Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 20
20 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Pólstjörnumálið í Færeyjum “Þetta fráb Sumarbúðir fyrir 12 - 16 ára raudikrossinn.is Frábærar sumarbúðir fyrir alla unglinga 13. - 17. ágúst 2008 að Löngumýri í Skagafirði Þetta var ótrúlega skemmtilegt og ég eignaðist fullt af frábærum vinum... og starfsfólkið var líka æði” Hlutverkaleikir Kvöldvökur Ferðir Frábær skemmtun Dagskrá mótsins er blönduð af gamni og alvöru. Unnið er með viðhorf þátttakenda til ýmissa þjóðfélagshópa og fá þeir meðal annars tækifæri til að setja sig í spor þeirra í formi hlutverkaleikja Skráning hjá jon@redcross.is eða í síma 5704000 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is A u g lý si n g as ím i – Mest lesið ■ 9. september Fíkniefnin fjarlægð úr skútunni í Færeyjum. ■ 14. september Birkir greinir kærustu sinni frá því að hann sé með fíkniefni fyrir 200 milljónir í bíl sínum. ■ 16. september Fíkniefnin sett aftur um borð. ■ 17. september Lögregla sér Birki koma með pakka frá skútunni og setja í skottið á bíl sínum. ■ 21. september Birkir er handtekinn. Úrskurðaður í gæsluvarðhald og einangrun. ■ 21. september Kærastan setur sig í samband við lögreglu og segir síðan frá fíkniefn- unum. ■ 31. september Einangruninni aflétt. ■ 10. október Birki tekst að koma bréfi til kær- ustunnar þar sem lagt er á ráðin um frekari bréfasendingar. Fyrri bréfasending hans hafði þá verið stöðvuð. Settur aftur í einangrun. ■ 9. apríl Einangruninni aflétt. ATBURÐARÁSIN Í FÆREYJUM Kærastan sagði lögreglu frá fíkniefnum í bílnum FRÉTTASKÝRING JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR jss@frettabladid.is Það var fyrrverandi fær- eysk kærasta Birkis Mart- einssonar, 25 ára Íslend- ings sem nú bíður dóms í Færeyjum vegna meintrar aðildar að Pólstjörnu- málinu, sem fór að eigin frumkvæði til lögreglu. Þar greindi hún frá því að Birkir væri með mikið magn fíkniefna í skottinu á bíl sínum. Þetta segir Linda Margarete Hessel berg, saksóknari í málinu, í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið. Saksóknari undirstrikar að hún greini einungis frá því sem fram hefur komið við vitnaleiðslur í dómsal. Það var skömmu eftir handtök- una að kærasta Birkis kom að máli við lögregluna og kvaðst hafa vitn- eskju um nokkuð sem hún vildi greina frá. Hún hafði verið með Birkis í bíl hans aðfaranótt 14. september þegar hann sagði við hana að nú sætu þau í dýrasta bíl í Færeyjum. Henni þótti þetta undar legt þar sem bíllinn var kom- inn vel til ára sinna svo hún spurði nánar út í málið. Birkir greindi henni þá frá því að Alvar Óskars- son og Guðbjarni Traustason hefðu smyglað gífurlegu magni af fíkniefnum til Færeyja, því mesta sem um getur. Þau væru nú í skotti bílsins og andvirðið væri um 200 milljónir íslenskra króna. Þau Birkir og stúlkan höfðu þá nýverið ekið Alvari og Guðbjarna til vinar þeirra í Klakksvík, þegar þessi orðaskipti áttu sér stað. Lögregla gerði Birki grein fyrir vitnisburði stúlkunnar sama dag og hún gaf skýrsluna. Ástæður langrar einangrunarvist- ar Spurð um ástæður hinnar löngu einangrunarvistar Birkis kveðst saksóknari mjög gjarnan vilja að þær komi fram nú, þegar séð er fyrir endann á réttarhöldunum. „Maðurinn var handtekinn 21. september. Hann var þá úrskurð- aður í gæsluvarðhald og einangr- un. Daginn eftir að stúlkan greindi lögreglu frá vitneskju sinni bað Birkir lögregluna að koma til hennar bréfi frá sér úr fangelsinu, þótt hann vissi að hann mætti ekki reyna að hafa samband við vitni í málinu. Bréfið var stöðvað og komst aldrei á leiðarenda. Birki var því afhent það aftur eins og gildandi reglur segja til um.