Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 2
2 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR Róbert, þværðu hendur þínar af þessum ásökunum? „Já, það er alveg á hreinu.“ Mikil röð við bílaþvottastöðina Löður í Kópavogi veldur truflun á verslun í Bæjarlind og veldur slysahættu, að mati verslunarmanna. Róbert Reynisson, fram- kvæmdastjóri Löðurs, telur vandann ekki svo djúpstæðan en vart sé hægt að tala um annað en vandræðaástand. FJÁRMÁL „Undanfarnar vikur hefur borið á því að lóðarhafar hafa ekki fengið þá lánafyrir- greiðslu hjá bönkum og öðrum fjármálastofnunum sem þeir höfðu vænst og jafnvel verið lofað,“ segir í greinargerð með tillögum að vinnureglum fyrir Reykjavíkurborg vegna fjár- náms- og nauð- ungarsölu- beiðna á lóðum. Tillögurnar sem unnar voru af embættis- mönnum borg- arinnar voru ræddar í fram- kvæmda- og eignaráði á þriðjudag en afgreiðslu þeirra frestað. Vinnureglurn- ar eiga ein- göngu að lúta að lóðum þar sem byggingar- rétturinn hefur verið seldur en ekki gerður lóðar leigu- samningur þar sem ekki hefur verið byrjað á húsunum. Í greinargerð embættismann- anna segir að vegna þess að bank- arnir hafi brugðist lóðarhöfunum á fyrrnefndan hátt hafi nokkrir þeirra lent í greiðsluerfiðleikum. Gera megi ráð fyrir að fram komi kröfur um fjárnám í lóðunum og uppboð á byggingarréttinum. „Þar sem lóðarleigusamningar eru ekki gerðir fyrr en lokið hefur verið við að steypa sökkla og plötu beinast slíkar kröfur að Reykjavíkurborg sem lóðar- eiganda,“ benda embættismenn- irnir á. Undanfarin ár hefur borgin aðallega selt byggingarrétt á lóðum með tvennum hætti; ann- ars vegar til hæstbjóðenda og hins vegar á föstu verði með ákvæði um viðbótargjald ef lóðin er endurseld innan tiltekins ára- fjölda. Í báðum tilvikum hefur verið heimilt að veðsetja bygg- ingarréttinn fyrir því sem nemur níutíu prósentum af verði hans. Varðandi lóðirnar sem seldar hafa verið hæstbjóðandi segja embættismennirnir að markaðs- verðmæti þeirra hafi ótvírætt lækkað auk þess sem lánin og kostnaður við þau geti verið orðin hærri en upphaflegt verð. Ekki eigi að bregðast við kröfum í þessar lóðir: „Er næsta víst að Reykjavíkur- borg myndi tapa á að leysa lóðir til sín. Auk þess getur verið var- hugavert fyrir opinbera aðila að grípa inn í atburðarás og trufla markaðsforsendur,“ vara emb- ættismennirnir við. Lóðir sem seldar voru á föstu er lagt til að borgin leysi til sín og geri upp við kröfuhafana með kaupverðinu sem lóðarhafarnir höfðu greitt, að því tilskildu að greiðslan verði ekki hærri en upphaflegt lóðarverð auk vísi- tölutryggingar. gar@frettabladid.is Neyðaráætlun vegna lóðarhafa í kröggum Reykjavíkurborg gerir viðbragðsáætlun vegna krafna frá bönkunum sem ganga að borginni vegna skulda lóðarkaupenda. Bankarnir hafa jafnvel svikið loforð um fjármögnun segir í greinargerð til framkvæmda- og eignaráðs borgarinnar. JÓRUNN FRÍMANNSDÓTTIR ÓLAFUR F. MAGNÚSSON FRAMKVÆMDASVÆÐI VIÐ ÚLFARSFELL Reykjavíkurborg er í erfiðleikum vegna þess að lóðahafar eru í fjárhagskröggum í lausafjárkreppu bankanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SLYS Fólkið sem slasaðist í árekstri á Reykjanesbraut á miðvikudagsmorgun er allt á batavegi, að sögn vakthafandi læknis á Landspítalanum. Meðlimir í hljómsveitinni Steed Lord voru í öðrum bílnum og þar á meðal Svala Björgvinsdóttir söngkona. Einar Egilsson, unnusti hennar, gekkst undir aðgerð vegna innvortis blæðinga á miðvikudag og var haldið sofandi í öndunarvél í gærmorgun. Hann er nú vaknaður. Tveir bræður Einars og faðir hans, Egill Eðvarðsson dagskrár- gerðarmaður, voru í bílnum. Ökumaður hins bílsins var einn á ferð og slasaðist nokkuð. - sgj Slösuðust í árekstri: Öll á batavegi eftir bílslysið ATVINNULÍF Samtök iðnaðarins segja að vegna gengisþróunar og hækkandi olíuverðs geti verk- takar ekki staðið við samninga eða tekið að sér ný verk. Ósanngjarnt sé að þeir sitji uppi með áhættuna. „Á meðan þetta óróleika- tímabil stendur yfir er farið fram á að opinbera verkkaupar verðtryggi, til að mynda með bygginga- og gengisvísitölu alla samninga sem gerðir eru til lengri tíma en þriggja mánaða,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, í bréfi sem rætt var á fundi fram- kvæmda- og eignaráðs Reykja- víkur og sent til umsagnar hjá innkauparáði. - gar Verktakar fyrir opinbera aðila: Vilja tryggingar vegna óróans JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON SJÁVARÚTVEGUR Fyrstu niðurstöður úr togararalli Hafrannsókna- stofnunar árið 2008 benda til að stærð veiðistofns í þorski sé í góðu samræmi við mat á ástandi hans vorið 2007. Heildarstofnvísi- tala þorsks eins árs og eldri hækkaði um tólf prósent frá mælingunni 2007 en er þó lægri en árin 2002-2006. Fyrsta mat á stærð 2007 árgangs þorsks bendir til að hann sé slakur, eða af svipaðri stærð og árgangarnir frá 2005 og 2006. Árgangurinn frá 2004 mælist sem fyrr mjög lélegur. - shá Fyrstu niðurstöður togararalls: 2007 árgangur þorsks lélegur Á SJÓ Fyrstu niðurstöður togararallsins gefa ekki von um aukna þorskveiði. