Fréttablaðið - 16.04.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
16. apríl 2008 — 103. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA VEIÐI VINNUVÉLAR O.FL.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, hönnuður og eigandi
gydja.is, fór í stórskemmtilega ferð til Egypta-
lands yfir jól og áramót þar sem hún upplifði
óvenjulega hluti ásamt fjölskyldu sinni. Sigrún Lilja tók strax eftir því að mikill menningar-
legur munur er á Egyptalandi og þeim löndum Evr-
ópu sem hún hefur heimsótt. Hún og fjölskylda henn-
ar voru í Hurghada í Egyptalandi á hóteli sem heitir
Marriott. Þaðan fóru þau í skoðanaferðir til Luxor,
Dals konungana og sáu Pýramídana. Einnig fóru þau
í stutta siglingu um ána Níl og til Kaíró.
„Það var mjög sérstakt að kmen i
vorum í rólegheitum að pakka niður og ætluðum að
mæta upp á flugvöll tveimur tímum fyrir brottför,
eins og venjan er. En þá fréttum við að það þyrfti lág-
mark 3-4 tíma uppá flugvelli til að eiga möguleika á
því að ná vélinni. Það fór allt í kerfi og við þutum upp
á flugvöll og þá tók á móti okkur heldur betur skrítin
sjón. Fólk var að troðast hvert ofan á öðru til að reyna
að komast inn á flugvöllinn og í gegnum eitt öryggis-
hlið sem var fyrir allt þetta fólk. Þegar inn á flugvöll-
inn var komið hélt þetta áfram í gegnum hann allan
alveg að hliðinu. Flugvöllurinn var allt f
springa Við sá
Öðruvísi líf í Egyptalandi
Mikill hamagangur var á flugvellinum á heimleiðinni sem endaði þó vel.
SPARAKSTUR
Með réttu aksturslagi má spara nokkrar krónur sem annars hefðu farið í bensín. Auk þess verður mengunin minni.
BÍLAR 2
BÍÓ Á SNERTISKJÁBreytingar á Boeing 757 farþegavélum Icelandair standa nú yfir en í vél-arnar er verið að setja ný sæti og afþreyingarkerfi. FERÐIR 4
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/STEFÁN
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR
Tækninýjungar og
verðug verkefni
Sérblað um íslenskan iðnað
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Erum að stimpla okkur
inn upp á nýtt
Félagsstofnun stúdenta
er 40 ára.
TÍMAMÓT 18
íslenskur iðnaður
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008SIGRÚN LILJA GUÐJÓNSDÓTTIR
Furðuleg lífsreynsla
á flugvelli í Hurghada
ferðir bílar heimili veiði
Í MIÐJU BLAÐSINS
SJÁVARÚTVEGUR Ódýrt jurtafóður í
fiskeldi getur stuðlað að því að
þorskeldi verði stór atvinnuvegur
hér á landi. Þetta er mat Helga
Thorarensen, prófessors við
Háskólann á Hólum, sem rannsak-
ar algengar fóðurplöntur til að
leysa fiskimjöl af hólmi sem fóður
í fiskeldi.
Markvissar tilraunir hafa staðið
yfir hér á landi síðastliðin fimm
ár við að nota prótín úr jurtarík-
inu í fiskeldi. Það er eini augljósi
kosturinn í stað fiskimjöls að mati
Helga. Fiskimjöl er í dag um 60
prósent af rekstrarkostnaði í
fiskeldi.
- rh / sjá Íslenskan iðnað í miðju blaðsins
Framtíð þorskeldis:
Þorskurinn fái
jurtafóður
30.000
blaðberar
komnir til
landsins
Velkomin á Íslandsmót iðngreina
í anddyri gömlu Laugardalshallarinnar
föstudaginn 18. og laugardaginn 19. apríl kl. 9-18
h t tp :// is landsmot . sk i l l s i ce land . i s
UMM er glænýr
heilsubiti úr
spennandi hráefni
KRUMMI BJÖRGVINSSON
Hyggst stofna útgáfufyrir-
tæki með föður sínum
Syrgir ekki nafnið Krummi Records
FÓLK 30
Akureyri! og Reykjavík!
Meðlimir hinnar nýstofnuðu
sveitar Akureyri! vonast til að geta
spilað á tónleikum með þekktari
kollegum sínum í Reykjavík! innan
skamms.
FÓLK 24
Eiga Bítlana sameiginlega
Síðustu keppendurnir í Band-
inu hans Bubba eru
sammála um að Bítlarnir
teljist til þriggja
bestu hljóm-
sveita heims.
FÓLK 22
KÖRFUBOLTI Það má búast við mikl-
um látum innan vallar sem utan í
kvöld þegar Keflavík og ÍR mæt-
ast í oddaleik í undanúrslitum Ice-
land Express-deildar karla. Leikið
verður í Sláturhúsinu í Keflavík.
Lykilmaður ÍR-inga, Hreggvið-
ur Magnússon, hefur látið Gunnar
Einarsson leika sig grátt í síðustu
tveimur leikjum, en hann er þrátt
fyrir það ekki af baki dottinn.