“ Þann 31. september var ein- angruninni yfir Birki aflétt. Ekki var talið þjóna rannsóknarhags- munum að halda honum lengur í einangrun, þar sem rannsóknin var svo vel á veg komin. Þetta var þó undir því komið að hann héldi gildandi reglur. Ein þeirra var sú að sakborningur mátti ekki hafa samband við vitni í málinu. „Engu að síður skrifaði hann annað bréf 10. október til stúlk- unnar þar sem sagði meðal annars að hann hefði fundið leið til að hafa samskipti við hana. Hún ætti að biðja kærustu færeysks sam- fanga hans fyrir bréf sín til hans og hann myndi nota sömu aðferð. Hún mætti ekki undir nokkrum kringumstæðum segja neinum frá þessum samskiptum þeirra, því þau væru ólögleg. Í bréfinu útskýrði hann sína hlið á fíkni- efnamálinu, sem hann vissi að hann mátti ekki gera því þar með var hann að hafa áhrif á vitni í málinu. Stúlkan fór með bréfið til lögreglu og kvaðst vilja fá frið fyrir manninum.“ Heimsóknir og bréfaskipti undir eftirliti Þetta leiddi til þess að Birkir var settur aftur í einangrun vegna ítrekaðra tilrauna til að hafa sam- band við vitni. Þá var færeyski fanginn sendur til áframhaldandi afplánunar í Danmörku. „Birkir mátti allan tímann í ein- angruninni fá heimsóknir vina og síðan fjölskyldu undir eftirliti. Þá mátti hann skrifa bréf og fá bréf að því tilskildu að yfirvöldum væri kunnugt um hvað stóð í þeim bréf- um,“ útskýrir saksóknari. „Með því gáfum við honum eins mikið svigrúm eins og hægt var.“ Bróðirinn handtekinn Saksóknari segir enn fremur að Birki hefði mátt vera ljóst að fjöl- skylda kærustunnar var orðin flækt í málið með einum eða öðrum hætti. Bróðir stúlkunnar hafði verið handtekinn um leið og Birkir. Ástæðan var sú að Einar Jökull Einarsson hafði ásamt öðrum manni sent peninga í byrj- un september úr banka í Smára- lind til Færeyja 11. september. Fóru þeir inn á reikning bróðurins að beiðni Birkis sem kvaðst sjálf- ur ekki hafa skilríki til að leysa þá út. Þá hafði Einar Jökull hringt símtöl úr almenningssíma, bæði í Birki og bróðurinn. „Meginástæða þessarar ein- angrunarvistar var sú að stúlkan gæti borið vitni í dómsal, án þess að vera undir þrýstingi frá sak- borningi, sem reyndi að ná til vitnis bréflega.“ Fíkniefnin í Færeyjum Guðbjarni og Birkir staðfestu báðir fyrir rétti að fíkniefnin hefðu verið fjarlægð úr skútunni sunnudagsmorguninn 9. septem- ber. Þau voru sett aftur um borð 16. september. Þegar skútumennirnir yfirgáfu Færeyjar 17. september skildu þeir eftir tæp 800 grömm af amf- etamíni og tæpt kíló af e-töfludufti í vörslu Birkis. „Vitni í dómsal útskýrðu að þessi efni hefðu átt að fara til fær- eysks einstaklings sem „ætti fíkniefnamarkaðinn í Færeyjum“. Einar Jökull var sagður vita hver þetta var og hafa hitt þennan einstakling í Danmörku og skipu- lagt þennan anga málsins. Birkir sagði í dómsal að Guð- bjarni hefði sett efnin sem eftir urðu í skottið á bíl sínum. „Lögregla fylgdist hins vegar með Birki úr fjarlægð þann 17. og sá hann þá koma frá skútunni með bakpoka sem hann setti í skottið á bílnum.“ Öll fingraför þurrkuð af pökkun- um Efnunum, sem skútumennirnir skildu eftir, var pakkað í tvo pakka um borð í skútunni, sem síðan voru settir í ofangreindan bak- poka. Guðbjarni sendi þá Birgi upp í bíl til að ná í bréfþurrkur til að þurrka öll fingraför af pökkun- um. Þegar Birkir var spurður fyrir dómi hvort hann hefði vitað að nota ætti bréfþurrkurnar til að afmá fingraför af fíkniefnapökk- unum kvaðst hann ekki hafa vitað það. Þegar Guðbjarni var spurður hvort Birkir hefði vitað til hvers ætti að nota þær sagðist hann hafa sagt Birki það. Í skotti bíls Birkis fundust síðan pakkarnir, án nokk- urra fingrafara, svo og einnota hanskar. Kviðdómur í Færeyjum kveður upp í dag úrskurð sinn um sekt eða sýknu Birkis Marteinssonar. LINDA MARGARETE HESSELBERG Sak- sóknari í fíkniefnamálinu í Færeyjum. DÓMSHÚSIÐ Í FÆREYJUM Þar hafa réttarhöldin farið fram frá því á mánudag. SMYGLSKÚTAN Fíkniefnin voru tekin úr skútunni í Færeyjum 9. september og sett aftur um borð 16. september. Að því búnu var henni siglt til Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.