Fréttablaðið - 13.04.2008, Page 10
10 13. apríl 2008 SUNNUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
Músarhjarta
ríkisstjórnarinnar
Í gær urðu þau tíðindi að bankastjórn Seðlabanka Íslands ákvað enn að hækka stýrivexti bankans. Þar
með eru stýrivextir hér á landi orðnir þeir hæstu sem
þekkjast hjá nokkru vestrænu ríki.
Við ákvörðun sína hafði Seðlabankinn til hliðsjónar
þær horfur að verðbólgan muni enn aukast á næstu
mánuðum. Telur Seðlabankinn ekki unnt að ná
verðbólgumarkmiðinu fyrr en síðari hluta árs 2010, ári
síðar en bankinn spáði í nóvember sl.
Við búum í dag við opið fjármálakerfi sem er
nátengt erlendum fjármálamörkuðum og því má velta
fyrir sér hvort með þessari ákvörðun hafi síðasti
kaflinn í sögu íslensku krónunnar í óbreyttri mynd
verið skrifaður.
Óábyrg efnahagsstjórnun
Í ríkisstjórnartíð okkar framsóknarmanna ríkti hér
mikið góðæri sem sást m.a. í tugprósenta kaupmáttar-
aukningu almennings. Allir vissu hins vegar að sá
uppgangstími myndi ekki vara að eilífu. Í fyrrasumar
gaf Seðlabankinn þannig út spá þar sem greint var frá
versnandi verðbólguhorfum og líkum á gengislækkun
íslensku krónunnar. Þá vöruðu margir við versnandi
horfum á alþjóðlegum mörkuðum með tilheyrandi
afleiðingum.
Það var m.a. af þessum sökum sem við framsóknar-
menn lögðum til mikla varfærni við síðustu fjárlaga-
gerð. Ríkisstjórnin skellti skollaeyrum við þeim
varnaðarorðum og jók útgjöld ríkissjóðs um 20% á
milli ára. Í stað þess að hægja á og ná mjúkri lendingu
til að undirbyggja taktinn fyrir næstu uppsveiflu voru
skilaboðin þau að áfram skyldi keyrt á fullri ferð –
sem óhjákvæmilega getur endað með harkalegum
skelli. Afleiðingarnar eru nú að koma fram.
Sökum hins alþjóðlega fjármálakerfis hefur vandi
sem hófst í Bandaríkjunum einnig numið land hér á
Íslandi. Fyrir vikið er aðgengi að lánsfé torsótt,
krónan hefur fallið, verðbólga fer vaxandi og
Seðlabankinn bregst við með hækkandi stýrivöxtum.
Á meðan situr ríkisstjórnin hjá og segir pass – og er
það aðgerðarleysi farið að vekja heimsathygli.
Kjarkur ríkisstjórnarinnar er svo sannarlega ekki í
takt við stærð stjórnarflokkanna. Búkurinn kann að
vera stór en hjartað er líkt og í lítilli mús.
Hvernig á að bregðast við?
Mikilvægt er að bregðast hratt við svo hjól atvinnu-
lífsins stöðvist ekki. Ríki og sveitarfélög þurfa að
skapa rými til þess með því að gera með sér
hagstjórnarsamning um að draga úr framkvæmdum
um nokkurra mánaða skeið en vera tilbúin að gefa
aftur í ef aðstæður breytast. Með því væri mögulegt
að koma til móts við þarfir atvinnulífsins og
heimilanna, til að mynda með því að fella niður
stimpilgjöld ásamt því að lækka álögur á bensín og
olíu tímabundið. Þetta þarf að gera í vel ígrunduðum
áföngum sem taka mið af raunaðstæðum. Samhliða
þarf að efla verðlags- og verðmerkingareftirlit,
Samkeppniseftirlitið og Fjármálaeftirlitið. Þá er
mikilvægt að ríkisvaldið geri samkomulag um
lánalínu í erlendri mynt til þess að efla gjaldeyris-
forða Seðlabankans og miðla gjaldeyri í gegnum
fjármálakerfið til innlendra þarfa.