„Við verðum að bíta frá okkur
og láta hart mæta hörðu. Ég mun
svara fyrir mig í þessum oddaleik
og ætla mér að sigra. Ég lofa sigri
enda er ÍR-blaðran ekki sprung-
in,“ sagði Hreggviður Magnússon
kokhraustur. - hbg / sjá síðu 26
Oddaleikur Keflavíkur og ÍR:
Hreggviður
lofar ÍR-sigri
HREGGVIÐUR MAGNÚSSON Alls óhrædd-
ur við að gefa yfirlýsingar sem fyrr.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÝ SUNDLAUG Á HOFSÓSI Forsetahjónin tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri sundlaug á Hofsósi í opinberri heimsókn sinni
í Skagafirði í gær. Hér sjást þau með athafnakonunum sem standa að byggingu laugarinnar. Frá vinstri eru Lilja Pálmadóttir,
Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff, Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt og Steinunn Jónsdóttir. Lilja og Steinunn gefa íbúum
Hofsóss sundlaugina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
8
7
8
7
9
MILT Í VEÐRI Í dag verða suð-
austan 8-15 m/s suðvestan til,
annars hægari breytileg átt. Víðast
hálfskýjað eða léttskýjað og þurrt.
Hiti yfirleitt 5-10 stig.
VEÐUR 4
Sænskur meistari
Guðmundur Stephensen vann alla
leiki sína í úrslitakeppninni
þegar
Eslövs
varð
sænskur
meistari í
borðtennis.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
STRÆTÓ „Um daginn stóðum við eldri konu að verki
með þrjú fölsuð tímabilakort. Einnig höfum við
heyrt af því að skólabörnum sé boðið fölsuð kort til
sölu. Hingað til höfum við tekið kortin af þeim sem
gerast brotlegir en það er vel hugsanlegt að það
komi til þess að þetta fólk verði kært til lögreglu,“
segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
Fölsuð strætókort og önnur fargjaldasvindl kosta
fyrirtækið um það bil 60 til 100 milljónir króna á
ári, að mati Reynis. Mest er um að afsláttarkort,
svokölluð tímabilakort, séu fölsuð og einnig er
nokkuð um að fríkort fyrir nemendur á framhalds-
og háskólastigi séu notuð af þeim sem ekki hafa til
þess heimild.
Til þess að bregðast við þessum vanda hefur
Strætó bs. síðan í september haft einn starfsmann í
fullu starfi og tvo í hlutastarfi við sérstök eftirlits-
störf.
Eftirlitsmennirnir eru merktir og eiga heimtingu
á að fá að rannsaka kort farþega á öllum tímum.
Vonast forsvarsmenn Strætó til þess að vitneskj-
an um að eftirlitsmaður geti hvenær sem er komið
inn í vagninn og skoðað kort farþega letji fólk til að
nota fölsuð kort. - kg
Strætó með þrjá starfsmenn til að sporna við tugmilljóna svindli á ári hverju:
Strætósvindlarar á öllum aldri
ORKUMÁL Reykjavík Energy Invest,
dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykja-
víkur, mun hætta við verkefni í
Afríkuríkinu Djíbútí bregðist fjár-
mögnun alþjóðlegra fjármála-
stofnana vegna hagkvæmnis-
athugunar á nýtingu jarðvarma í
landinu. Skuldbinding REI vegna
verkefnisins er um 300 milljónir
króna. Komi til byggingar fyrir-
hugaðrar jarðvarmavirkjunar í
Djíbútí mun REI ekki standa
straum af kostnaði við bygging-
una.
Kjartan Magnússon, stjórnar-
formaður OR og REI, segir að
áhugi IFC, fjármögnunarsjóðs
Alþjóðabankans, og EIB, Evrópska
fjárfestingabankans, sé mikill
fyrir samstarfi að jarðhitaverk-
efnum í Djíbútí en sjálfhætt sé ef
bankarnir leggja ekki til fé til að
halda áfram með þau verkefni sem
þar eru komin á góðan rekspöl.
„Forsendan fyrir verkefninu er að
þessir sjóðir taki bróðurpartinn af
kostnaðinum.“
Kjartan segir að svar frá bönk-
unum tveim sé væntanlegt innan
fárra vikna. Hagkvæmnisathug-
unin gæti hafist í lok ársins gangi
fjármögnun hennar eftir.
Gengið hefur verið frá sam-
komulagi milli REI og ríkisstjórnar
Djíbútí um gerð ítarlegrar hag-
kvæmnisathugunar á nýtingu jarð-
hita í landinu og áætlað er að fjár-
magna hana með fé frá nefndum
bönkum. Skuldbinding REI er um
300 milljónir króna, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Heildar-
kostnaður er allt að 1,5 milljarðar
króna.
Kostnaður við fyrirhugaða jarð-
varmavirkjun í Djíbútí er um 26
milljarðar króna miðað við 100
megavatta virkjun. REI mun ekki
standa straum af þeim kostnaði, að
sögn Kjartans. „Ef verkefnið nær
svo langt þá yrði að leita að áhuga-
sömum fjárfestum.“ - shá
REI hættir við án að-
komu erlendra banka
Reykjavík Energy Invest mun hætta við fyrirhuguð jarðhitaverkefni í Afríku fá-
ist ekki fé frá erlendum bönkum. Skuldbinding REI er um 300 milljónir króna.
Fyrirtækið mun ekki setja fjármagn í að reisa jarðhitavirkjun í Djíbútí.