Fréttablaðið - 13.04.2008, Page 72

Fréttablaðið - 13.04.2008, Page 72
matur SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT VIÐ MÆLUM MEÐ... ... KICTHEN AID-blandara sem fæst hjá Einari Farestveit og Co. Blandarinn, sem hefur verið einn sá vinsælasti á Íslandi, er sterk- byggður, kraftmikill og mylur klaka auðveldlega. Blandarinn er með stórri og mikilli glerkönnu sem er auðveld í þrifum. Blandarinn er fyrst og fremst hannaður fyrir drykki, enda eru möguleikarnir á hollustu- drykkjum í dag óteljandi. ...TUTTOCREMA er flóunar- kanna sem flóar mjólk. Hún er sett á eldavélarhellu með mjólkinni í. Mjólkin er hituð upp að suðu en þess þarf að gæta að láta suðuna ekki koma upp. Síðan er lokið sett á og pressað upp og niður í nokkur skipti og við það flóast mjólkin. Flóunarkann- an er mjög einföld í notkun og fæst í verslunum Te og kaffi. ...DELUX-TÖFRASPROTI frá Bamix, sem stendur vel undir nafni. Töfrasprotinn er öflugur og fylgja honum þrjár skífur sem gerir það að verkum að hægt er að hakka, mauka og þeyta með honum. Einnig fylgja honum hnífur, skífa og hræra, lítil kvörn og standur. Delux-töfra- sprotinn fæst í versluninni Kokku á Lauga- vegi. auglýsir eftir starfsfólki! Skólar ehf. www.skolar.is Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi leitar að: • Deildarstjóra • Sérkennslustjóra • Stuðningi inn á deild • Leikskólakennurum eða öðru uppeldismenntuðu starfsfólki Að vinna að uppeldi barna eru forréttindi, að sjá þau vaxa og þroskast er ævintýri. Leikskólinn Kór í Kópavogi er heilsuleikskóli sem opnaði 1. júní 2006. Skólinn er rekinn af Skólum ehf. og er með þjónustusamning við Kópavogsbæ um reksturinn. Skólar ehf. reka tvo leikskóla. Einn í Grindavík og síðan Kór í Kópavogi. Leikskólinn Kór er heilsuleik- skóli og stefnir að því að fá viðurkenningu sem slíkur. Markmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi. Kjörorð okkar er „heilbrigð sál í hraustum líkama”. Það hefur sýnt sig í rannsóknum á undanförnum árum að heilbrigð lífssýn er grunnur að góðu heilbrigði allt lífið. Verið velkomin í heimsókn á leikskólann Kór að Baugakór 25 í Kópavogi eða hafið samband við Bjarneyju Kr. Hlöðversdóttur leikskólastjóra í síma 570-4940, 897-7891 eða með tölvupósti á netfangið kor@skolar.is. Heilsuleikskólinn Kór „heilbrigð sál í hraustum líkama”   „...fyrst á visir.is“ ...ég sá það á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.