Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 40
F yrir fjórum árum kom Marín Magnúsdóttir heim úr námi frá Ástralíu þar sem hún lærði mannauðsstjórnun og markaðs- og almannatengsl. Í hennar sporum hefðu flestir sótt um vinnu hjá stóru fyrirtæki og keppst um að fá sem besta stöðu en það hvarflaði aldrei að henni. Hún var nefnilega með við- skiptaáætlun í farteskinu að sínu eigin fyrirtæki sem var ekki líkt neinu fyrirtæki sem hún þekkti. „Við komum heim í júní 2004 og það kom aldrei annað til greina en að stofna strax fyrirtæk. Til að byrja með var ég ein og vann þannig í nokkra mánuði en smátt og smátt jukust viðskiptin og þá fór ég að ráða til mín fólk. Í dag eru sjö manneskjur í 100 pró- sent starfi og örugglega 50 verk- takar sem koma inn í verkefn- in hjá okkur. Á fjórum árum er fyrirtækið búið að vaxa mjög hratt,“ segir Marín. Fyrirtækið hennar, Practical, sérhæfir sig í starfs- og hvata- dögum fyrir fyrirtæki ásamt við- burðastjórnun. Svo hefur blaða- maður heimildir fyrir því að Marín sjái um margar af er- lendu stórstjörnunum sem koma til landsins. Þegar hún er spurð nánar út í það segist hún ekki vilja ræða það í viðtalinu enda væri hún ekki fengin í það ef hún kjaftaði frá. „Á starfs- og hvata- dögum fyrir fyrirtæki sérhæfum við okkur í því að hafa allt klæð- skerasniðið. Við gerum ekki sama hlutinn tvisvar og okkar mark- mið er að flétta saman hópefli, fyrirlestra og skemmtun og við sjáum að sjálfsögðu um allt frá a-ö,“ segir Marín og bætir því við að það skipti ekki máli hvort það séu fjórir í hópnum eða 400 manns. „Þegar við skipuleggj- um svona viðburði sjáum við ekki bara um viðburðinn sjálfan held- ur byrjum strax að kynna daginn á skemmtilegan hátt innan fyrir- tækisins eða til gesta ásamt því að klára í rauninni ekki ferðina fyrr en eftir að hún hefur verið farin. Þetta gerum við á mjög marg- an hátt með alls konar glensi og gríni ásamt góðum hnitmiðuðum kynningum. Í vikunni fórum við til dæmis inn í eitt fyrirtæki um morguninn áður en starfsfólkið kom til starfa. Þegar þau mættu voru gulir hjálmar á borðunum og framan á þeim var spurningar- merki en starfsfólkið er á leið í óvissuferð á okkur vegum á morg- un.“ Til að geta framkvæmt nær alla hluti kemur starfsfólkið úr ólíkum áttum, allt frá ferðamála- fræðingum, viðskiptafræðingum upp í grafíska hönnuði. Hún segir að það geri það að verkum að þau geti framkvæmt og búið til næst- um því hvað sem er. Þar að auki er Practical með ferðaskrifstofu- leyfi. „Við förum oft út í heim með hópa og við gerum mikið af því að leigja vélar sjálf þegar það hentar. Með því að fá okkur til að skipuleggja þessa hluti fyrir sig getur fyrirtæki sparað mikla pen- inga því við erum iðulega með samninga við okkar birgja og fáum því alltaf betra verð en sá sem labbar inn af götunni. Ég held að fyrirtæki séu að gera sér grein fyrir því að það borgar sig að kaupa þjónustu þegar kemur að slíkum viðburð- um í stað þess að missa starfs- menn úr sínum verkefnum. Það er til fullt af ferðaskrifstofum og þjónustufyrirtækjum en það er ekkert fyrirtæki sem ég veit um sem er að gera nákvæmlega þetta, að sameina svona marga þætti. Ég er mjög upptekin af mannauði fyrirtækja og starfs- mannastefnu. Þegar ég kom heim úr námi og fór að skoða hópefli og hvataferðir var sama hvaða rútufyrirtæki eða hótel ég gúgg- glaði, allir virtust bjóða upp á hópefli. Mér fannst þetta svolítið skrýtið og hugsaði með mér að þessi fyrirtæki skildu ekki hvað hópefli væri í raun og veru. Fyrir mörgum er hópefli það að fara út í leiki, en það er ekki alveg svo einfalt. Við vinnum markvisst að hópefli, að samræma hug og hönd og láta fólk gera alls konar þraut- ir. Það má eiginlega segja að ég hafi byrjað þar. Mig langaði að fara inn í fyrirtæki og vera með alvöru starfsdaga sem væru með alvöru markmið, ekki bara að fara upp í rútu og detta í það.