Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 62

Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 62
30 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Dómstólar Fjölmiðlar og stjórn-málamenn bæði vilja og geta haft áhrif á skoð- anir manna svo vera kann að frásagnir og uppákom- ur eins og lýst var í grein- inni á undan hafi áhrif á útkomu skoðanakannana. Stór hluti almennings sér hins vegar í gegnum venjulegan áróður. Hitt held ég sé hugsanlega réttara að það séu ákvarðanir dómstóla um refsingar í líkams- meiðinga- og kynferðisbrotamál- um sem hér hafi mest áhrif. Eiga dómarar þá að fara eftir almenningsálitinu, geta þeir og mega gera það? Hækka úrlausnir þeirra þá í áliti og verða dómar- arnir þjóðkunnir? Þegar litið er yfir umfjöllun fjölmiðla um refsi- ákvarðanir virðast þær því miður verulega fljótfærnislegar. Flest- um okkar hlýtur að finnast þessi mál hörmuleg og þau eru mörg hver mjög erfið í meðförum sér- staklega fyrir aðila málsins en einnig þá sem með þau fara. Sakfelling og refsiákvörðun Saksóknarar hleypa miklum hluta þessara mála réttilega aldrei til dómstólanna því sjálf meðferð málsins reynir mikið á þolendur þessara brota og niðurstaða sem ekki er í samræmi við væntingar hlýtur eðli málsins samkvæmt að virka sem niðurlæging, þótt svo eigi alls ekki að vera. Ástæðan fyrir ákvörðun saksóknarans er einfaldlega sú að hann sér ekki horfur á að sönnun takist fyrir sekt kærða. Í þeim málum sem höfðuð eru tekst sönnunin hins vegar oftast og mat saksóknar- anna því að öllum líkindum í nokk- uð góðu lagi. Ljúki máli með sakfellingu er komið að ákvörðun refsingar. Þótt lagaákvæði séu um til hvers eigi að líta við refsinguna, bæði um rammann sem um hana gildir svo og almenn ákvæði sem eiga við um allar refsingar, er hún komin undir nokkru mati dómara. Hér er að mörgu að hyggja. Fyrst er til þess að líta að ekki verður gerð refsing fyrir annað og alvarlegra brot en dómurinn telur sannað. Í umfjöllun manna um þessi mál er þess oft ekki gætt að þau eru mjög mismunandi og virðist sem ýmsir telji að sé brot sannað á annað borð eigi að ákvarða hámarksrefsingu. Æska brotamanna, langur tími frá broti og breyttar aðstæður hans geta haft áhrif á ákvörðun. Þá verða líkamsmeiðingar oft í átökum milli manna og getur það einnig haft áhrif til lækkunar. Þannig er það ekki aðeins brotið sjálft heldur einnig aðstæður brotamanns sem hafa áhrif á refsingu. Í kynferðisafbrotamálum virka sönnunarerfiðleikarnir oft á þann hátt að þótt grunur sé um alvar- legt brot sannast ekki nema mun vægara brot. Kringumstæður brota eru mjög mismunandi. Mis- vægi var lengi milli lagaákvæða þannig að brot, sem mörgum þótti jafn alvarleg, höfðu misvíða refsi- ramma. Séu refsingar við þessum brotum hér á landi bornar saman við refsingar í nágrannalöndunum virðast þær á líku róli. Þess er þó að gæta að ekkert refsilágmark gildir t.d. í Danmörku um kynferð- isafbrot og hámarkið er þar lægra fylgi ekki alvarlegar líkamsmeið- ingar afbrotinu. Þessi dönsku ákvæði eru að mínu mati gegn- særri og fullkomnari en hér gildir en hafa ekki fengist samþykkt af Alþingi. Ákvæðin hér gera það að verkum að refsingar verða hér þyngri fyrir vægustu brotin. Fyrir algengustu brot af þessu tagi virðist fullt samræmi við hin Norðurlöndin en vilji menn deila á dómarana ætti það helst að vera að fyrir sum alvarlegustu brotin sleppi menn of vel, sérstaklega hafi menn orðið sekir um ofbeldis- brot áður eða sé dæmt um fleiri brot af sama toga í einu lagi. Þyngsti dómur af þessu tagi