Fréttablaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 18
VERSLUN SÆLKERANS LUMMUR 5 dl hveiti 4 msk. sykur 4 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 6 msk. bragðlítil olía/smjörlíki 5 dl súrmjólk/mjólk (gott að blanda til helminga) 2-3 egg Blandið þurrefnunum saman í skál. Gott að þeyta það sem fljótandi er. Blandið svo því þurra og blauta saman þar til það hefur jafnast vel. Hitið pönnukökupönnuna vel og bakið lummurnar, fyrst á annarri hliðinni þar til þær eru orðnar þurrar í gegn og svo í skamman tíma á hinni hliðinni. Rjóðið örlítilli olíu á pönnuna ef lummurnar festast við. Hægt er að baka banana með eins og lýst hefur verið. Þegar við vorum krakkar voru lummur mikið bakaðar og nýtnin mikil. Ef afgangur varð á mat var hann nýttur,“ rifjar Jens Pétur Clausen upp, en hann er mikill áhugamaður um lummur. „Hrís- grjónagrautur var aðaluppistaðan í lummum í gamla daga. Þá var algengt að setja rúsínur út í deigið áður en það var bakað og mikið notað af smjörlíki, sem var brætt á pönnu og bætt út í. Mikill sykur var svo notaður ásamt vanillu og/eða kardimommudropum. Því fleiri sem eggin urðu, því betri urðu lummurnar, sem voru bakaðar löðrandi í smjöri og strásykri stráð yfir, oft milli laga. Einnig þótti gott að nota sultu ofan á lummurnar. Rabar- barasulta var yfirleitt til heima.“ Áhuginn fyrir lummunum virðist ekki hafa dvínað með árunum þar sem Jens skellir í lummur eftir þörfum, bæði fyrir barnabörn og gesti sem kom með stuttum fyrirvara. Mest hefur hann bakað úr þremur lítrum af deigi, en náði þó ekki sjálfur að gæða sér nema á einni lummu, svo góðar þóttu þær. Jens viðurkennir að hafa gert nokkr- ar breytingar á deiginu í takt við tíðar- andann. Meðal annars skipt út smjör- líki, sem þykir ekki lengur eins hollt og áður, fyrir matarolíu og notað súr- mjólk. Svo hefur hann gert ýmsar til- raunir með deigið; skorið niður banana og þrýst skífunum í lummurnar, meðan þær bakast öðrum megin, og bakað bananann með þegar þeim var snúið við. Hann bendir á að eins sé gott að stífþeyta eggjahvítur og blanda þeim varlega við deigið vilji maður léttari lummur. ÍSLENSKT, JÁ TAKK! Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar Bráðum kemur betri tíð. Með blóm í haga. Kartöflum í görðum. Jarðarberjum í beðum. Silungi í vötnum. Kátum kúm á túnum. Og sprækum lömbum í haga. Blómatími íslenska náttúrueldhússins, með ferskum keim af öllu sem þaðan kemur og sýnir hina hliðina á matarteningi lýðveldisins, þegar súrmatur og sviðakjammar lúta í lægra haldi í matreiðslu- bókum húsfreyja. Íslenskur matur geymir bragð af frelsi. Barnslegri gleði. Og líka ósvikinni hamingju. Fátt er fegurra en íslenskt sumarsalat á blóm- legum dúk undir berum himni eða silkimjúkur skyrtoppur skreyttur nýtíndum jarðarberjum í rjómalituðu baði, og víst að lofandi angan af íslensku lambakjöti og nýuppteknu grænmeti á grillhlóðum sumarkvölda stenst enginn. Sumardagurinn fyrsti er handan við hornið og fram undan örstutt, skærbjart og unaðslegt sumar á ísaköldu landi. Höfum hugfast að lífið er stutt og njótum hverrar stundar. Sumarið sem koma skal fáum við aldrei aftur upplifað, frekar en sumrin þar á undan. Íslendingar njóta þess að naumt skammtaðir sumardagar eru lengri hér en víðast hvar í veröld- inni, þótt stundum vori seint og hausti snemma. Lifum því hvern dag af spenningi yfir því að vera til og leyfum okkur að verða ástfangin og eirðarlaus af girnd í íslensk hlaðborð og óvænt tilefni sumarsins, eins og árstíðin beinlínis kallar á. Hver einasti sumardagur er ævintýr og alltaf tilefni til að gleðjast og