Fréttablaðið - 13.04.2008, Side 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn 13. apríl,
104. dagur ársins.
6.02 13.28 20.56
5.40 13.13 20.48
Með nýrri vetraráætlun 2008–2009 bætir Iceland Express enn þjónustuna með flugi um
Gatwick-flugvöll í London. Stansted og Gatwick, kvölds og morgna, allan næsta vetur.
Kynntu þér nýja vetraráætlun og bókaðu flug á www.icelandexpress.is
Tveir heimavellir
í London
Gatwick eða Stansted – þitt er valið!
sinnum í viku
næsta
vetur
Stansted Express
Flogið alla daga vikunnar.
Gatwick Express
Fyrsta flug frá Gatwick er 16. sept. skv.
vetraráætlun. Flogið fimm sinnum í viku;
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga,
föstudaga og sunnudaga.
Árið er 2020. Ég átti erindi austur á land og er á leiðinni
heim til höfuðborgarinnar með
flugi. Ég geng frá borði í Vatns-
mýrinni um rana beint inn í nýlega,
glæsilega flugstöð sem af ein-
hverjum ástæðum gengur ekki
undir nafninu flugstöð heldur
„samgöngumiðstöð“. Það er vegna
þess að héðan er hægt að taka
strætó og leigubíl, rétt eins og það
gildi ekki um flugstöðvar
almennt.
ÞAÐ er vissulega lúxus að hafa
flugstöð svona nálægt gamla mið-
bænum. Hún er í göngufjarlægð
frá honum – ef gengið er þvert yfir
flugbrautina. Vegna staðsetningar
stöðvarinnar austan flugvallarins
tekur fólk hins vegar undantekn-
ingarlaust leigubíl niður í gamla
miðbæinn. Mun fleiri eiga þó auð-
vitað erindi í nýju miðborgina í
Smáranum. Þannig að í raun er
flugstöðin ekki í göngufjarlægð
frá neinu nema Hótel Loftleiðum.
Flugvöllurinn er reyndar í útjaðri
byggðarinnar, þungamiðja hennar
er í Mjóddinni.
Á Reykjavíkurflugvelli er fólk á
fleygiferð, enda er hann stór
vinnustaður. Hér er flugþjónusta
fyrir alls konar hópa ferðafólks og
kaupsýslumanna, flugskólar og
einkaþotuskýli. Fyrir rúmum ára-
tug þótti nefnilega ljóst að hvergi
á láglendi á suðvesturhorni lands-
ins væri hægt að æfa snertilend-
ingar nema einmitt í hjarta mið-
borgarinnar.
ÉG sest upp í bílinn minn og keyri
heim til mín, upp á Kjalar nes eða í
Úlfarsárdal eða Kjós, sem er eini
staðurinn á höfuð borgarsvæðinu
þar sem hægt var að koma fyrir
nýrri byggð. Ferðin tekur óratíma,
enda umferðin þung og aðeins um
tvær samgönguæðar að ræða milli
vesturhluta borgarinnar og austur-
hluta hennar. Lega flugvallarins
kemur í veg fyrir fleiri. Umferðin
er líka þung vegna þess að dreif-
ing byggðarinnar upp á heiðarnar
umhverfis borgarlandið lengir
allar vegalendir borgarbúa á milli
heimilis, vinnu og annarrar þjón-
ustu. Flugvallarsvæðið hefði getað
orðið heimili 15.000 Reykvíkinga.
AF hverju er þetta svona? Jú,
skipulag borgarinnar tók ekki mið
af þörfum borgarbúa heldur þæg-
indum flugkennara og kröfum
þeirra 20% landsmanna sem eru
háð flugsamgöngum með ferðir til
höfuðborgarinnar. Á sama tíma og
annars staðar í álfunni var unnið
að því að minnka ægivald einka-
bílsins í miðborgunum var ákveðið
að í miðborg Reykjavíkur skyldi
fólkið víkja fyrir einkaþotunni.
2020