mun vera fangelsi í 12 ár. Var þar um að ræða þrjú tilfelli í sama dómi. Tæplega hefði hann þó átt að verða mun strangari því lítill vandi er að ímynda sér enn alvarlegra brot af þessu tagi. Ósamræmi í refsingum Þegar refsingar eru ákveðnar eru fyrri dómar mjög hafðir til hlið- sjónar a.m.k. í Hæstarétti og þótt engin mál séu eins má með saman- burði draga nokkurn lærdóm af fyrri málum. A.m.k. 10 -15 síðustu árin hafa dómarar Hæstaréttar leitast við að hækka viðurlög við brotum í þessum málaflokkum. Stafaði það upphaflega meðal ann- ars af því að þeim þótti sem dregið hefði úr refsingum fyrir algeng- ustu brotin og væri hún ef til vill orðin vægari en í nágrannalönd- unum. Það verður hins vegar að gæta samræmis og fara ekki verr með einn en annan sem framið hefur líkt brot. Lögfræðingar virðast hafa nokkuð misjöfn viðhorf til þess hvernig haga eigi refsingum og hafa hæstaréttardómarar ekki alltaf verið sáttir við úrlausnir sumra héraðsdómara. Hefur þeim virst sem of mikils ósamræmis gæti um refsiákvarðanir þeirra og ekki sé tekið nægilegt tillit til for- dæma Hæstaréttar. Þetta heyrir samt til undantekninga. Viðhorf byggð á misskilningi Viðhorf almennings og fjölmiðla til refsinga á þessum sviðum virð- ast rýma illa við ákvarðanir dóm- stóla. Má vera að það eigi ekki rót sína að rekja eingöngu til þess að almenningur taki ekki nægilegt tillit til málavaxta og lagaákvæða um viðurlagaákvarðanir við umfjöllun um þessi brot heldur hreinlega sé um að ræða misskiln- ing um sjálfan grunn refsinga sem ákveðnar eru af dómstólum. Séu ádeilur fjölmiðlanna lesnar virðist sem lagt sé mest upp úr hefnd fyrir brotaþolann gagnvart sakborningi meðan dómararnir leggja í samræmi við norræna lagahugsun aðallega áherslu á þjóðfélagsleg varnaðaráhrif refs- inga og hugsanlega endurreisn sakborningsins svo hann haldi ekki áfram brotum og geti nýst þjóðfélaginu í framtíðinni. Aðal- atriðið sé að mál hljóti afgreiðslu og brotamaður komist ekki upp með brot sitt án afleiðinga fyrir hann. Refsitíminn skipti hins vegar ekki eins miklu máli. Ríkir þjóðfélagslegir hagsmunir séu fyrir því að koma brotamanni á rétta braut, svo hann gagnist þjóð- félaginu, geti bætt fyrir brot sitt og íþyngi ekki öðrum með hegðan sinni. Þótt það sé mannlegt og eðlilegt að þolandi afbrots og aðstandend- ur hans vilji loka brotamann inni sem lengst er uppreisn þolandans hins vegar frekar hugsuð með bótum til hans. Fjölmiðlarnir halda því að almenningi öðrum viðhorfum en almennt liggja að baki refsiákvörðunum. Má vera að hér séu að einhverju leyti að verki bandarísk áhrif eins og þau birtast í kvikmyndum. Þess er ekki gætt að bandarískt réttarkerfi byggir um sumt á öðrum grunni og kvik- myndir gefa ekki raunsanna mynd. Má um þetta rita langt og flókið mál en hér verður við þetta staðnæmst. Bætur til þolenda Mér er auðvitað ljóst að flestum finnast bætur, sem í þessu skyni eru ákveðnar til þolandans of lágar en þar ræður oftast að eingöngu er um ófjárhagslegar bætur að ræða og gögn til ákvörðunar þeirra af skornum skammti. Þegar þessar bætur eru bornar saman við bætur á öðrum sviðum í fjölmiðlum og hneykslast á samanburðinum er þess oft ekki gætt að auðveldara er í sumum öðrum málum að sýna fram á að þolandinn hafi auk ófjár- hagslegs tjóns orðið fyrir fjár- hagslegu tjóni þótt hann geti ekki sannað umfang þess. Bætur taka þá einnig mið af fjárhagslega tjóninu. Því eru fjöl- miðlarnir ekki að bera saman sam- anburðarhæfa hluti. Bætur fyrir kynferðisafbrot mættu sjálfsagt hækka að ósekju en þó er