Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 16
16 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Unglingar á hraðferð inn í harðan heim 1. hluti – Unglingamenning Eflaust myndu margir segja að unglingar væru ekki jafn áberandi í bæjarlífinu nú eins og oft áður. Sjoppuhangs heyrir nær alveg sög- unni til, fjölmennar unglingasam- komur eru ekki áberandi um þess- ar mundir og fátítt er að sjá unglinga að leik um allar koppa- grundir. Hvar er þá mannskapur- inn? Einhverjir þeirra sem eldri eru kynna að halda að þeir sitji auðum höndum en unglingarnir sjálfir, foreldrar þeirra og þeir sem vinna með þeim vita að það er fjarri lagi. Fréttablaðið talaði við hóp 10. bekkinga í Austurbæjar- skóla og Rimaskóla og nokkra nem- endur í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Síðan var leitað álits fræðimanna og annarra sem starfa með unglingum og geta því varpað ljósi á hag þeirra og hátterni. Grunnskólanemar í vaktstjórn „Það er gríðarlegt vinnuálag á unglingum,“ segir Árni Jónsson, stjórnarmaður í SAMFÉS og fyrr- verandi forstöðumaður í frístunda- miðstöðinni Kamps, en hann hefur fengist við félagsstarf unglinga í áratug. „Þegar ég vann á félags- miðstöðvunum þurftum við jafn- vel að hafa samband við starfs- mannastjóra á þeim stöðum þar sem þau voru að vinna og biðja þá um að minnka vinnuálagið. Til dæmis voru einhverjir grunn- skólanemendur orðnir vaktstjór- ar.“ Í dreifibréfi sem Vinnueftirlitið sendi verslunareigendum og stjórnendum matvöruverslana í janúar síðastliðnum segir að eftir- litinu hafi borist kvartanir for- ráðamanna ungmenna sem vinna í matvöruverslunum vegna brota á ákvæðum reglugerðar um vinnu barna og unglinga, einkum er varð- ar verksvið og vinnutíma þeirra. Samkvæmt niðurstöðum rann- sókna sem Rannsóknir og greining gerði í samvinnu við menntamála- ráðuneytið árið 2004 stunduðu um 64 prósent stúlkna á höfuðborgar- svæðinu vinnu meðfram fram- haldsskóla árið 2004 og rúmlega helmingur pilta. Allt eða ekkert Fræðimenn sem Fréttablaðið talaði við voru sammála um að ekkert hálfkák viðgengist meðal ung- menna í dag þegar þau á annað borð tækju sér eitthvað fyrir hendur. Til dæmis fækkar þeim stöðugt sem neyta vímuefna en þeir sem á annað borð neyta þeirra gera jafnframt meira af því. Unglingum sem stunda íþróttir fjölgar og flestir láta ekki minna nægja en að stunda þær fjórum sinnum í viku. „Það er eins og gamla góða áhugamennsk- an sé á undanhaldi,“ segir Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskól- ann á Akureyri, kankvís en hann hefur gert margar rannsóknir á hegðun unglinga. Nemendum í Rimaskóla sem Fréttablaðið ræddi við fannst sem lítill gaumur væri gefinn að því að atvinnuþátttaka og íþróttaiðkun unglinga væri mikil en þeim mun meiri athygli fengi það sem afvega færi hjá fámennum hópi unglinga. Þetta hefði þær afleiðingar að heildin fengi að gjalda fyrir afglöp- in sem fáir fremja en fjölmargir fjölyrða um. Samskipti á tækniöld En hvað kemur fyrst upp í huga unglinganna þegar þau eru spurð hvar þau ali manninn? „Fyrir framan tölvuna,“ segir Bjarki Geir- dal Guðfinnsson, nemandi í Austur- bæjarskóla, og kollegar hans sam- sinna því. Þau eiga þó erfitt með að henda reiður á það hversu miklum tíma þau eyða við apparatið. Engan skal þó undra að tölvan sé þeim hugstæð enda verður veraldar- vefurinn sífellt stærri þáttur í dag- legu lífi unglinga sem og annarra, jafnvel barna. Niðurstöður rann- sóknar sem SAFT, Samfélag, fjöl- skylda og tækni, lét gera notaði innan við helmingur nemenda í 4. til 10. bekk veraldarvefinn daglega fyrir fimm árum en í fyrra var þetta hlutfall tæp áttatíu prósent. En tölvan er ekki aðeins tíma- þjófur að sögn Hlífar Böðvars- dóttur og Guðbergs K. Jónssonar, verkefnastjóra SAFT, „Við megum ekki gleyma því að í gegnum netið eiga sér stað heilmikil samskipti,“ segir Guðberg. „Þannig getur tiltal foreldra sem spyr barn sitt af hverju það fari ekki og hitti fólk í stað þess að hanga í tölvunni hljóm- að undarlega því á sama tíma er unglingurinn jafnvel að spjalla við tíu vini sína á MSN. Og þau eru alin upp við að þessi samskiptamáti hafi alltaf verið til staðar svo hann er ósköp eðlilegur í þeirra augum.“ 100 þúsund barnaníðingar á netinu Nemendum þykir nóg um þá umfjöllun sem verið hefur um nei- kvæð áhrif tölvunnar og veraldar- vefsins. Sumir telja jafnvel að ótti fullorðna við það hvað unglingar og börn aðhafast á netinu sé til- kominn af vanþekk- ingu foreldranna sjálfra. „Vissu- lega eru ungling- arnir yfirleitt fær- ari á netinu en foreldrarnir. Það er þó viss hætta á því að þeir sem eru einangraðir og jafnvel veikir á svellinu falli fyrir hættunum jafn- vel þótt þeir séu ekki grunnhyggnir. Svo er alltaf viss hætta á að fólk ánetjist því,“ segir Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur en hann hefur meðhöndlað mörg ungmenni með netfíkn. Hann segir að sex til tíu prósent þeirra sem noti netið eigi á hættu að ánetjast því og þegar kemur að tölvuleikjum sé hlutfallið um 24 prósent. „Sam- kvæmt heimildum bandarísku leynilögreglunnar FBÍ má gera ráð fyrir því að á hverju gefnu augnabliki séu að minnsta kosti 100 þúsund barnaníðingar á net- inu. Og í svona bloggvæddu þjóð- félagi eins og Íslandi er þá eru jafnvel glæpamenn sem sitja um bloggsíður og fylgjast með því hvenær einhver er að heiman svo að þeir geti leitað lags með sín myrkraverk. Aðrir óprúttnir reyna svo að komast yfir kreditkorta- númer. Og það er náttúrlega hægt að nálgast nær allt sem hugurinn girnist á netinu. Þar á meðal efni sem við teljum óæskilegt fyrir börn eins og til dæmis klám. Svo er hætta á því að sá sem útilokar sig frá umheiminum vegna tölvu- notkunar staðni hvað varðar félagslegan þroska þar sem hann fær lítil tækifæri til að takast á við aðstæður augliti til auglitis.“ Ungu alheimsborgararnir En sá er vafrar um óravíddir ver- aldarvefsins verður líka margs vísari enda er talað um að ungling- ar í dag séu alheimsborgar. Þeir sem nú eru á miðjum aldri fengu fæstir mörg tækifæri til þess að tala við jafnaldra sína frá fjarlæg- um slóðum en þessu er allt öðru- vísi farið í dag. Allir þeir sem blaðamaður talaði við sögðu að unglingar í dag væru almennt upp- lýstari, víðsýnni og mörgu leyti fróðari í dag en áður. Ekki verður heldur annað séð en að enskukunn- átta þeirra sé almennt svo góð að fullorðnir geti hæglega talið sig færa ef þeir standa þeim jafnfætis. Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá Forlaginu, segir að sífellt fleiri unglingar kjósi að lesa bækur á ensku og þá jafnvel þykka doðranta. Hún segir svo komið að jafnvel ellefu ára börn lesi bækur á ensku frekar en að rýna í þær íslensku. Hún segir enn fremur að síðustu tvo áratugi hafi framboð á unglingabókum stórlega minnkað á meðan mikil gróska sé í öðrum flokkum. Sigþrúður telur að ein af skýringunum geti verið sú ungl- ingar séu að miklu leyti farnir að lesa sömu bækur og þeir sem eldri eru. Beint í djúpu laugina Það væri því líklega ekki rétt að álykta sem svo að unglingar séu lítt áberandi í okkar samfélagi. Frekar væri að segja að unglinga- menningin eins og margir þekkja hana sé fyrir