Trúverðugleiki
skiptir öllu
Miklar blikur eru nú á lofti í efnahagsmál-um. Við erum nú að súpa seyðið af efnahags-
legu ójafnvægi undanfarinna ára, þegar saman
fóru miklar stóriðjuframkvæmdir, mikið inn-
flæði ódýrs fjármagns og skattalækkanir. Lækkun
skatta í miðri ofþenslu 2006 og 2007 verður óbrot-
gjarn minnisvarði um þann algera skort á efna-
hagslegri sýn, sem einkenndi síðustu ríkisstjórn.
Hvað sem annars má segja um Framsóknarflokk-
inn er hann trúr sinni vitlausu sýn á efnahags-
málin, enda vill hann nú á sama tíma lækka vexti
hratt og byggja tvö álver. Þótt við getum ekki
glaðst yfir mörgu í efnahagsmálum þessa dagana
er þó alla vega fagnaðarefni að Framsókn er ekki
í aðstöðu til að hrinda þessari skelfingarstefnu í
framkvæmd.
Skuldadagar
Yfirlýsingar Seðlabankans á fimmtudag hafa
vakið nokkurn ugg, enda var þar dregin upp mjög
dökk mynd af því aðlögunarferli sem framundan
er. Auðvitað er mikilvægt allra hluta vegna að
heimili og fyrirtæki sýni meira aðhald í útgjöldum
á næstunni, en við verðum líka að gæta þess að
draga ekki mátt úr fólki. Markaðurinn hafði
greinilega búist við tilkynningum um viðbrögð
Seðlabankans við lausafjárþurrð á mörkuðum, en
þær létu á sér standa.
Efnahagsvandinn sem við glímum við nú á sér
margar orsakir. Við höfum keypt meira af erlendri
vöru en við höfðum ráð á, vegna þess að gengi
krónunnar var óeðlilega hátt. Því tókum við ódýr
lán og keyptum erlenda neysluvöru – bíla, felli-
hýsi eða hvaðeina. En verðmætasköpunin stóð
ekki undir þessum kaupmætti og því er komið að
skuldadögum.
Skýr skilaboð
Smæð gjaldmiðilsins er ein höfuðástæða þess
hversu illa er nú komið í efnahagslífinu. En
gjaldmiðillinn er líka sjálfstætt vandamál þegar
kemur að lausn vandans. Eins og bent hefur verið
á þarf peningamálastefna landsins að vera
trúverðug, ef við eigum ekki að hætta á að missa
aftur tök á gengi krónunnar. Í því felst að aðgerðir
Seðlabankans og stjórnvalda verða að vera
trúverðugar. Markaðurinn verður að trúa því og
treysta að Seðlabankinn vinni með stjórnvöldum
að lausn vandans. Þróun markaða á föstudag
bendir til að þar skorti nokkuð á.
Almenningur í landinu er nú skuldugri en
nokkru sinni fyrr. Eftir fasteignalánasprengju
undanfarinna ára er fjárhæð verðtryggðra lána
heimilanna mun hærri nú sem hlutfall af ráðstöf-
unartekjum en nokkru sinni fyrr. Við eigum því öll
gríðarlega mikið undir því að nú takist að hemja
uppsveiflu verðbólgunnar. Þess vegna eru
álversáform í Helguvík nú hefndargjöf til alls
almennings.
Síðast en ekki síst verðum við að kalla eftir að
aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda dugi til að
senda skýr skilaboð á markaðinn um aðgerðir sem
duga til að endurheimta stjórn á ástandinu.
BITBEIN Árni Páll Árnason spyr:
Hvernig er unnt að lækka
verðbólgu á Íslandi?
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
Auglýsing um hækkun húsaleigubóta
Athygli er vakin á hækkun húsaleigubóta frá 1. apríl samkvæmt breytingu á reglugerð
um húsaleigubætur sem tekið hefur gildi og byggist á samkomulagi ríkisins og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Helstu breytingar eru þessar:
• Grunnbætur húsaleigubóta fyrir hverja íbúð hækka úr 8.000 kr. í 13.500 kr.
