Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 4
4 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
VERÐKÖNNUN Verðkönnun á
kostnaði við umfelgun sem birtist
í Fréttablaðinu á miðvikudag
innihélt rétt verð samkvæmt
gjaldskrá þeirra fyrirtækja sem
verð var kannað hjá. Bílkó býður
öllum viðskiptavinum sínum upp á
tíu prósenta afslátt að minnsta
kosti fram til 1. júní og líklega
lengur. Sé þessi afsláttur reiknað-
ur inn í kostnað á umfelgun á bíl
með 13-15 tommu stálfelgum er
verðið 5.612 krónur í stað 6.236
króna án afsláttar. Bílaáttan býður
viðskiptavinum fimm prósenta
afslátt og Pitstop býður upp á 15
prósenta staðgreiðsluafslátt. Því
er skynsamlegt að hafa augun
opin fyrir góðum tilboðum. - kg
Verðkönnun á umfelgun:
Nokkrir staðir
bjóða afslátt
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
9°
7°
7°
7°
10°
12°
13°
12°
17°
8°
21°
19°
16°
14°
21°
16°
29°
22°
Á MORGUN
Víðast 3-8 m/s.
SUNNUDAGUR
5-10 m/s vestan
til, annars hæg
breytileg átt.
2
1
0
0
0
3
4
4
3
-2
9
9
5
6
6
11
4
10
4
8 10
5
1
-1
1
2
4
2 -1
-1
24
HELGARVEÐRIÐ
Ágætar veðurhorfur
eru fyrir meginhluta
landsins á laugar-
dag. Bjart með köfl -
um og hægur vindur
sunnan og vestan til
en fyrir norðan og
austan verða stöku
él. Á sunnudag
þykknar svo upp
vestan til og eftir
hádegi má búast við
slyddu eða rigningu
vestast. Þá léttir til
annars staðar.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri-grænna,
telur spá
Seðlabankans
mikil ótíðindi.
„Það þarf ekki
að koma neinum
á óvart að þessi
mikla fasteigna-
bóla hjaðni en
maður batt
vonir við að
verðið héldist
stöðugt á
alllöngu árabili og lækkaði þannig
eitthvað að raungildi. Bein lækkun
af þessari stærðargráðu er mikið
áfall, en þetta er ekki einangrað
ástand heldur angi af hinu stóra
efnahagslega samhengi, og stóri
útrásarveisluhaldareikningurinn
er að koma í hausinn á heimilum í
landinu,“ segir Steingrímur.
„Þessi löngu fyrirsjáanlega spá
hefði verið augljós tími fyrir
ríkisstjórnina til að kynna
einhverjar aðgerðir, en hún hefur
endanlega fallið á prófinu.“ - kg
Steingrímur J. Sigfússon:
Ríkisstjórnin
fallin á prófinu
FASTEIGNAMARKAÐUR Seðlabankinn
spáir kollsteypu á fasteignamark-
aði á næstu tveimur árum. Telur
bankinn líkur á að húsnæðisverð
lækki um þriðjung að raunvirði til
ársins 2010. Enn frekari samdrátt-
ur er ekki útilokaður. Forstöðu-
menn greiningardeilda viðskipta-
bankanna telja spá bankans of
svartsýna.
Þetta kemur fram í nýjasta hefti
Peningamála Seðlabankans sem
kom út í gær.
Þar segir að
kólnun á hús-
næðismarkaði
sé þegar komin
fram í því að
verðhækkun
íbúðarhúsnæðis
hefur stöðvast,
þrátt fyrir
umtalsverða
hækkun bygg-
ingarkostnaðar.
Horfur séu á að
lækkun ráðstöf-
unartekna,
þrengingar á
lánamörkuðum
og aukið fram-
boð íbúðarhús-
næðis leiði til
umtalsverðra
lækkana á hús-
næði. „Gert er
ráð fyrir að húsnæðisverð lækki
um um það bil 30 prósent að raun-
virði.“ Einnig segir að gríðarleg
óvissa sé um þessa þróun og því sé
ekki hægt að útiloka enn meiri
samdrátt. Spátímabil bankans nær
til næstu tveggja ára.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, telur spá Seðlabankans
of svartsýna. „Ég tel útilokað að
þetta gangi eftir. Það eru ekki for-
dæmi fyrir að húsnæðisverð hafi
lækkað svona mikið þrátt fyrir
verðbólgu eða erfiðleika í hag-
kerfinu.“ Greiningardeild Lands-
bankans gerir ráð fyrir fimm pró-
senta lækkun á næsta ári eða
fimmtán prósenta raunlækkun.
„Það er með því mesta sem við
höfum séð hér á landi en ég sé ekki
svona mikla lækkun, eins og Seðla-
bankinn spáir, á meðan kaupmátt-
ur helst nokkurn veginn og
atvinnuleysi verður ekki þeim
mun meira.“ Edda Rós tekur jafn-
framt fram að í ljósi þess hversu
hátt verð hefur verið á íbúðarhús-
næði að undanförnu sé eðlilegt að
það lækki umtalsvert, óháð erfið-
leikum á markaði.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningardeildar Glitnis, segir
ekki von á sömu þróun á fasteigna-
markaði og víða erlendis þar sem
hefur orðið mikil lækkun. „Hér er
ekki mikil spákaupmennska og
Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóð-
irnir eru að útvega fjármagn inn á
markaðinn. Lánaframboðið á hús-
næðismarkaði erlendis hefur hins
vegar stöðvast að stórum hluta
vegna þess að bankarnir lána ekki
lengur eins og hér. Í því liggur
munurinn á milli markaðarins hér
og erlendis.“
Spurður um áhrifamátt spár
Seðlabankans á fasteignamarkað-
inn til skamms tíma litið segir
Ingólfur að bankinn hafi spáð
þessu áður og mat bankans verði
að skoða í því ljósi.
svavar@frettabladid.is
magnush@frettabladid.is
Seðlabankinn spáir
hruni á markaði
Fasteignaverð mun lækka um þriðjung á næstu tveimur árum, að mati Seðla-
bankans. Frekari samdráttur er ekki útilokaður. Forsvarsmenn greiningardeilda
bankanna telja spá bankans allt of svartsýna. Töluverð lækkun sé þó fyrirséð.