nokkru týnd og tröll- um gefin. Hins vegar má spyrja sig að því hvort unglingamenning sé smátt og smátt að mást út og börn sem ná unglingsaldri detti skyndi- lega í heim sem verður sífellt lík- ari heim þeirra fullorðnu. Þar sem vinna, nám, tölvusamskipti og stíf ástundun við viðfangsefnin skipa stóran sess en áhugamennska, úti- leikir og sjoppuhangs mega sín lít- ils. En unglingar eru þó ekki hættir að leika sér. Flestir leika þeir sér í tölvuleikjum sem sumir hverj- ir eru afar flóknir og krefjast mikillar þekkingar. Það á þó ekki einungis við um unglinga og börn því fullorðnir eru engu síður iðnir við kolann í þeim efnum. Með öðrum orðum má álykta sem svo að unglinga- menningin, rétt eins og ungl- ingabókmenntirnar, sé að þynnast út í heimi hinna full- orðnu. Enginn tími fyrir sjoppuhangs Hagur og hátterni unglinga í dag er um margt ólíkt því sem áður var. Heilt yfir er mikið vinnuálag á þeim og ekkert er gefið eftir í íþrótta- og tómstundaiðkun. Þeir eru alheimsborgarar sem vafra löngum stundum á veraldarvefnum og kjósa jafnvel lestur bóka á ensku fremur en íslenskar unglingabækur. Þeir eru á hraðferð inn í harðan heim hinna fullorðnu og þeir sem skrikar fótur geta orðið illa úti. NEMENDUR Í AUSTURBÆJARSKÓLA Bjarki Geirdal Guðfinnsson, Róbert Aceto, Kalman Christer, Fífa Jónsdóttir, Ragnheiður Elísa- bet Þuríðardóttir og Rebekka Sverrisdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HVAÐAN SÖGÐUST FRAM- HALDSSKÓLANEMAR AÐAL- LEGA FÁ PENINGA TIL DAG- LEGRA NOTA ÁRIÐ 2004 Stelpur Strákar Frá foreldrum 25,5% 26,7% Af sumartekjum 39,0% 55,2% Af launum vegna vinnu með námi 53,7% 35,9% Af námslánum 2,8% 1,6% Af dreifbýlisstyrk 6,4% 5,1% Heimild: Rannsóknir og greining IÐKUN ÍÞRÓTTA OG LÍKAMS- RÆKTAR FRAMHALDSSKÓLA- NEMA ÁRIÐ 2004 Stúlkur Strákar Nær aldrei 15,7 13,3 Vikulega eða sjaldnar 25,7 20,4 2-3 sinnum í viku 30,4 25,6 4 sinnum í viku eða oftar 28,2 40,6 Heimild: Rannsóknir og greining FRAMHALDSSKÓLANEMENDUR SEM UNNU MEÐ SKÓLA ÁRIÐ 2004 Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin Stelpur Strákar Stelpur Strákar Unnu ekki þann vetur 34,4% 49,3% 40,5% 54,8% 1-9 klst. 28,2% 22,1% 24,1% 19,9% 10-19 klst. 26,8% 19,1% 23,3% 15,5% 20 klst. eða meira 10,6% 9,5% 12,2% 9,7% Heimild: Rannsóknir og greining. Tölur miðast við eina viku. FRÉTTASKÝRING JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON jse@frettabladid.is VISSIR ÞÚ AÐ... ■ tæp 8 prósent drengja í 9. og 10. bekk spila í hljómsveit með vinum sínum?* ■ lestur dagblaða og tímarita meðal 9. og 10. bekkinga eykst?* ■ tæp 2 prósent 9. og 10. bekkinga stunda golf?* ■ ROFLMAO er gjarnan notað á MSN og þýðir að eitthvað sé afar fyndið? (Rolling on the floor laughing my ass off) ■ F2F þýðir augliti til auglitis? *heimild Rannsóknir og greining NEMENDUR Í RIMASKÓLA Linda Björg Björnsdóttir, Henrý Guðmunds- son, Kristín Björk Smáradóttir og Alex Pétursson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HVAR ERU UNGLINGARNIR? „Eru þeir ekki bara í bílunum sínum, mér sýnist allt benda til þess þegar ég lít yfir bílastæði skólans.“ Þorsteinn Þorsteinsson, skólameist- ari Fjölbrautaskólans í Garðabæ „Eins og foreldrarnir eru þeir yfirbók- aðir utan heimilis og undirbókaðir innan heimilis.“ Ólafur Grétar Gunnarsson, fjöl- skylduráðgjafi hjá ÓB ráðgjöf „Fyrir framan tölvuna.“ Bjarki Geirdal Guðfinnsson, nem- andi í Austurbæjarskóla. „Ef einhver vill sjá hvað unglingar eru að gera væri ráð að kíkja á nemenda- félögin.“ Hjálmar Örn Elísson Hinz, nemandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.