Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 74
42 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> LOHAN FÆKKAR FÖTUM
Hollywood-stjarnan Lindsay Lohan
ætlar að fækka fötum í nýrri kvik-
mynd. Með þessu vill hún láta
taka sig alvarlega sem leikkonu.
Framleiðendur myndarinnar
Florence vildu að Lindsay kæmi
fram berbrjósta í myndinni. Það
kom þeim mikið á óvart þegar
hún sagðist tilbúin að koma al-
gjörlega nakin fram.
Sigríður Melrós Ólafsdóttir
myndlistarkona sýnir verk
sín á tveimur stöðum. Í Lista-
safni Árnesinga er að finna
myndir hennar af föngum á
Litla-Hrauni, en í Listasafni
Reykjanesbæjar er súludans-
mærin Lísa í brennidepli.
„Þetta er allt raunverulegt fólk,“
útskýrir Sigríður Melrós, sem tekur
þátt í tveimur sýningum þessa dag-
ana. Í Listasafni Árnesinga í Hvera-
gerði má sjá afrakstur heimsóknar
hennar á Litla-Hraun fyrir um ári
síðan. „Ég byrjaði á því verkefni
vegna sýningar sem ég tók þátt í í
fyrra. Hún hét indigo, og það er
dimmasti litur litrófsins. Ég fór að
reyna að finna einhvern flöt á þessu
dimma, nóttinni og fjarlægðinni, og
þá komu fangar upp í hugann,”
útskýrir Sigríður, sem hélt því á
Litla-Hraun. „Það var ofsalega
gaman. Þeir tóku mjög vel á móti
mér og voru alveg til í að vera fyrir-
sætur fyrir mig. Ég myndaði þá í
bak og fyrir og vann svo myndir,
dúkristur og tréristur. Það eru alveg
um tuttugu, þrjátíu fangar sem rata
á sýninguna,” segir Sigríður.
Fyrirsætur hennar af Litla-Hrauni
hafa sýnt mikinn áhuga á gangi mála,
og sumir hverjir beðið um boðskort á
sýningar. „Ég hef ekki fylgst með því
hvort þeir hafa komið á sýningar, en
það eru eflaust einhverjir. Þeir fá
einhver leyfi og svo sitja þeir ekki
allir inni lengur.“
Sigríður vinnur gjarnan með þjóð-
félagshópa, og þegar hún hafði sagt
skilið við fanga á Litla-Hrauni lang-
aði hana helst að taka fyrir konur í
kvennafangelsi. „Þær voru hins
vegar ekki eins áhugasamar og karl-
arnir, svo þá þróaðist hugmyndin út í
súludansmeyjar,“ útskýrir Sigríður.
Hún segir það þó hafa reynst nokkuð
erfitt að nálgast þann þjóðfélagshóp.
„Ég fór á fund nokkurra dansmeyja,
og þeim fannst þetta mjög framandi
og skrýtið brölt á mér. Svo komst ég í
samband við hana Lísu, súludansmey,
indælis konu, og mér fannst hún svo
áhugaverð að ég einbeitti mér bara
að henni,“ segir hún. Lísa er reyndar
dulnefni, þar sem súludansmærin
vildi ekki láta nafns síns getið.
Myndirnar af Lísu má sjá á sýn-
ingunni Ljósmyndin, ímyndin, por-
trettið, í Listasafni Reykjanesbæjar.
Myndir af föngunum má hins vegar
sjá í Listasafni Árnesinga, á sýning-
unni Er okkar vænst? Leynilegt
stefnumót í landslagi. Þar verður
Sigríður Melrós með listamanna-
spjall næstkomandi sunnudag klukk-
an 15. Báðar sýningar standa til 4.
