Fréttablaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 8
8 13. apríl 2008 SUNNUDAGUR
ÍTALÍA, AP Síbrúnt andlit hins 71
árs gamla Silvio Berlusconi ber
merki hinna ófáu fegrunarað-
gerða sem á því hafa verið gerðar
og hann gengur með gangráð í
kosningabaráttunni. Hann hefur
sætt lögsóknum, ásökunum um
misbeitingu valds og hagsmuna-
árekstra og vanhugsuð ummæli
hans hafa ítrekað valdið úlfúð
innan sem utan Ítalíu. Í þau tvö
skipti sem hann þjónaði sem for-
sætisráðherra olli hann þjóðinni
vonbrigðum með því að senda
hermenn til Íraks og setja lög
sem gagnrýnendur sögðu sér-
hönnuð til að forða því að hann
yrði dæmdur í fangelsi.
Þrátt fyrir allt þetta bendir
flest til að hann sé í þann mund að
komast aftur til valda, en Ítalir
ganga að kjörborðinu á morgun
og mánudaginn.
Hægriflokkafylkingin að baki
Berlusconi, Frjáls þjóð (Il Popolo
della Liberta), sem stofnuð var að
hans frumkvæði með þessu nýja
nafni í desember síðastliðnum,
mældist í síðustu skoðanakönn-
ununum sem heimilt var að birta
fyrir kosningarnar með nokkurra
prósentustiga forskot á höfuð-
keppinautinn, Lýðræðisflokkinn,
undir forystu hins vinsæla fyrr-
verandi borgarstjóra Rómar,
Walter Veltroni. Það sem veldur
þó mikilli óvissu um úrslitin er að
hálfum mánuði fyrir kosningar
mældist fjöldi óákveðinna enn
um þriðjungur.
Stjórnmálaskýrendur gefa þá
skýringu á þessari lygilegu endur-
komugetu Berlusconi að burtséð
frá hinum þekktu persónutöfrum
hans og því hve vel hann nýtur
sín í sviðsljósinu, þá höfði ferill
hans frá skemmtikrafti á
skemmtiferðaskipum til auðjöf-
urs og síðan stjórnmálamanns til
venjulegra Ítala með sérstökum
hætti. Hann endurspegli þeirra
eigin drauma, veikleika, ástríður
og galla.
Maðurinn sem vonast til að slá
Berlusconi við er hins vegar allt
sem hann er ekki: varkár í orð-
færi og hæverskur í háttum.
Hann leggur sig fram um að sætta
ólík sjónarmið og sameina fólk,
ólíkt mótherjanum sem skeytir
iðulega lítið um álit annarra.
Óvinsældir miðju-vinstristjórnar
Romanos Prodi háði Veltroni
einkum framan af kosningabar-
áttunni, en honum tókst þó að
vinna upp nokkuð af mældu for-
skoti Berlusconis.
audunn@frettabladid.is
Berlusconi
býst til að taka
við völdum
Bannað er að birta skoðanakannanir síðasta hálfa
mánuðinn fyrir þingkosningar á Ítalíu, sem fara
fram í dag og á morgun. Áður en birtingarbannið
tók gildi sagðist þriðjungur kjósenda óákveðinn.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FANGELSISMÁL Sérsveit fangavarða
á Litla-Hrauni og lögreglumenn
frá embætti lögreglustjórans á
Selfossi héldu sameiginlega verk-
lega æfingu fyrir helgi.
„Æfingin gekk mjög vel en sett
voru á svið tilvik sem komið geta
upp í fangelsum þar sem nauðsyn-
legt er að grípa inn í atburðarás
og tryggja öryggi starfsmanna
fangelsa og fanga,“ segir Páll
Winkel, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar. Hann bætir við að sér-
sveitin hafi þessa vikuna verið við
sérstakar æfingar en ákveðið hafi
verið fyrir nokkru að efla hana og
gera æfingar markvissari. „Við
erum mjög ánægðir með sam-
starfið við lögreglustjórann á Sel-
fossi en samstarf fangelsisyfir-
valda og þess embættis hefur
verið aukið að undanförnu, meðal
annars í fíkniefnamálefnum,“
útskýrir forstjóri Fangelsismála-
stofnunar. „Samstarf Fangelsis-
málastofnunar við lögreglu er
mjög mikilvægt og leggjum við
áherslu á að auka það á öllum
sviðum.“
„Þetta hefur fyrst og fremst þá
þýðingu að menn geta haft meiri
kraft til að bregðast við ef eitt-
hvað fer úrskeiðis til dæmis í
fangelsinu,“ segir Ólafur Helgi
Kjartansson, lögreglustjóri á Sel-
fossi. - jss
SÉRSVEIT FANGAVARÐA Sérsveit fanga-
varða á Litla-Hrauni og lögreglumenn frá
embættinu á Selfossi héldu sameigin-
lega æfingu.
Aukin samvinna milli Fangelsismálastofnunar ríkisins og lögreglunnar á Selfossi:
Fangaverðir og lögregla æfa
VOGAR Nýtt vatnsból í sveitar-
félaginu Vogum var vígt í síðustu
viku. Í bígerð er að breyta
aðalskipulagi Voga og lenti gamla
vatnsbólið inni í miðbæjarskipu-
lagi. Brugðist var við með færslu
vatnsbólsins, nýrri dælustöð og
stofnlögn frá henni.
Hitaveita Suðurnesja (HS) og
Stofnfiskur gerðu með sér
samning um aðgang HS að
tveimur ferskvatnsbólum
Stofnfisks við Vogavík og fékk
HS heimild til byggingar dælu-
húss og lagningar pípu til
tengingar við stofnkerfi Vatns-
veitu Voga. Unnt er að dæla
ferskvatni til Stofnfisks. - kg
Sveitarfélagið Vogar:
Nýtt vatnsból
vígt í Vogum
F54110408 FANGAVERÐI
1. Hvað heitir Íslendingurinn
sem í fyrrakvöld var dæmdur í
sjö ára fangelsi í Færeyjum?
2. Hvaða samkynhneigði
bandaríski tónlistarmaður
heldur tónleika í Háskólabíói í
kvöld?
3. Hvaða lið tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
karla á föstudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
VEISTU SVARIÐ?