Fréttablaðið - 11.04.2008, Síða 72
40 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Nú um helgina opnar Tunglið en staðurinn hét áður Gaukur á Stöng eða
einfaldlega Gaukurinn. Lýkur þá formlega sögu eins vinsælasta tónleika-
staðar Reykjavíkurborgar. Þar með þrengist enn og aftur að tónleika-
staðaúrvali höfuðborgarinnar. Íslenskt tónlistarlíf sveltur þegar kemur að
tónleikahaldi og nú held ég að sé lag að opinberir aðilar grípi í taumana.
Sérstaklega ætti Reykjavíkurborg að
sjá hag sinn í því að styrkja þetta
umhverfi.
Eins og staðan er í dag er tónleika-
staðaúrvalið mjög fábreytilegt í
miðborginni. Sérstaklega er ástandið
bagalegt fyrir yngri og óþekktari
listamenn sem ekki hafa bolmagn til
að spila á stöðum eins og Nasa. Staðir
sem sérhæfa sig í tónleikahaldi eru
löngu orðnir teljandi á fingrum
annarrar handar. Í raun þarf ekki
annað en að gefa fólki fingurinn og þá eru tónleikastaðirnir nær upptaldir.
Ljósið í myrkrinu í þessu öllu saman er Organ við Hafnarstræti.
Staðurinn er ekki enn orðinn eins árs gamall en hefur þegar stimplað sig
inn í íslenskt tónlistarlíf og er orðinn órjúfanleg breyta innan þess. Fólk á
nú þegar margar ógleymanlegar minningar þaðan, jafnt frá tónleikum í
miðri viku með óþekktum tónlistarmönnum sem og um helgar með
stórstjörnum. Hans helsta vandamál verður seint talið vandamál af
tónleikahöldurum. Staðurinn er nefnilega nær fullbókaður fram í miðjan
júní. Sýnir best og sannar hversu mikil þörf en umfram allt eftirspurn er
eftir tónleikastað á borð við Organ í miðborg Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg ætti núna að opna augun. Tónlistarlíf borgarinnar er
löngu orðið eitt af hennar aðalsmerkjum og hefur líklegast meiri þátt í
jákvæðri ímynd borgarinnar á erlendum vettvangi en nokkur annar
faktor. Styðja þarf við þessa grósku á beittari hátt. Tónlistar húsið verður
væntanleg vítamínsprauta fyrir íslenskt tónlistarlíf en gerir nákvæmlega
ekkert fyrir grasrótina. Ekki er einu sinni víst að þar verði pláss fyrir
aðra en heldri tónlistarmenn og snobbara. Nú þegar verið að endurskipu-
leggja miðbæ í eyðingu ættu borgarstjórnarfulltrúar að hafa tónleikastað
með í planinu. Ekki eingöngu myndi slíkt hafa góð áhrif út í senuna heldur
myndi skapast þar uppbyggilegur og heilbrigður vettvangur fyrir ungdóm
landsins.
Hjálp Reykjavíkurborg!
ORGAN Hefur sannað að hægt er að
reka tónleikastað í miðbæ Reykjavíkur.
> Í SPILARANUM
Sverrir Bergmann - Bergmann
The Breeders - Mountain Battles
The Black Keys - Attack & Release
Clinic - Do It!
Cut Copy - In Ghost Colours
SVERRIR BERGMANN CUT COPY
> Plata vikunnar
Erykah Badu - New Amerykah:
Part One (4th World War)
★★★★★
„Erykah Badu snýr aftur
með sína djörfustu og fram-
sæknustu plötu. Meistaraverk
sem vex við hverja hlustun.“
- TJ
Tvíeykið Gnarls Barkley
sló í gegn svo um munaði
með sinni fyrstu plötu St.
Else where og laginu Crazy
fyrir tveimur árum. Nú
hafa þeir Cee-Lo og Danger
Mouse sent frá sér plötu
númer tvö. Trausti Júlíusson
spáði í The Odd Couple.
Lagið Crazy með Gnarls Barkley
var eitt af lögum ársins 2006. Lagið,
sem var sungið inn í einni töku, sló
í gegn um allan heim, en vinsæld-
irnar voru sennilega mestar í Bret-
landi. Sala á niðurhali kom því í
fyrsta sæti smáskífulistans áður en
sjálf platan kom út og þar sat það í
níu vikur samfellt. Jafn lengi og
Two Tribes með Frankie Goes to
Hollywood og Bohemian Rhapsody
með Queen. Gnarls Barkley fékk
Grammy-verðlaun bæði fyrir lagið
og plötuna St. Elsewhere. Nú er
önnur platan, The Odd Couple,
komin út og þó að á henni sé fullt af
flottri tónlist er ekkert lag líklegt
til að ná sömu vinsældum og
Crazy.
