Fréttablaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 13. apríl 2008 11
BJARNI GÍSLASON
UMRÆÐAN
Hjálparstarf
Í skýrslu „Human Rights Watch“ frá 7. apríl kemur fram að konur
og stúlkur í Darfúr-héraði í Súdan
lifi undir stöðugri ógn ofbeldis og
nauðgana. Kofi Annan sagði í jan-
úar 2006:
„Víða í
Darfúr er
fólk
áfram-
haldandi
drepið,
nauðgað
og flæmt
frá heim-
ilum
sínum í
þúsunda-
tali.“ Því miður staðfestir skýrsla
HRW að þessi orð eru enn í fullu
gildi.
Hjálparstarf kirkjunnar styður
neyðarverkefni sem Alþjóða
neyðar hjálp kirkna (ACT) stendur
fyrir í Darfúr í samstarfi við
Caritas (hjálparsamtök kaþólsku
kirkjunnar). Verkefnið, sem er
unnið í samvinnu við innlend sam-
tök, hófst árið 2004 og ber heitið
DERO (Darfur Emergency
Response Operation). DERO er
eitt umfangsmesta neyðarverk-
efni sem framkvæmt er í Darfúr,
nær til 350.000 einstaklinga.
Öryggi og vernd kvenna og stúlkna
er eitt af mikilvægustu markmið-
um verkefnisins. Mesta hættan
steðjar að þegar komið er út fyrir
flóttamannabúðirnar, en það getur
verið nauðsynlegt t.d. til að sækja
vatn, sem yfirleitt er hlutverk
kvenna. Í þeim tilvikum fara
öryggisverðir með konunum og
stúlkunum. En öryggisástand í
héraðinu almennt er alls ekki gott.
Búið er að samþykkja að senda
26.000 manna friðargæslulið á
vegum Sameinuðu þjóðanna og
Afríkubandalagsins, en enn eru
aðeins 8.600 friðargæsluliðar til
staðar sem ráða ekki við ástandið.
Í flóttamannabúðunum er reynt
að hlúa að fólkinu eins og hægt er,
skólastarf er í gangi, heilsuþjón-
usta veitt og reynt að tryggja
aðgang að hreinu vatni. Þrátt fyrir
erfitt ástand kemst hjálpin til skila
og lífið verður aðeins bærilegra
fyrir þá sem njóta aðstoðar. Þeir
sem styrkja vilja neyðaraðstoð í
Darfúr geta greitt heimsenda
gíróseðla, lagt inn á reikninginn
1150-26-886 kt. 450670-0499 eða
hringt í söfnunarsímann 907 2002
(kr. 1.100).
Höfundur er fræðslu- og upplýs-
ingafulltrúi Hjálparstarfs
kirkjunnar.
Ógn í
Darfúr
UMRÆÐAN
Kjaramál
Á undanförnum vikum og mánuð-
um höfum við verið að
fylgjast með gangi
kosningaloforða Sam-
fylkingarinnar. Fagra
Ísland er á leiðinni ofan
í álvaskinn eins og það
var orðað svo snilldar-
lega í vikunni og stefna
flokksins í velferðarmálum virðist
ekki fá hljómgrunn í ríkisstjórnar-
samstarfinu.
Jóhanna Sigurðardóttir segir í
stórri grein í Morgunblaðinu um sl.
helgi að öryrkjar og
aldraðir séu eitt af for-
gangsmálum ríkis-
stjórnarinnar. Það má
vel vera að hóparnir
séu í forgangi en ekki
virðist ríkisstjórnin,
þótt hún segist stöðugt
öll af vilja gerð, tryggja
það að kjör þeirra sem
minnst mega sín í sam-
félaginu verði leiðrétt.
Í nýgerðum kjara-
samningum á almenn-
um vinnumarkaði er gert ráð fyrir
að lægstlaunaða fólkið hækki um
18.000 kr. á mánuði. Framlag ríkis-
stjórnarinnar til þeirra sem búa
við lægst kjör á Íslandi í dag er á
milli 4-5.000 krónur á mánuði.
Greiðslur aldraðra einstaklinga
sem hafa eingöngu greiðslu frá
almannatryggingum hækka úr 130
þúsund krónum í u.þ.b. 138.000
krónur. Það er nú öll kjarabótin
sem ríkisstjórnin býður því fólki
sem stendur hvað verst.
ASÍ, Öryrkjabandalagið og
Landssamband eldri borgara hafa
mótmælt þessari ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar. Meginmarkmið
samninga á almennum vinnumark-
aði var að bæta kjör þeirra sem eru
verst settir. Það er ljóst að áherslur
ríkisstjórnarinnar hvað þetta varð-
ar eru aðrar og ganga á skjön við
þau meginmarkmið samninganna,
en þeir virðast jafnvel vera að falla
um sjálfa sig vegna stefnuleysis
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um. Mun hópur öryrkja og aldr-
aðra enn á ný sitja eftir?
Fram kom í máli stjórnarliða í
svari við fyrirspurn minni um
þessi mál á Alþingi sl. þriðjudag að
þessi hópur hafi fengið 7% hækk-
un. Þá eru stjórnarliðar að taka
með hækkun sem þessum hópi var
lofað í kosningabaráttunni og ætti
því ekki að teljast til kjarasamn-
ingahækkunar nú. Vitað er að
lægstlaunaði hópurinn á almenn-
um vinnumarkaði, þeir sem fá
greitt samkvæmt lægstu töxtum,
getur varla framfleytt sér. Hvernig
er hægt að ætlast til þess að hægt
sé að framfleyta sér á þessari upp-
hæð, greiða húsaleigu, kaupa í mat-
inn og annast börn?
Höfundur er varaþingmaður
Vinstri grænna.
Kjarabót – fimm þúsund krónur!
ALMA LÍSA
JÓHANNSDÓTTIR
Greiðslur aldraðra einstaklinga
sem hafa eingöngu greiðslu frá
almannatryggingum hækka
úr 130 þúsund krónum í u.þ.b
138.000 krónur. Það er nú öll
kjarabótin sem ríkisstjórnin
býður því fólki sem stendur
hvað verst.
Mesta hættan steðjar að þegar
komið er út fyrir flóttamanna-
búðirnar, en það getur verið
nauðsynlegt t.d. til að sækja
vatn, sem yfirleitt er hlutverk
kvenna.