Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 38
þú kemst ekki
í gegnum
vikuna …
... nema að fara á karnivalstemning-
una í Gallerí Sautján á Laugavegi og
dressa þig upp í öllum blankheitunum.
Það er ekki á hverjum degi sem maður
getur eignast Diesel-gallabuxur á fimm
þúsund kall!
... nema að henda
þér í vorhreingerning-
una, breyta til, hreinsa
skúffur og skápa. Slík
alþrif eru sömuleið-
is hressandi fyrir lík-
ama og sál og ef rétt
er haldið á spöðunum
gæti slík hreingern-
ing aukið brennsl-
una jafnmikið og
heil helgi í Boot-
camp.
... nema að fjár-
festa í sparibauk,
hann gæti reynst
verðmæt-
asta eign
heimilisins
þegar hart verður í ári og hann orðinn
fullur af dýrmætu klinki.
... nema að leyfa sköpunargleðinni að
blómstra í eldhúsinu, það
þarf engar ferm-
ingarveislur til
að hafa leyfi
til að útbúa
kökuhlað-
borð. Komdu
vinum þínum
á óvart og
bjóddu þeim í
marengskökur og
hnallþórur á sunnudegi,
fullkominn endir á vikunni.
... nema að skipuleggðu vorhátíð.
Kveddu veturinn með stæl. Þú gætir
boðið öllum
þeim til hátíð-
arinnar sem
hafa snert
líf þitt með
einum eða
öðrum hætti
í vetur, gæti
verið mjög
spennandi
gestalisti.
Það er ekki jafn sjálfsagt að kaupa
sér frið barnanna með leikföngum,
sælgæti, dvd-myndum eða öðrum
friðþægingartólum, þar af leiðandi
„neyðast“ foreldrar til að eyða meiri
tíma með börnunum sínum. Bönd
fjölskyldunnar styrkjast og hver veit
nema að fjölskyldan þín breytist í
hina syngjandi og síkátu Von Trapp-
fjölskyldu í kreppunni?
Nú þegar sultarólin herðir að eru margir sem horfa á eftir velmegun síðustu ára með eftirsjá og tárum. Föstudagur tók saman
nokkra punkta fyrir þá sem kvíða yfirvofandi kreppu því eins og Ellý Vilhjálms söng þá er fátt svo með öllu illt að ei boði gott.
Kreppan er enginn heimsendir
Kynlíf er ókeypis afþreying (í flest-
um tilfellum) og kemur sterkt inn í
staðinn fyrir bíó og áskrift að sjón-
varpsstöðvum. Ekki amalegt að ylja
sér við logandi ástarelda í stað þess
horfa á Opruh Winfrey.
Íslenskur
heimilisiðnað-
ur og hönnun
munu blómstra
með tilheyrandi hannyrð-
um og tískuhönnun úr
ódýrum efnum.
Fegrunaraðgerðir verða
á undanhaldi. Við getum
gleymt fegrunarslysum á borð við
flekkóttar brúnkumeðferðir, ofurplokk-
aðar augnabrúnir, tattúveraðar varalín-
ur og vaxaða karlmenn. Íslensk fegurð
eins og hún gerist best mun blómstra.
Reiðhjólið verð-
ur aðal farartæk-
ið. Hver vill ekki
aukið úthald, hreysti
og hreinna umhverfi?
Langtíma gróði sem marggef-
ur af sér.
Mömmumatur
kemur í staðinn
fyrir kjúklingabita
í fötu og annan
syndsamlegan
skyndibita, MSG-
kryddið verður
eitthvað sem mun
heyra
sög-
unni
til.
1
Þegar við
hættum
að geta
verið með
í yfirborðs-
mennsk-
unni með
góðu móti
förum við að
meta það sem
skiptir máli í líf-
inu, ástina og vin-
áttuna, eins væmið
og það nú
hljómar.
2
3
4
Ódýrasti drykkur okkar Ís-
lendinga, vatnið, verður
vinsælasti drykkurinn og
meðalþyngdin mun lækka.
5
6
7
8
6 • FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008