gera sér glaðan dag með ástvinum, sem og sjálfum sér. Gerum sumarmánuðina fram undan frjósama í matseldinni. Verum þjóðleg í júní og köllum vini saman yfir brauðsúpu, sykruðum lummum og flatkökum með hangikjöti. Notum alþjóðlega gaffla í matargerð sólmánaðar þegar við gæðum okkur á spriklandi fiski úr íslensk- um sjó og setjum punkt yfir i-ið með heimsborgara- legum útfærslum skyrs í ábæti. Njótum svo uppskeru úr íslenskri foldu í ágúst, með litríkum berjum, bragðmiklu grænmeti og dýrindis kjöti af fjöllum. Hugmyndirnar eru óþrjótandi, enda matarkistan ríkuleg og stoltvekjandi fyrir heimili og gestgjafa vorrar þjóðar. Borðum sem oftast íslenskan mat í vor og sumar. Það toppar ekkert eigin heimanmund þar. matur kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Emilía Örlygsdóttir, emilia@ frettabladid.is og Roald Eyvindsson, roald@frettabladid.is. Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Klara Kristín Arndal, Mikael Marínó Rivera, Ragnheiður Tryggvadóttir, Rut Hermannsdóttir, Vera Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir. Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Stefán P. Jones spj@frettabladid.is SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: A Aðal-réttur E Eftir-réttur Til hátíða-brigða Hvunndags og til hátíðabrigða MATREIÐSLUBÓKIN Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? er leiðarvísir ætlaður foreldrum sem eru að byrja að gefa börnum sínum fasta fæðu. Í bókinni er að finna ýmsar ráðlegg- ingar og svör við mörgum þeim spurningum sem vakna hjá foreldrum þegar kemur að þessum áfanga á vaxtar- skeiði barnsins. Hún inniheldur meðal annars ítarlegan lista yfir hve- nær börn mega byrja að borða vissar fæðuteg- undir, leiðbeiningar í meðhöndlun ávaxta og grænmetis ásamt fjölda mynda. Uppskriftir bókar innar eru margvís- legar, þar er að finna margar einfaldar og góðar uppskriftir að barnamat, hollum mat fyrir alla fjölskylduna og fyrir matvönd kríli. Höfundur bókarinnar, Ebba Guðný Guð- mundsdóttir, er kennari að mennt. Hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir um fimm árum og bókin er afrakstur þeirra upplýsinga og uppskrifta sem hún safnaði um mat og heilsu barna á þeim tíma. Hollt í litla gogga Lokkandi ilmur ÚR ELDHÚSINU Jens Pétur Clausen bifvélavirki er sérfræðingur í lummugerð. Jens Pétur Clausen lumar á skemmtilegri lummu - uppskrift. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Lummur með banönum eru vinsælar hjá barna- börnum Jens. Sulta er góð ofan á lummur. Fiskur Hvunndags 2 matur Sælkeraverslun Friðriks V er til húsa í kjallara veitingastaðarins Friðriks V að Kaupvangsstræti 6 á Akureyri. Verslunin er líkt og veitingastaðurinn rekin af hjónunum Friðriki Val Karlssyni og Arnrúnu Magnúsdóttur. Í sælkeraversluninni er boðið upp á úrvalshráefni til sælkeragerðar frá framleiðendum í héraði. Þar er veglegt fisk- og kjötborð en auk þess ostaborð, sultur og súkkulaði frá Hafliða Ragnars- syni. Hægt er að panta smærri veislur eins og til dæmis smárétti til að taka með sér og eru fagmenn reiðubúnir að veita viðskipta- vinum ráðleggingar við veisluhöld og matargerð. Einnig er boðið upp á innfluttar gæða- vörur eins og olíur, ólífur og fleira sem tilvalið er að setja í gjafakörfur sem fást í versluninni. Í tengslum við sælkeraverslunina er rekinn hádegisverðarstaður þar sem hægt er að fá súpu og rétt dagsins alla virka daga. Á föstudögum er nýtt sushi til sölu og á laugardögum er boðið upp á mjólkurgraut á milli klukkan 13 og 14. Sælkeraverslun Friðriks Nammi namm!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.