótinu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Pálína Gunnlaugsdótt-
ir varð á föstudagskvöldið
Íslandsmeistari á sínu fyrsta ári
með Keflavík en þetta er þriðja
árið í röð sem hún spilar með
besta liði landsins því
hún varð Íslandsmeist-
ari með Haukum 2006
og 2007.
Þetta er tólfti
Íslandsmeistara-
titill Pálínu í
öllum flokk-
um en hún
hefur
orðið
Íslands-
meistari á
öllum tíma-
bilum frá
árinu 2001. Pál-
ína sem er aðeins
21 árs gömul
hefur samtals
unnið 29 titla á ferlinum þar
af 21 Íslands- og bikar-
meistaratitil.
Pálína er þriðji leik-
maður sögunnar sem
nær því að vinna
Íslandsmeistaratitilinn
þrjú ár í röð með fleiri
en einu liði en bæði
Hanna Björg
Kjartansdóttir og
Olga Færseth
urðu Íslands-
meistarar með
Keflavík 1992
og 1994 og svo
með Breiða-
bliki árið
1995.
Það má segja
að síðustu þrjú tímabil hafi
verið ein stór sigurganga
hjá Pálínu en á þeim hefur
hún leikið 82 leiki á Íslands-
móti, 61 í deild og 21 í úrslita-
keppni, og hefur verið í sigurliði í
72 þeirra eða 90 prósentum leikj-
anna sem hún hefur spilað. Pálína
og félagar hennar í Haukum og
Keflavík hafa enn fremur unnið
tólf titla á þessum tíma þar af
Íslandsmeistaratitilinn, deildar-
meistaratitilinn og fyrirtækja-
bikarinn öll þrjú tímabilin.
Pálína hefur verið kosin besti
varnarmaður deildarinnar und-
anfarin þrjú tímabil en það má
segja að hún hafi blómstrað í
sókninni með Keflavík í vetur.
Pálína skoraði 12,1 stig að meðal-
tali í deildinni með Keflavík í
vetur sem var 2,7 stigum meira í
leik en hún hafði mest náð með
Haukum (9,4 tímabilið 2005-06).
Pálína gerði síðan enn betur í
úrslitakeppninni þar sem hún
skoraði 12,8 stig að meðaltali í
leik. - óój
STÓRIR TITLAR PÁLINU
Íslandsmeistari 12 sinnum
2008 Meistaraflokkur kvenna
2007 Meistaraflokkur kvenna
2006 Meistaraflokkur kvenna
2006 Unglingaflokkur kvenna
2005 Unglingaflokkur kvenna
2004 Unglingaflokkur kvenna
2003 Unglingaflokkur kvenna
2003 10. flokkur kvenna
2002 Unglingaflokkur kvenna
2002 10. flokkur kvenna
2002 9. flokkur kvenna
2001 9. flokkur kvenna
Bikarmeistari 9 sinnum
2007 Meistaraflokkur kvenna
2007 Unglingaflokkur kvenna
2006 Unglingaflokkur kvenna
2005 Meistaraflokkur kvenna
2005 Unglingaflokkur kvenna
2004 Unglingaflokkur kvenna
2003 10. flokkur kvenna
2002 10. flokkur kvenna
2002 9. flokkur kvenna
Pálína Gunnlaugsdóttir varð á dögunum Íslandsmeistari í tólfta sinn á síðustu sjö árum:
21 árs með 21 Íslands- og bikarmeistaratitil
FÓTBOLTI Rafa Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, var í
skýjunum eftir sigur liðs síns
gegn Arsenal á Anfield í fyrra-
kvöld og kvaðst hlakka til þess að
mæta Chelsea í undanúrslitunum
í þriðja skipti á síðustu fjórum
árum.
„Það er ótrúlegt að við séum að
mæta Chelsea enn og aftur á
þessu stigi keppninnar en eins og
áður verður þetta mjög erfitt og
krefjandi verkefni,“ sagði
Benitez en spurður út í hvort það
væri kostur fyrir Chelsea að eiga
seinni leik liðanna á Brúnni var
Spánverjinn ekki of viss.
„Ég veit ekki hvort það er
kostur eða ekki. Spyrjið mig
frekar að því eftir einvígið. Ég
hef annars mikla trú á reynslunni
sem við búum yfir fyrir svona
leiki og trúin til að ná árangri er
vissulega til staðar í okkar
herbúðum,“ sagði Benitez. - óþ
Rafa Benitez um Chelsea:
Erfitt og krefj-
andi verkefni
BJARTSÝNN Benitez telur að Liverpool
hafi reynsluna og trúna til að vinna
Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Frank Lampard, miðju-
maður Chelsea, ítrekaði á
blaðamannafundi eftir 2-0
sigurinn gegn Fenerbahce í
fyrrakvöld að lið sitt væri ekki í
hefndarhug gegn Liverpool.
Liverpool hefur slegið Chelsea
tvisvar sinnum út úr undanúrslit-
um Meistaradeildarinnar á
síðustu þremur árum.
„Hefnd er hættuleg tilfinning
til að draga inn á fótboltavöllinn
vegna þess að þar þarftu að hugsa
skýrt og vera með hausinn í lagi.
Fyrri viðureignir okkar gegn
Liverpool munu ekki hafa neitt að
segja í þessu einvígi,“ sagði
Lampard. - óþ
Frank Lampard um Liverpool:
Chelsea ekki í
hefndarhug