þess að gæta að brotamenn virðast sjald- an miklir borgunarmenn og inn- heimta því erfið. Betra kann að vera að innheimta einhverjar bætur en engar og takmörk eru fyrir því hversu háar bætur er rétt að hið opinbera ábyrgist. Á hið opinbera ekki frekar að lið- sinna þolendum afbrota með öðrum hætti? Tilgangslítill samanburður Samanburður milli mismunandi brotasviða sést oft í fjölmiðlum og má vera að það hafi einhverja þýð- ingu um álit manna á refsiákvörð- unum dómstóla. Almennt held ég að slíkur samanburður sé til lítils. Við sjáum því haldið fram að refsi- ákvarðanir í líkamsmeiðinga- og kynferðisafbrotamálum séu ekki í neinu samræmi við refsiákvarð- anir í fíkniefnamálum. Hér er að ýmsu að hyggja. Refs- ingar í fyrrnefnda brotafloknum eru miðaðar við brot gegn ákveðn- um einstaklingum meðan brot í þeim síðari beinast að óskilgreind- um fjölda einstaklinga og refsing- arnar verða því liður í baráttu gegn þjóðfélagslegu meini. Hvaða tilgangi það þjónar að bera refs- ingar í þessum brotaflokki saman við aðra flokka er ekki alveg ljóst ef vel er að gáð, þótt ekki sé ástæða til að draga úr ömurleika og alvarleika annarra brota og afleiðinga þeirra fyrir þá einstakl- inga sem fyrir þeim verða. Þyngstu refsingar á Íslandi eru einmitt dæmdar vegna morða, lík- amsmeiðinga- og kynferðisafbrota og fyrir alvarleg fíkniefnabrot. Ég geri mér fulla grein fyrir að orð mín hér að framan breyta tæp- ast miklu um álit almennings um refsiákvarðanir á þessu sviði en þau gætu ef til vill orðið til þess að einhverjir vönduðu umfjöllun sína betur og huguðu einnig að hvað sakfræðingar og refsiréttar- sérfræðingar segja um þessar refsiákvarðanir. Höfundur er fyrrverandi hæsta- réttardómari. Traust á dómsvaldi í skoðanakönnunum II HRAFN BRAGASON Mér er auðvitað ljóst að flest- um finnast bætur, sem í þessu skyni eru ákveðnar til þol- andans of lágar en þar ræður oftast að eingöngu er um ófjárhagslegar bætur að ræða og gögn til ákvörðunar þeirra af skornum skammti. UMRÆÐAN Skólamál Ég er skólastjóri í sjálfstætt reknum grunnskóla. Það merki- lega við það er að það eru afar fáir slíkir skólar á Íslandi. Því velti ég því mikið fyrir mér hvað það þýðir að vera í slíku hlut- verki þ.e. að vera hluti af stórri heild en samt svo- lítið utan við hana. Ég lít þó alltaf á mitt starf og minn skóla sem hluta af stóru myndinni. Sérkenni skólans míns eru að hann er ekki hverfisskóli og er ekki rekinn af hinu opinbera eins og flestir aðrir skólar. Annað sérkenni skólans míns er sú stefna sem einkennir allt kennslufyrirkomulag en það er annað mál, slíkt sérkenni hafa aðrir skólar líka. Skólar fara sem betur fer sínar eigin leiðir, leiðir sem sá mannauður sem í þeim starfar hefur ákveðið að fylgja eftir í starfi. Hið fyrrnefnda sérkenni skól- ans míns er umræðuefnið mitt. Að starfa í sjálfstætt reknum skóla þýðir í mínum huga fyrst og fremst að öðlast tækifæri til að fara sínar eigin leiðir óháð hinu almenna kerfi. Í skólanum mínum hef ég tækifæri til að skipuleggja allt skólastarf út frá ákveðnum leiðum sem fela í sér öðruvísi kennslurými, öðruvísi kennslu- hætti, öðruvísi nálgun á aga og samskipti við börn og eiginlega öðruvísi allt. Og það er svo gaman! Það er þannig að rekst- ur skóla er samfélagsmál og um það eru allir sam- mála. Það þykja almenn og viðurkennd mannrétt- indi að öll börn hafi sömu tækifæri til að stunda nám og engum mismunað í þeim efnum. Það er okkar ákvörðun að hluti af skattpeningunum okkar fer í það að mennta börnin okkar, svo einfalt er það. Stjórnvöld í landinu