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE EFNAHAGSMÁL „Við erum að festast í hópi vandræðaríkjanna,“ segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, um stýrivaxtahækkanir Seðlabank- ans. Samtök atvinnulífsins eru að skipa nefnd til að kanna hvernig íslensk fyrirtæki geti tekið upp evruna og hvernig það myndi virka á efnahags- og atvinnulífið. „Það myndi ganga út á að fyrir- tækin yrðu öll með sitt verð í evrum, versla sín á milli í evrum, eftir atvikum gera kjarasamninga og greiða laun í evrum, vera með bankaviðskipti í evrum og eiga eignir í evrum,“ útskýrir Vilhjálmur, sem þó boðar ekki endalok íslensku krónunnar: „Hluti af hugmyndinni er að krónan yrði mjög lítill gjaldmiðill við hliðina á evrunni. Hún yrði meðal annars notuð í viðskiptum við opinbera aðila eins og þeir vilja og í raun verða notuð áfram sem lögeyrir með föstu gengi sem bakkað væri upp af ríkinu og Seðlabankanum.“ Vilhjálmur telur fullreynt að halda stöðugu gengi með krónunni. Hún sé einfaldlega ekki samkeppn- ishæf. „Á það eru helst notaðir þrír mælikvarðar: verðbólgan, vextirn- ir og gengið. Krónan er með fal- leinkunn á alla þessa mælikvarða,“ segir Vilhjálmur, sem sjálfur mun veita evrunefndinni forstöðu og boðar niðurstöður um miðjan maí. - gar Samtök atvinnulífsins vilja að einkaaðilar taki frumkvæði í gjaldmiðilsmálum: Íslensk fyrirtæki noti evruna Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKANS Davíðs Oddsson seðlabankastjóri og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, ræðast við á ársfundi Seðlabankans í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FJÖLMIÐLAR Farið er lofsamlegum orðum um Ísland í forsíðugrein sem birt var í lesbókar El País síð- astliðinn sunnudag. Meðal annars er sú ályktun dregin að í íslensku samfélagi sam- einist það besta sem heims- byggðin hefur upp á að bjóða. Greinarhöf- undurinn John Carlin fjallar þar meðal ann- ars með aðdáun um það hvernig fjölskyldulíf sé almennt afar gott þó svo að skilnaðir séu tíðir og fjölskyldusamsetningin þar af leiðandi flókin. Þar vitnar hann mikið í samtal sitt við Oddnýju Sturludóttur, borgarfulltrúa. Einnig er haft eftir Geir Haarde forsætisráðherra að okkur hafi tekist að sameina það besta frá Bandaríkjunum og Norðurlöndun- um. Það er að segja framtakssemi einstaklingsins og síðan velferðar- kerfið. Höfundur bætir síðan við að hér megi finna lífsgæði sem flestir Evrópubúa fara á mis við en megi finna í Afríku. Þau felast í því að börnin skynja sjálf sig sem hluta af stórfjölskyldunni og nær- samfélagi vegna þess hve margir hafa áhrif á uppeldi þess. Meðal annarra viðmælenda er Svafa Grönfeldt, rektor Háskól- ans í Reykjavík, og dáist greinar- höfundur af krafti hennar og atorkusemi. - jse Umfjöllun um Ísland í spænska blaðinu El País: Ísland sameinar það besta ÚR MIÐBÆNUM Íslenskt samfélag fær fyrstu einkunn í grein spænska dag- blaðsins El País. Þar er sagt að hér ægi saman öllu því besta. GEIR H. HAARDE ALÞINGI Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að með ólíkindum sé að Íslendingi hafi verið haldið í einangrun í færeysku fangelsi í meira en 170 daga. Hún sagði stjórnvöld beita sér í máli mannsins, sem er í haldi vegna aðildar að Pólstjörnumálinu. Samúel Örn Erlingsson, Framsóknarflokki, hvatti ráðherra til að beita sér fyrir samnorrænum reglum um einangrun fanga. Kvaðst ráðherra vilja reyna að sjá til þess að svona lagað endurtæki sig ekki. - bþs Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Löng einangr- un sérkennileg ALÞINGI „Ég tel að í báðum tilvikum hafi lögreglan farið að lögum og það sé ekki um ólíka framkvæmd laganna að ræða,“ sagði Björn Bjarnason dóms- málaráðherra í svari við fyrir- spurn Helga Hjörvar Samfylking- unni á Alþingi í gær. Helgi spurði hvernig stæði á ólíkri framkvæmd laga gagnvart mótmælendum. Vörubílstjórar hafa að mestu verið látnir óáreittir en í fyrra voru nokkrir mótmælendur handteknir fyrir að stöðva umferð á Snorrabraut. Sagðist Björn enn fremur ekki hafa beitt sér gagnvart lögreglu í málunum. - bþs Dómsmálaráðherra: Mótmælendum ekki mismunað SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.