“ Dóttirin breytti forgangsröðinni Marín segir að eini ókosturinn við að læra í útlöndum sé að vera ekki með tengslanetið sem mynd- ast í háskólunum á Íslandi. Hún lét það þó ekki stoppa sig. Þegar hún var búin að stofna fyrirtæk- ið heimsótti hún nokkur fyrirtæki og kynnti starfsemi sína. „Áður en ég vissi af var búið að bóka mig í fyrsta verkefnið sem var starfs- dagur með hópefli og ferð. Þetta var lítill hópur en ákaflega dýr- mætur í mínum huga,“ segir hún. Þegar hún er spurð að því hvort það hafi ekki verið dýrt að stofna sitt eigið fyrirtæki segir hún að aðal fórnarkostnaðurinn hafi verið að fá ekki laun. „Þetta var samt ekkert rosalegt og fljótlega eftir fyrsta verkefnið fór boltinn að rúlla. Svona eftir á að hyggja finnst mér ég hafa tekið rosalega áhættu og stundum skil ég ekki hvernig ég þorði þessu. Það hefði kannski verið skynsamlegra að fá góða vinnu,“ segir hún og hlær. Hún segist þó ekki sjá eftir þessu þótt fyrirtækjareksturinn hafi vissulega sett mark sitt á líf hennar. Hún segir að það sé ekki nóg að vera bara hugmyndarík- ur, dugnaðurinn þurfi að vera til staðar. „Ég hef ekki átt neitt líf fyrir utan vinnuna. Ég hef þurft að fórna ýmsu og er ánægð með hvað ég á góða vini. Að þeir séu ekki búnir að gefast upp á mér. Ég hef sett vinnuna númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Marín. Fyrir ári síðan breyttist forgangsröðin reyndar aðeins þegar hún eignaðist dóttur. Nú er hún í þessum þremur efstu sætum og svo kemur fyrirtækið. „Þetta er búið að kosta blóð, svita og tár,“ segir hún og viðurkenn- ir að hafa verið á fundi í vinn- unni þegar hún fékk fyrstu hríð- irnar. Hún neyddist því til að fara heim úr vinnunni og upp á spít- ala því barnið var að koma. „Ég fór fljótt að vinna eftir að ég átti. Maður þarf að vera með skýra sýn á hvert maður ætlar og vinna að því. Það gerist engan veginn af sjálfu sér, þess vegna hef ég verið hérna dag og nótt. Það má eigin- lega segja að Saga dóttir mín hafi bjargað mér svolítið því ég vann allan sólarhringinn áður en hún fæddist,“ segir hún og ítrekar að hún hefði ekki getað gert alla þessa hluti nema að hafa svona gott starfsfólk í vinnu. Krafturinn kemur af Ströndunum Marín er alin upp á Hólmavík og segist hafa sterkar taugar til Strandanna enda býr afi hennar Marín lifir lífinu lifandi, ef hún er ekki að vinna eða að sinna fjölskyldunni er hún pottþétt með iPod í eyrunum úti að hlaupa. MYND/VALGARÐUR GÍSLASON Kemst þangað sem hún ætlar sér Þegar Marín Magnúsdóttir var lítil stelpa sagði pabbi hennar við hana að það væri ekki nóg að lesa um dýrin í Afríku, hún yrði að sjá þau með berum augum. Með ævintýraþrána í farteskinu hefur hún náð ótrúlegum árangri með fyrirtækið sitt, Practical, sem sérhæfir sig í hvataferðum og viðburðastjórnun. Í viðtali við Mörtu MaríuJónasdóttur segir hún frá hvatvísinni, vinnukraftinum og maraþonhlaupunum. 8 • FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 Í HNOTSKURN Besti tími dagsins: Morgnarnir. Bíllinn minn er … Eyðslusamur. Uppáhaldsmaturinn: Fiskréttirnir hennar mömmu og sænska súkku- laðikakan hjá tengdó. Skyndibitinn: Kjúklingasalat á American Style. Diskurinn í spilaranum: A Beautiful Life – Védís Hervör. Uppáhaldshúsgagnið: Sjónvarps- sófinn . Hvers gætir þú ekki verið án? Fjöl- skyldunnar. Hvenær varstu hamingjusömust? Þegar dóttir mín fæddist. Dekrið: Laugardagsmorgunn í ról- egheitum með dóttur minni og manninum mínum. Mesti lúxusinn: Góð heilsa. Hverju myndir þú sleppa ef þú þyrftir að spara? Sumarfríinu. Hreinasta snilld! Ryksugan með gervigreind ehf. Hólshrauni 7, Hafnarfirði símar 555 2585 - 848 7632 www.irobot.is „Hún eldar kannski ekki, en hún ryksugar á meðan þú eldar“ „Þú ferð í vinnuna og hún er búin að ryksuga þegar þú kemur heim“ Hvað segja notendur? Tvær gerðir - skoðaðu málið áFj a rð a rp ó s tu ri n n 0 8 0 4 – © H ö n n u n a rh ú s ið e h f. Fæst hjá: Byko um land allt, Max Kauptúni og Holtagörðum, Byggt og Búið, Heimilistæki, Ormsson Smáralind, Ljósgjafi nn Akureyri, Ormsson, Model, Krákur ehf verslun, Rafsjá fasteignir ehf, Árvirkinn Selfossi og Tölvuþjónusta Vals.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.