ákvarða um það fjármagn sem þurfa þykir í skólastarf almennt og er farið eftir ákveðnum lögum og reglum í því sambandi – gott og vel. Framlag sveitarfélaganna til sjálfstætt starfandi skóla er svo aftur annað ákvörðunarefni sem hvert sveitarfélag um sig tekur ákvörðun um en í lögum segir að slíkir skólar skulu að lágmarki fá 75% framlag með hverju barni af landsmeðaltali ef skólinn er með færri börn en 200. Túlkun sveitarfélaga er svo aftur mismunandi þ.e. hvernig þau skilgreina það sem felst í þessum lágmarksgreiðslum og þar liggur mikill vandi óleystur. Því það fjármagn sem liggur fyrir dugar ekki alla leið og það veit hver maður að skólastarf er ekki eitthvað til að græða á heldur fyrst og fremst er það áhugi kenn- ara og stjórnenda til að hafa áhrif á samfélagið með því að bjóða upp á fjölbreytilegt skólastarf. Ég velti því fyrir mér hvort vandinn geti legið í því hvernig fólk lítur á fyrirbærið sjálfstætt starfandi skóli. Í mínum huga finnst mér að allt skólasamfélagið eigi að vera í sama liðinu óháð rekstrarfyrirkomulaginu. Mér finnst líka að það ætti að teljast þeim sveitarfélögum til tekna að hafa ólík form á rekstri skóla innan sinna raða. Að það sé eftirsóknar- vert og sé litið þeim augum að um sé að ræða fjölbreyttara starf sem gefur enn meiri möguleika á að skólakerfið bjóði valkosti til að ná til allra barna og ekki síst vænt- inga foreldra. Það hlýtur að vera megin markmið okkar allra. Ég myndi vilja sjá meiri samvinnu og stuðning af hálfu sveitarfélaga í garð sjálfstætt starfandi skóla þar sem sá angi skólastarfsins er ekki litinn hornauga eða litið á slíkt framtak sem ógn við það sem fyrir er því slíkt er ekki hugmyndin á bak við það að starfa í sjálfstætt starfandi skóla. Heldur miklu frek- ar að hafa frelsi til að velja um það umhverfi sem starfað er í. Það hefur hingað til verið mikil- vægt fyrir sveitarfélög að geta boðið upp á fjölbreytilegt atvinnu- líf þar sem rekstur ýmissa aðila kemur að málum en fær að vera með í heildarpakkanum. Það er sú sýn sem ég myndi vilja sjá í hverju því sveitarfélagi sem á annað borð samþykkir sjálfstætt starfandi skóla í túninu heima. Höfundur er skólastjóri barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Að vera hluti af heildinni SARA DÖGG JÓNSDÓTTIR Samgönguráð Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin Samgönguráðuneytið Stefnumótun í samgöngum Samgönguráð efnir til sjötta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í sam- göngum. Fundarefnið að þessu sinni er: Samgöngur og byggðaþróun Ferðavenjur sumarið 2007 – Bjarni Reynarsson, skipulagsfræðingur, ráðgjafi hjá Land-ráði sf. Fjárhagsstaða hafna/vandi landsbyggðarinnar – Sveinn Agnarsson, hagfræðingur, Hagfræðistofnun HÍ Flug og byggðaþróun – Pétur Maack, fl ugmálastjóri Búferlafl utningar og samgöngubætur á Íslandi 1986-2006 – Vífi ll Karlsson, hagfræðingur, dósent við Háskólann á Bifröst Staðsetning íbúðarhúsnæðis og tengsl við verð á Stór-höfuðborgarsvæðinu – Ásgeir Jónsson, hagfræðingur, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings Umræður og fyrirspurnir Fundarstjóri er Dagur B. Eggertsson formaður samgönguráðs Fundurinn verður haldinn fi mmtudaginn 17. apríl 2008 kl. 14:30 – 17:00 á Hótel Sögu Reykjavík í salnum Harvard II. Fundurinn verður jafnframt sýndur á Veraldarvefnum á slóðinni: www.straumur.hotelsaga.is – að því búnu er valið: Samgönguráð. Aðgangur er ókeypis. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 17. apríl 2008.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.