• Bætur vegna fyrsta barns hækka úr 7.000 kr. í 14.000 kr.
• Bætur vegna annars barns hækka úr 6.000 kr. í 8.500 kr.
• Hámark húsaleigubóta hækkar úr 31.000 kr. í 46.000 kr.
Aðrar grunnfjárhæðir eru óbreyttar.
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér áhrif hækkunarinnar á rétt sinn til húsaleigubóta
þar sem hún leiðir til þess að fl eiri leigjendur en áður munu eiga rétt til bóta.
Upplýsingar er að fi nna á heimasíðu ráðuneytisins: www.felagsmalaraduneyti.is eða
hjá því sveitarfélagi þar sem leigjandi á lögheimili en þangað eiga umsóknir um
bætur að berast.
Nýir umsækjendur þurfa að skila umsókn fyrir
15. apríl til að fá greiddar
húsaleigubætur fyrir leigu aprílmánaðar.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
H
arkaleg gagnrýni hefur birst undanfarna sólar-
hringa um stjórnendur Seðlabankans í kjölfar síðustu
ákvarðana um stýrivexti. Bankinn er sagður ráðalaus.
Ummæli forystumanna atvinnurekenda og hagfræð-
inga í háskólasamfélaginu hafa tekið á sig persónu-
legan svip. Minnt er á að bankinn er gamalt pólitískt hæli fyrir
eldri heldrimenn úr stjórnmálaflokkunum og efast er víða um fag-
lega hæfni stjórnenda bankans. Nú er að koma á daginn sem sjá
mátti fyrir að umdeildur stjórnmálamaður eins og Davíð Oddsson
er á engum tíma hentugur til starfa á þessum vettvangi. Hann er
enn njörvaður niður í sína pólitísku sögu, sama hvaða vilja hann
kann að hafa sjálfur til að hefja sig yfir þann þátt á ferli sínum.
Sem er miður. Líklega er hollast að aðrir bankastjórar komi fram
fyrir hönd bankans í þessu fárviðri sem nú stendur um íslenskt
efnahagslíf.
En lítt dugar að skjóta sendiboða válegra tíðinda: lækkun á hús-
næðismarkaði var fyrirsjáanleg. Engin innistæða var fyrir því
verðæði sem hljóp í þann markað fyrir fáum árum. Verðhækkanir
á húsnæði voru órar, spanaðir upp af sölumönnum og hinni háska-
legu lánastefnu Árna Magnússonar og félaga sem Sjálfstæðis-
flokksformaðurinn varkári var ekki maður til að stoppa á sínum
tíma.
Spá Seðlabanka um halla á ríkissjóði er íhugunarverð: er ein-
hver sú forsenda finnanleg í rekstri ríkisins sem réttlætir hækkun
milli ára um tugi prósenta? Hvergi er dregið úr opinberum fram-
kvæmdum og lítið hefur sést til niðurskurðar í opinberum rekstri.
Þar eru menn á dúndrandi eyðslutrippi, þrátt fyrir margítrekaðar
áskoranir um að dregið verði úr ríkisútgjöldum.
Tveggja stafa verðbólgan sem blasir við á sér að hluta til skýr-
ingar í hækkun á aðfluttum vörum: um allan heim eru menn að
takast á við hækkun á hráefnum, meðal annars vegna aukinnar
eftirspurnar.
Er framleiðslan í landinu að aukast? Ekki verður það séð. Iðnað-
ur hér er fjárþurfi, hátt gildi krónu veldur öllum útflutningsgrein-
um erfiðleikum á erlendum mörkuðum og raunar blasir við hvaða
atvinnurekstri sem er að hollara er að skrá fyrirtækin erlendis og
reka útibú hér á landi. Sem er hægt í opnu kerfi Evrópu.
Er almenningur að draga saman eyðsluna? Auðvitað verður að
draga úr almennri eyðslu. Viðskiptahalli við útlönd er geigvæn-
legur og honum er ekki snúið við nema með aukinni framleiðslu.