maí. sunna@frettabladid.is
Fangar og súludansarar á listsýningum
VINNUR MEÐ ÞJÓÐFÉLAGSHÓPA Sigríður
Melrós Ólafsdóttir fjallar gjarnan um þjóð-
félagshópa og hefur upp á síðkastið unnið
með föngum af Litla-Hrauni og súludans-
mærinni Lísu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Nýjasti diskur Sverris Bergmans, Bergmann, er væntanlegur í
búðir eftir tvær vikur. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum var
það knattspyrnukappinn Eiður Smári Guðjóhnsen hjá Barcelona
sem kostar gerð hans og að sögn Sverris fær hann haug af
eintökum á allra næstu dögum fyrir ómakið. Og því ekki ólíklegt
að rödd Sverris fái að hljóma á æfingasvæði stórliðsins Barce-
lona þar sem snillingar á borð við Ronaldinho og Messi leika listir
sínar. „Þeir eru nú alltaf með einhverja tónlist í
eyrunum fyrir leiki sína og það eru þarna eitt
eða tvö lög sem gætu komið þeim í rétta
gírinn,“ segir Sverrir, sem gerði sér þó engar
háleitar vonir um að eftirspurnin yrði
gríðarleg frá stórstjörnum katalónska
knattspyrnuveldisins. „Kannski að maður
fái bara áritað eintak til baka,“ bætir Sverrir
við.
En það er ekki bara plötuútgáfa sem á hug
Sverris allan því hann hefur sett á
laggirnar fyrirtæki til að
halda utan um allt sitt
hafurtask, söng, tölvuleikja-
umfjöllun í sjónvarpi og ekki
síst dans. En unnustan
Sigrún Blomsterberg er
meðal fremstu dansara
þjóðarinnar. Sverrir
útilokaði ekki að þau
skötuhjú gætu hrein-
lega sett á laggirnar
dansfyrirtæki enda
er hann, að eigin
sögn, alveg sæmi-
lega fótafimur. - fgg
Syngur Barcelona í stuð
NÝJASTI DANSKENNAR-
INN Sverrir Bergmann
útilokar ekki að fara
að kenna dans með
unnustu sinni, Sigrúnu
Blomsterberg.
SÚLUDANSMÆRIN LÍSA Sigríð-
ur segir þær súludansmeyjar
sem hún hitti hafa verið efins
um samvinnu, þangað til hún
hitti Lísu.
Í kvöld kl. 20 – Uppselt
Sunnudaginn 13. apríl kl. 20 – Uppselt
AUKASÝNING: Þriðjudaginn 15. apríl kl. 20
MIÐAVERÐ: 1.000 KR.
www.opera.is
Niðurstöður úr kosningum meðal meðlima
áhugamannasamtakanna OGAE, í hinum
ýmsu löndum Evrópu, spýtast nú út. Í
gegnum atkvæðagreiðslu raða liðsmenn
Eurovision-lögum ársins í sæti, sam-
kvæmt hinu hefðbundna Eurovision-
kerfi. Vinsælasta lagið fær þannig 12
stig frá klúbbnum, það sem fær næst-
flest atkvæði hlýtur 10 og þar fram
eftir götunum. Átta OGAE-klúbbar
hafa nú kynnt niðurstöður sínar, en þar
hefur Charlotte Perelli frá Svíþjóð afger-
andi forystu. Hún trónir á toppnum með
87 stig, en á hæla hennar fylgir Paolo
Meneguzzi fyrir Sviss – eins og hann gerði
þegar einungis Spánn og Belgía höfðu
kynnt niðurstöður sínar. Sex af átta klúbb-
um hafa gefið Perelli 12 stig, svo það er
ekki nema von að hún hafi ágætis forskot.
Eurobandinu og Íslandi hefur hins
vegar vegnað alveg hreint ágætlega í
áhugamannakosningunum enn sem komið
er. Í flestum tilvikum hefur lagið This Is
My Life hlotið stig eða verið mjög skammt
frá því. Það vermir sem stendur 8. sæti
með 27 stig, en enn eru 17 lög atkvæða-
laus með öllu.
Auk Svíþjóðar og Sviss skipa Armenía,
Úkraína og Portúgal efstu fimm sætin á
stigatöflunni.
Ísland í 8. sæti í kosningu Eurovision
GOTT GENGI Íslandi vegnar alveg hreint ágæt-
lega í kosningum áhugamanna um Eurovision
í Evrópu um bestu lögin, og vermir nú áttunda
sætið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
42 DAGAR TIL STEFNU