Fréttablaðið - 13.04.2008, Síða 35
Ryðfrí stálsmíði
Stálsmiður vanur ryðfrírri smíði óskast til starfa.
Umsókn með nafni og síma umsækjanda
má senda á netfangið: klaki@klaki.is
Upplýsingar veittar mán-fös í síma: 554-4225.
Barnaskólinn
á Eyrarbakka og Stokkseyri
Stofnaður 1852
Barnaskólinn
á Eyrarbakka og Stokkseyri
auglýsir eftir kennurum fyrir veturinn 2008-09
Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri vantar
kennara til að annast almenna bekkjarkennslu
næsta vetur. Um er að ræða kennslu á yngsta-
og miðstigi.
Óskað er eftir umsækjendum sem hafa góða
skipulagshæfni og færni í mannlegum
samskiptum.
Laun eru samkv. kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og KÍ.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Daði V.
Ingimundarson, í síma 864 1538. vefpóstur
dadi@barnaskolinn.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og umsagnaraðila berist til
skólastjóra, Barnaskólanum Eyrarbakka og
Stokkseyri 825 Stokkseyri fyrir 27. apríl.
HLJÓMAHÖLLIN
Tónlistar- og ráðstefnuhús Reykjanesbæ
ÚTBOÐ LOFTRÆSILAGNA
ÚTBOÐ GLUGGA, GLERS OG ÚTIHURÐA
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. (EFF) í samvinnu við
Reykjanesbæ byggir Hljómahöllina í Reykjanesbæ. Um
er að ræða endurbætur á núverandi húsnæði Stapans
og viðbyggingu við hann. Byggingunni er m.a. ætlað að
hýsa tónlistarskóla og poppminjasafn og vera í senn
tónlistar- og ráðstefnuhús sem gengur undir nafninu
“Hljómahöllin”.
Verkefninu er skipt í tvo megin þætti:
1. Áfangi : Endurbætur á núverandi húsnæði,
Stapanum: 1094m².
2. Áfangi : Viðbygging við núverandi húsnæði : 4016m².
Hér með er auglýst eftir undirverktökum til að taka þátt
í útboði um undirverktöku á eftirtöldum verkhlutum :
o Útboð 802 : Loftræsilagnir
o Útboð 804 : Gluggar, gler og útihurðir
Framkvæmdir við verkið hófust í febrúar sl. og verður
lokið í júní 2009. Það er verktakafyrirtækið Atafl sem fer
með aðalverktöku í verkinu og umsjón með einstökum
verkhlutum og undirverktökum. Atafl fer með stjórn á
vinnustað og ber ábyrgð á verkinu í heild
gagnvart verkkaupa.
Verktakafyrirtæki sem hafa áhuga á að bjóða í ofan-
greinda verkhluta geta nálgast útboðsgögn á skrifstofu
THG, Faxafeni 9, frá og með 15. apríl 2008 kl. 14:00.
Einnig er hægt að senda netpóst til magnus@thg.is
með ósk um aðgang að útboðsgögnum á
verkefnavef verksins.
Frekari upplýsingar er að fi nna í útboðsgögnunum.
Tilboðum skal skilað til THG, Faxafeni 9 eigi síðar en
þann 7. maí 2008 kl. 11:00 og fer þá fram opnun.
Leikskólasvið
Grænaborg er fjögurra deilda leikskóli á Skólavörðuholtinu.
Eitt af meginmarkmiðum skólans er að skapa öruggt, leik- og
barnvænt umhverfi fyrir börn á leikskólaaldri, óháð þroska
og aldri. Leikskólinn tekur mið af fjölgreindakenningunni
þar sem lögð er áhersla á að hver og einn fái að njóta sín á
sínum forsendum og hæfi leikum.
Helstu verkefni aðstoðarleikskólastjóra eru að vinna að dag-
legri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins í
samvinnu við leikskólastjóra.
Menntunar- og færnikröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Framhaldsmenntun og reynsla af stjórnun æskileg
• Góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Samskiptahæfni, skipulagshæfi leikar, frumkvæði, áhugi og
metnaður í starfi
Staðan er laus frá og með 1.ágúst 2008.
Upplýsingar veita Gerður Sif Hauksdóttir, leikskólastjóri í síma
551 4470/ 693 9842 og Auður Jónsdóttir, mannauðsráðgjafi
á Leikskólasviði í síma 411-7000.
Umsóknum fylgi yfi rlit yfi r nám og störf. Umsóknir skulu
berast til Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 1,
101 Reykjavík eða á netfangið
starfsumsoknir.leikskolasvið@leikskolar.is.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2008.
Laun eru skv. kjarasamningi LN við KÍ vegna FL.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag
sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Aðstoðarleikskólastjóri í Grænuborg
Laus er staða aðstoðarleikskólastjóra í leikskólanum Grænuborg, Eiríksgötu 2.
Eykt ehf. / Lynghálsi 4 / 110 Reykjavík
Sími: 595 4400 / Fax: 595 4499
Netfang: eykt@eykt.is / www.eykt.is
Velferðasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag
sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Helstu verkefni:
• Félagsleg ráðgjöf
• Einstaklings- og fjölskylduvinna
• Unglingaráðgjöf
• Þverfaglegt starf í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða
• Vinna tengd þekkingarstöðvarverkefnum
Hæfniskröfur:
• Starfsréttindi í félagsráðgjöf
• Þekking og reynsla af starfi félagsráðgjafar æskileg
• Frumkvæði og sveigjanleiki
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða býður upp á:
• Fjölskylduvænan vinnustað
• Vinnustað með fjölbreytt verkefni á sviði velferðarmála
• Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki
• Góðan starfsanda
• Sveigjanlegan vinnutíma
Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf 1. júní.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Félagsráðgjafafélags Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Heimir Snorrason, deildarstjóri
Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða sími 411 1600,
netfang: heimir.snorrason@reykjavik.is
Umsóknum skal skilað á Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík eða á ofangreint
netfang fyrir 1. maí.
Félagsráðgjafi
Laust er afl eysingarstarf félagsráðgjafa til eins árs á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð fyrir fjölmenningu og margbreytileika.