Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 46
 11. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll Félag fagfólks um endurhæf- ingu eru frjáls félagasamtök. Meðlimir eru úr öllum stétt- um sem koma að hvers kyns endurhæfingu og vilja vekja athygli á sínum málefnum. Í dag verður haldinn aðalfundur og málþing á Grand hóteli. „Markmið endurhæfingar er að koma fólki út í lífið aftur sem fyrst. Annars vegar þarf fólk að vera til- búið andlega og líkamlega. Hins vegar þurfa félagslegar aðstæður að vera ákjósanlegar,“ segir Krist- ín Thorberg, formaður Félags fag- fólks um endurhæfingu ,FFE, en hún er einnig formaður samtaka heilbrigðisstétta. Kristín er mennt- uð hjúkrunarfræðingur, fram- haldsskólakennari og iðjuþjálfi. Auk þess er hún í meistaranámi í lýðheilsu- og kennslufræðum. Kristín starfar nú á endurhæf- ingarsviði Landspítala, Grensási, þar sem hún vinnur að masters- verkefni sínu í lýðheilsufræðum. „Endurhæfing byrjar á því lík- amlega, að ná upp þreki og færni. Síðan taka iðjuþjálfarnir við til að fólk geti bjargað sér mest sjálft. Hvort heldur með hjálpartækjum, hjólastólum eða breytingum á um- hverfi heima við,“ segir Kristín og nefnir sem dæmi brottflutning þröskulda. Tildrög félagsins var tillaga um þverfaglegt fræðifélag fyrir sjö árum. Magnús Ólason lækn- ir var í forsvari fyrir undirbún- ingshópinn og var jafnframt fyrsti formaður. Í hópnum sat fagfólk á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar- fræði, iðjuþjálfunar, sjúkraþjálf- unar, sálfræði, stoðtækjafræði og talmeinafræði. „Endurhæfing er mikil teymisvinna þar sem meðal annars læknar, taugasálfræðingar, hjúkrunarfræðingar og fjölskyld- ur og aðstandendur taka þátt,“ út- skýrir Kristín. Hún segir að markmið FFE sé að að bæta fagþekkingu og skapa faglegar umræður sem vonandi leiða til betri þjónustu. „Í fyrra voru öndunarvélarnar efst á dag- skrá. Núna er það spurningin um hvað sé í boði tengt endurhæfingu á landsvísu,“ segir Kristín sem býr sjálf á landsbyggðinni og er bóndi í Eyjafirði. „Stærstur hluti fer til Reykjavíkur í endurhæfingu eftir alvarlegt slys eða langvar- andi veikindi. Að mínu mati er langbest að þjálfa fólk heima við. Nema alveg á fyrstu stigum end- urhæfingar. Annars er hætta á að fólk verði háð stofnunum og upp- lifi lært hjálparleysi. Hins vegar þarf samfélagið að vera tilbúið í þessar breytingar,“ segir Krist- ín og vekur athygli á aðalfundi og málþingi félagsins í dag þar sem endurhæfing á landsvísu verður rædd. Kristín bætir við að til hefði staðið að ræða kosti og galla einka- væðingar í faginu. Hins vegar varð að fresta því um ár, sökum þess hve viðkvæmt málið er í augna- blikinu. Á málþinginu koma fram tveir fyrirlesarar. Karl Kristjánsson, læknir á Reykjalundi, sem fjall- ar um Stiklu, sem er verkefni um gagnabanka um endurhæfingar- úrræði á Íslandi. Þá mun Ingvar Þóroddsson, læknir á endurhæf- ingardeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri, Kristnesi, fjalla um starfsendurhæfingu Norður- lands. Síðan mun Sigurður Þór Sig- ursteinsson iðjuþjálfi halda tölu um endurhæfingarklúbb á Akra- nesi. „Við reynum að taka púls- inn hjá fagstéttunum og ræða það sem brennur mest á hverju sinni. Þó eru skoðanir á endurhæfingu mjög misjafnar, en við viljum fá faglegra sjónarhorn svo hægt sé að taka upplýsta afstöðu sem fag- maður,“ segir Kristín. Nánari upplýsingar um félagið er að finna á: www.endurhaefing. com. Aðalfundurinn og málþingið verða á Grand hóteli í Reykjavík í dag 11. apríl og standa frá kl. 13- 15.30. - rh/nrg Fjalla um endurhæfingu á landsvísu Kristín Thorberg segir markmið Félags fagfólks um endurhæfingu stuðla að faglegri umræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI P IP A R • S ÍA • 8 0 7 3 4 Fyrirtækjum ber að skila spilliefnum. Við leggjum til heppileg ílát til söfnunar og sækjum ef óskað er. Móttökustöð okkar í Gufunesi er opin virka daga frá 7.30-16.15. Er spilling í þínu fyrirtæki ? Dæmi um spilliefni: Úrgangsolía Smurolía Olíusíur Rafgeymar Málningarafgangar Leysiefni Hreinsiefni Slökkvitæki Rafhlö›ur Spillum ekki framtíðinni Við sækjum! S. 520 2220 www.efnamottakan.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.