EDDA RÓS
KARLSDÓTTIR
INGÓLFUR BENDER
ÚR SEÐLABANKANUM Spá Seðlabankans um þróun fasteignamarkaðarins er mun
svartari en viðskiptabankanna þriggja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STEINGRÍMUR J
SIGFÚSSON
STJÓRNMÁL Jón Magnússon,
þingmaður Frjálslynda flokksins,
býst við að spá Seðlabankans um
lækkun fasteignaverðs geti ræst
ef lána- og vaxtakjör fara
versnandi.
„Það hefur alla tíð verið mjög
erfitt að spá í verðþróun á
fasteignamarkaðnum á Íslandi.
Fyrir fram, miðað við óbreytt
ástand í efnahagslífinu, hefði
maður gefið sér að markaðurinn
væri kominn í nokkurt jafnvægi
og ekki yrði mikið um raunverð-
hækkanir að ræða,“ segir Jón.
„En ef lána- og vaxtakjör verða
erfiðari má búast við að þessi spá
gangi eftir. Það yrði þá hallæri af
manna völdum, stóra stökkið
aftur á bak.“ - kg
Jón Magnússon:
Hallæri af
manna völdum
HÚSNÆÐISMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra telur
spá Seðlabankans um lækun
fasteignaverðs
vera afar
svartsýna.
Þetta kemur
fram á visir.is.
„Það er
hlutverk
ríkisstjórnar-
innar að koma í
veg fyrir að
spá af þessu
tagi geti ræst,“
segir Jóhanna. „En það er
ekkert ólíklegt að það verði
leiðrétting á fasteignamarkaðn-
um, af því að verðið er svo hátt
núna.“
Jóhanna segir spána ekki vera
í samræmi við spár viðskipta-
bankanna, sem búist við um
fimm prósenta lækkun að
nafnvirði á næsta ári. Hún
segist telja þá niðurstöðu vera
líklegri. - sgj
Jóhanna Sigurðardóttir:
Telur spána
afar svartsýna
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
ALÞINGI Grétar Már Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins, liðkaði fyrir viðskiptum
Actavis í heimsókn til Íran í byrj-
un mars. Þá ræddi hann við þar-
lenda stjórnmálamenn um fram-
boð Íslands til Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Grétar var í
Íran á vegum utanríkisráðuneytis-
ins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra greindi frá
þessu á Alþingi í gær í svari við
fyrirspurn Jóns Magnússonar,
Frjálslynda flokknum.
Jón furðaði sig á för ráðuneytis-
stjórans í ljósi þess að Írönum
hefðu verið sett skilyrði af hálfu
alþjóðasamfélagsins vegna
kjarorkumála. Að auki væru
mannréttindi lítilsvirt í Íran.
Ingibjörg Sólrún sagði að þjóðir
heims ættu í margháttuðum við-
skiptum við Írana og að samskipti
við landið hefðu ekki verið rofin.
Jón velti fyrir sér hvort það
samræmdist stefnu Íslands í utan-
ríkis- og mannréttindamálum að
hafa samband við írönsku klerka-
stjórnina og lýsti efasemdum um
að rétt væri að afla fylgis hennar
við öryggisráðsframboðið. Ingi-
björg Sólrún sagði hófanna leitað
hjá aðildarþjóðum Sameinuðu
þjóðanna þó að þær féllu ekki
undir skilgreiningu okkar um lýð-
ræðisþjóðir. Engu að síður væri
stuðnings leitað á forsendum
Íslands og að Ísland stæði fyrir
mannréttindi. - bþs
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins heimsótti Íran á vegum ráðuneytisins:
Gekk erinda Actavis í Íran
GRÉTAR MÁR SIGURÐSSON Ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins liðkaði fyrir
viðskiptum Actavis á ferðalagi í Íran.
DANMÖRK, AP Hæstiréttur
Danmerkur hefur lengt fangelsis-
dóma þriggja manna, sem
handteknir voru í Óðinsvéum
haustið 2006 fyrir skipulagningu
hryðjuverkaárása.
Muhammed Zaher og Ahmad
Khaldhadi voru í héraðsdómi
dæmdir til að sitja ellefu ár í
fangelsi og Abdallah Andersen
fjögur ár, en Hæstiréttur lengdi
dóma þeirra allra um eitt ár.
Fjórði sakborningurinn í
málinu var sýknaður, en allir
sögðust þeir við réttarhöldin vera
saklausir. Ákæruvaldið krafðist
þess að þeir fengju þyngri dóma.
- gb
Dæmdir hryðjuverkamenn:
Fangavist lengd
um tólf mánuði
GENGIÐ 10.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
146,9964
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
72,12 72,46
142,92 143,62
114,53 115,17
15,348 15,438
14,438 14,524
12,183 12,255
0,7182 0,7224
118,62 119,32
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR