Fréttablaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 28
22 16. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Sem teiknimynda- söguhöfundur reyni ég alltaf að vakna snemma! Helst fyrir níu! Þú puðar! Ég er að reyna að fá lesendur til að skilja að þetta sé alvöru starf! En þegar ég byrja fer allt af stað! En stundum verður það kannski aðeins seinna! Ef flugan lendir á hlut sem byrjar á sérhljóða færð þú eitt stig. Ef hún lendir á hlut sem byrjar á sam- hljóða fæ ég eitt stig. Sá sem nær fyrst tíu þúsund stigum vinnur. Fæðingarlæknir Stofnandinn Nei.Leitar þú aldrei að hvölum? Leiðinlegt Ég er að leita að hvölum. Hvalir leita að mér. En hvað með stóru systur? Það góða við smá- börn er að þau eru mjög góð í að varð- veita leyndarmál. Sem tæplega 25 ára gömul stúlka sem til- heyrir stórum og góðum vinkvenna- hópi, hef ég á undan- förnum árum öðlast heilmikla reynslu í meðferð ástarsorga. Ástarsorgatímabil okkar líkjast núna einna helst helgiat- höfnum. Um leið og kallið kemur fer allt af stað í okkar herbúðum. Ég er ekki frá því að viðbragðs- tími okkar, frá því að neyðarkallið berst og þangað til við komum á slysstað, búnar öllum nauðsynleg- um tækjum og tólum, sé styttri en hjá flestum hjálparsveitum lands- ins. Við erum þrautþjálfaðar. Sú sem er fyrst á vettvang byrjar á því að koma eiganda brostna hjartans í náttföt, helst einhver sem hafa verið þvegin svo oft að þau eru orðin grámóskuleg á litinn. Óþvegið hár er eiginlega líka möst, en ef því er ekki til að dreifa er hægt að bjarga málunum með því að setja það í tagl með skítugri tauteygju. Næsta mann- eskja mætir með ís, helst þann sem státar af verðlagningu sem er efni til meiri hneykslunar en sú á bensíninu. Sú þriðja kemur með fjölskyldupakka af eldhúsrúllum. Næst á svæðið er innihald stelpu- grát-mynda-rekka næstu vídeó- leigu, sem er umsvifalaust raðað í spilarann. Því næst hefst umræðu- hringur, þar sem setningarnar „Hann var ekki nógu góður fyrir þig“, „Þú átt miklu betra skilið“, og „Getum við horft aftur á atriðið þar sem hann var ber að ofan?“ eru notaðar til skiptis. Ferlið er síðan endurtekið á hverjum degi, á meðan nauðsyn krefur, með inn- slögum af áfengisneyslu og ótæpi- legri notkun kerta. Við höfum hins vegar ekki minnstu glóru um hvað strákar gera í þessum aðstæðum. Ein- hvern veginn finnst okkur hæpið að þeir snýti sér í grá, ísblettótt náttföt á meðan þeir grenja yfir Bridges of Madison County og lakka á sér táneglurnar. Þetta er okkur álíka mikil ráðgáta og hvað gerist á frímúrarafundum, og þess vegna iðum við í skinninu af for- vitni. Upplýsingar óskast. STUÐ MILLI STRÍÐA Útkall, ástarsorg SUNNA DÍS MÁSDÓTTIR TILHEYRIR HÓPI FÆRUSTU BJÖRGUNARKVENNA LANDSINS ÚR SMIÐJU JERRY SEINFIELD KEMUR... LENDIR 17. APRÍL V in n in g ar v e rð a af h e n d ir h já B T S m ár al in d . K ó p av o g i. M e ð þ ví a ð t ak a þ át t e rt u k o m in n í S M S k lú b b . 1 4 9 k r/ sk e yt ið . VVV in n i in n i n n i n n i i n i n n n g n g ar n g ar n g ar g ar n g a n g a n g n ve rð a e rð a ð a rð a e rð a e rð a af h af h a fh a fhaf h af h af h e n d e n d i e n d i e n d i e n d i e n d r h j r h j h j r h r h jááá B T S m T S m T ár alra l ár a inin dd . K ó K ó K pp aavvv oo gg i.. MM e ð þ e ð þ ví aí aví tata ð t a ð t a ð kkkkk áá þ á þ á a þ áá þ á a þ a þ aaaa ee t e tt e tttttt rrrr u k tu k tutu nninnnnniiiiiiiii o m i o m ii o m n í n í S M S S M S kkkkkkkkkkkkkkkkkkkk bbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb lú b lú b ú bb . 1 4 . 1 4 99 kkr /s k r/ sk e yt i e yt ið . ð . SENDU BTC VBM Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU DVD MYNDIR, VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI OG MARGT FLEIRA!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.