Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 82
50 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
UNDANKEPPNI EM 2010
1. styrkleikaflokkur: Ísland, Frakk-
land, Þýskaland, Króatía, Spánn, Pól-
land, Rússland.
2. styrkleikaflokkur: Slóvenía, Nor-
egur, Ungverjaland, Svíþjóð, Serbía,
Tékkland, Úkraína.
3. styrkleikaflokkur: Slóvakía, Sviss,
Portúgal, Hvíta-Rússland, Rúmenía,
Litháen, Makedónía.
4. styrkleikaflokkur: Grikkland,
Bosnía, Lettland, Holland, Ísrael, Svart-
fjallaland, Eistland.
5. styrkleikaflokkur: Finnland, Búlg-
aría, Ítalía, Tyrkland, Belgía, Kýpur,
Lúxemborg.
6. styrkleikaflokkur: Georgía, Molda-
vía, Færeyjar.
HANDBOLTI Eftir viku verður
dregið í riðla fyrir EM í hand-
bolta 2010 sem fram fer í
Austurríki.
Undankeppni EM er með
talsvert breyttu sniði frá því sem
áður var. Í stað umspilsleikja
verður dregið í sjö riðla og spilað
heima og heiman líkt og fólk
þekkir úr fótboltanum.
Þrír riðlar verða með sex liðum
og fjórir riðlar með fimm liðum.
Tvö efstu lið í hverjum riðli
komast síðan á EM.
Frakkland, Þýskaland, Króatía
og Spánn verða í fimm liða riðlum
og Ísland þar af leiðandi í sex liða
riðli.
Ísland er engu að síður í efsta
styrkleikaflokki ásamt sex öðrum
þjóðum og sleppur því við að
mæta flestum af bestu liðum
álfunnar. Austurríki og Danmörk
taka ekki þátt í undankeppninni.
Austurríki fær þáttökurétt sem
gestgjafi en Danmörk er núver-
andi Evrópumeistari. - hbg
EM í handbolta:
Ísland í efsta
styrkleikaflokki
Í EFSTA STYRKLEIKAFLOKKI Ísland og
Spánn eru bæði í fyrsta styrkleikaflokki.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Markverð-
inum Árna Gaut
Arasyni líkar lífið í
Suður-Afríku en
hann spilar sinn
fyrsta deildarleik
með Thanda Royal
Zulu um helgina.
Hann hefur þó
ekkert ákveðið hvað
hann gerir þegar
tímabilinu lýkur í lok
maí.
Árni Gautur yfirgaf
norska félagið Vålerenga í
lok nóvember á síðasta ári
og var þá í kjölfarið
orðaður við fjölmörg félög í
efstu deildunum á Norður-
löndum en ákvað hins vegar
skrifa undir skammtímasamning
til loka maí við Thanda Royal Zulu,
sem leikur í úrvalsdeildinni í Suður-
Afríku.
Bróðir Eriksson er aðstoðarþjálfari liðsins
„Umboðsmaðurinn Ólafur Garðarsson lét
mig vita af þessu dæmi en hann var í
sambandi við sænskan umboðsmann sem
þekkir til sænskra eigenda Thanda Royal
Zulu. Johan Eriksson, bróðir Sven-Göran
Eriksson stjóra Manchester City, er
aðstoðarþjálfari liðsins og hugmyndin er
held ég sú að Thanda Royal Zulu verði að
hluta til eins konar uppeldisfélag fyrir
City í framtíðinni,“ sagði Árni Gautur en
honum líst vel á aðstæður hjá félaginu.
„Þetta hefur allt verið til fyrirmyndar
hingað til hjá Thanda Royal Zulu og ég er
búinn að leika tvo æfingarleiki sem hafa
báðir unnist og mér líður í þokkabót bara
mjög vel í Durban, sem er skemmtileg
ferðamannaborg með strönd og öllu
tilheyrandi,“ sagði Árni Gautur, sem er
samningsbundinn liðinu út keppnis-
tímabilið í ár og er ekki búinn að
ákveða hvað hann gerir í framhald-
inu.
Óvissa með framhaldið
„Það eru sjö leikir eftir af tímabilinu í
Suður-Afríku og Thanda Royal Zulu er
sem stendur í
fjórtánda sæti af
sextán liðum, en
eitt lið fellur beint
úr deildinni og
næsta lið þar fyrir
ofan fer í umspil.
Markmiðið hjá félaginu
er að bjarga sér frá falli og
stefna svo hærra á næsta
ári. Ég ætla að sjá til
hvernig þetta gengur
í ár og halda
möguleikum
mínum opnum,“
sagði Árni Gautur,
sem stefnir á að
leika áfram
erlendis þrátt
fyrir orðróm
þess efnis að
hann muni
snúa aftur til ÍA næsta sumar.
„Maður getur náttúrlega aldrei útilokað
neitt en fyrsti kostur hjá mér er að leika
áfram erlendis og hvort það verður í Suður-
Afríku eða ekki kemur í ljós,“ sagði Árni
Gautur, sem gefur enn kost á sér í íslenska
landsliðið.
„Málið var náttúrlega að ég myndi finna
mér lið og byrja að spila reglulega aftur og
núna er ekkert til fyrirstöðu með það að gera
og ég gef því kost á mér í landsliðið,“ sagði
Árni Gautur að lokum. omar@frettabladid.is
Skemmtileg ferðamannaborg
með strönd og öllu tilheyrandi
Árni Gautur Arason kann vel við sig hjá Thanda Royal Zulu í Durban í Suður-Afríku og vonast til þess að
leggja sitt af mörkum til þess að bjarga félaginu frá falli. Hann er samningsbundinn þar til loka maí og
stefnir á að spila áfram erlendis en kveður allt óráðið eftir það. Hann gefur enn kost á sér í landsliðið.
ÁNÆGÐUR Árni Gautur Arason er ánægður með
ákvörðun sína að spila með Thanda Royal Zulu
í úrvalsdeildinni í Suður-Afríku og útilokar ekki
að taka annað tímabil með félaginu. Núverandi
samningur hans rennur út í lok maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FERILL ÁRNA GAUTS
1994-96 ÍA
1997 Stjarnan
1998-2003 Rosenborg (Noregur)
2004 Manchester City (England)
2004-2007 Vålerenga (Noregur)
2008-? Thanda Royal Zulu (S-Afríka)
SÍÐASTI LANDSLEIKURINN Árni Gautur hefur ekkert spilað með landsliðinu
síðan í tapinu gegn Dönum á Parken. FRÉTTABLAÐIÐ/NYHEDSAVISEN