Stjórnvöld hafa engin tæki til að draga úr almennri ofneyslu nema
hugheilar óskir, hvað sem málpípa Vinstri grænna hvín.
Eftir ofsaþenslu í byggingariðnaði er viðbúið að atvinnuleysi
taki við: farandverkamenn munu hraða sér á önnur svæði Evrópu.
Samdráttur mun skila smærri fyrirtækjum verkefnaskorti og fjár-
hagsvanda. Eftirspurn í verktakavinnu mun hverfa snögglega.
Öll þessi einkenni í spá Seðlabankans eru fyrirsjáanleg. Jafn-
vel þótt þau komi úr munni Davíðs Oddssonar. Hinn raunverulegi
framtíðarvandi íslensks samfélags er smæð myntkerfis okkar og
markaðar. Og við honum er aðeins sú lausn að hverfa inn í mark-
aðssamfélag Evrópu og aðlaga kerfi okkar evrusvæðinu til fulln-
ustu. Það er pólitísk ákvörðun. Og á endanum liggur hún hjá kjós-
endum en ekki piltum og stúlkum í flokksfélögum.
Það brýtur á í Seðlabankanum.
Skotnir sendiboðar
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björgvin Guðmundsson og Björn Ingi Hrafnson. Fréttablaðið kemur út í
103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Spámannlega vaxinn
Ólafur Ragnar Grímsson forseti hélt
ræðu á ráðstefnu í Andorra í vikunni.
Þar fjallaði hann um tækifæri smærri
ríkja í hagkerfi veraldar. Nýtti hann
þar tækifærið og las upp úr ræðu
sem hann hélt í Helsinki fyrir tveimur
árum. Þar lýsti hann því hvernig sótt
væri að Íslandi í alþjóðlegum fjöl-
miðlum og af fyrirtækjum sem væru
keppinautar Íslendinga. Og eins og
segir í tilkynningu frá forsetaembætt-
inu er sú lýsing: „Sláandi lík því sem
hefði verið að gerast undanfarið.“
Spurning hvort Ólafur sé
meiri spámaður í Helsinki en
eigin föðurlandi?
Lull en ekki valhopp
„Tíminn er af skammti afar
skornum, glasið
fyllist fljótt af kornum,“ söng Stefán
Hilmarsson sællar minningar. Það á
við bæði um hið huglæga fyrir-
bæri og dagblaðið Tímann. Jónas
Kristjánsson hóf blaðamannsferil
sinn á Tímanum, en heldur nú úti
skemmtilegri heimasíðu. Þar segir
hann nýlega frá tveimur helstu gang-
tegundum íslenska hestsins til forna;
lulli og valhoppi. Þær þyki ekki fínar
en hafi eitt sinn gert austfirskum
þingmönnum kleift að ríða til þings
á Þingvöllum. Rétt er hjá Jónasi að
eftirsjá er að gangtegundunum. Ein-
hverjir þykjast þó hafa orðið varir
við að sumir þingmenn hafi
tileinkað sér lullið fullmikið,
á kostnað valhoppsins. Eigi
það bæði við austfirska og
aðra þingmenn.
Einn á póstlista?
Og enn af blogginu. Einn af skemmti-
legri bloggurum landsins er Hnakkus,
sem bloggar á slóðinni hnakkus.
blogspot.com. Sá fær vart frið fyrir
kæfupósti, e. spam, frá Vinstri grænum
og er honum ýmist boðið á ljóðakvöld
á Akureyri eða stofnfund í Reykjanes-
bæ. Þó kom þar að Hnakkusi var nóg
boðið og sendi þetta bréf til baka:
„Takk fyrir að láta mig vita hvenær
stofnfundur Vinstri grænna á Reykja-
nesi er. Ég var einmitt að pæla í því
hvar og hvenær hann væri haldinn af
því mig langar svo rosalega á hann
þó ég búi í miðbæ Reykjavíkur og
sé ekki einu sinni í Vinstri grænum.
Hvernig komst ég annars á þennan
póstlista? Er ég einn á honum?“
Ekki er vitað um svör flokksins.
kolbeinn@frettabladid.is