Hittust á tónleikaferð
Í Gnarls Barkley mætast upptöku-
snillingurinn Brian Burton frá New
York, betur þekktur sem Danger
Mouse, og rapparinn og söngvarinn
Thomas Callaway frá Atlanta, öðru
nafni Cee-Lo Green. Danger Mouse
er þekktastur fyrir að hafa búið til
plötuna The Grey Album sem
blandaði saman The White Album
Bítlanna og The Black Album Jay-Z
og að hafa stjórnað upptökum á
annarri Gorillaz-plötunni Demon
Days. Cee-Lo var meðlimur í Atl-
anta-sveitinni Goodie Mob.
Þeir hittust árið 2003 þegar Cee-
Lo var á hljómleikaferðalagi og
Danger Mouse var plötusnúður
kvöldsins. Ári eftir voru þeir farnir
að búa til tónlist saman.
Húmorinn lykilatriði
Tónlist Gnarls Barkley er nútíma-
popp með húmorískum undirtóni.
Það má merkja áhrif meðal annars
frá soul og sýrutónlist sjöunda ára-
tugarins, tónlist spaghetti-vestr-
anna, 70’s poppi og tilraunakenndu
hip-hoppi. Húmorinn er lykilatriði
hjá sveitinni. Nafnið er útúrsnún-
ingur á nafni körfuboltasnillingsins
Charles Barkley. Aðrar hugmyndir
að nafni fyrir sveitina voru meðal
annars Bob Gnarley og Prince
Gnarles... Gnarles Barkley kemur
aldrei fram nema í búningum. Cee-
Lo og Danger Mouse hafa meðal
annars troðið upp klæddir sem
tennisleikarar, skólastrákar,
kokkar, flugþjónar, skylmingaþræl-
ar og geimfarar og sem karakterar
í Austin Powers, Galdrakarlinum
frá Oz og Star Wars.
Það er skiptir líka höfuðmáli að
skilja húmorinn í tónlistinni til að
kunna að meta hana til fulls. Hún er
sambland af nútíma, fortíð og fram-
tíð, ódýrum hljómi og dýrum, flott-
um töktum og ýktum melódíum.
Fortíðarlitað framtíðarpopp
GNARLS BARKLEY Þeir Cee-Lo og Danger Mouse koma alltaf fram í búningum á
tónleikum og klæða sig upp fyrir myndatökur. Hér er parið á leið upp að altarinu.
Cee-Lo er í kjólnum.
Ferill Cee-Lo:
■ Var meðlimur í
Atlanta-rappsveit-
inni Goodie Mob
sem var ásamt
OutKast brautryðj-
andi í Suðurríkj-
arappinu á tíunda
áratugnum.
■ Var ásamt með-
limum OutKast,
Organized Noize
o.fl. í hip-hop
súpergrúppunni
Dungeon Family
sem gaf út
plötuna Even in
Darkness (2001).
■ Gaf út sóloplöturnar Cee-Lo Green & His Perfect
Imperfections (2002) og Cee-Lo Green...Is The Soul
Machine (2004).
Ferill Danger Mouse:
■ Gerði 3 trip-hop plötur
undir nafninu Pelican City
á árunum 1999-2002.
■ Gerði plötuna Ghetto Pop
Life með rapparanum
Gemini (2003).
■ Gerði Grey Album
(2004).
■ Var með MF Doom í
dúóinu Dangerdoom sem
gerði plötuna The Mouse
& The Mask (2005).
■ Stjórnaði upptökum á
Gorillaz-plötunni Demon
Days (2005).
■ Hefur undanfarið stjórnað
upptökum á plötum,
meðal annars með The
Rapture, The Good, the
Bad & the Queen og Martina Topley-Bird.
Hvaða menn eru þetta?
CEE-LO Brautryðjandi í Suðurríkja-
rappinu á tíunda áratugnum.
NORDICPHOTOS/GETTY
DANGER MOUSE Sló í gegn
með The Grey Album fyrir
fimm árum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hljómsveitin Guns N‘ Roses hefur
loksins lokið við gerð plötunnar
Chinese Democracy. Eins og
frægt er hefur söngvarinn Axl
Rose eytt síðustu fjórtán árum í
upptökur á plötunni. Hefur
hljómsveitin orðið að
hálfgerðu athlægi í
tónlistarheiminum sökum
þess hversu seinlega
þetta hefur gengið en
nú virðast bjartari
tímar loks vera fram
undan.
Útgáfufyrirtæki
Guns N‘ Roses,
Geffen, hefur staðfest
að hljómsveitin hafi
skilað inn fullkláruðu
eintaki af plötunni. Nú standa yfir
viðræður um peninga og réttinda-
mál við Rose. Hermt er að gerð
Chinese Democracy hafi kostað
þrettán milljónir dollara, eða
tæpan milljarð íslenskra króna.
Þegar hefur komið fram að
unnið er að gerð raunveru-
leikaþáttar um Guns N‘ Roses.
Stefnt er að því að hann fari í
loftið á sama tíma og platan
kemur út.
Plata Guns N‘ Roses tilbúin
LOKSINS, LOKSINS Axl Rose hefur
skilað Chinese Democracy eftir
fjórtan ára vinnu.
SMÁRALIND
VORÚTSALA
40-60%
AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM