Fréttablaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 30
22 16. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is > MÖGNUÐ MYNDBÖND Britney Spears ku áforma að gera myndbandsdagbók sína aðgengilega fyrir almenning. Síðustu sex mánuði hefur söngkonan haldið slíka dag- bók, þar sem hún hefur talað um allt það sem hefur gengið á í lífi hennar fyrir framan upp- tökuvél, en eins og flestir vita hefur engin lognmolla verið í kringum söngkonuna upp á síðkastið. Hjá Senu er verið að klára að setja saman 5 diska safn- kassann „100 Euro- visionlög“ og er áætlaður útgáfu- dagur 5. maí. Plat- an er hluti af 100 laga safnplöturöð- inni sem selst hefur eins og funheitar lummur síðustu árin. Á plötu 1 og 2 eru erlend sigur- lög, á plötu 4 eru íslensku vinnings- lögin og á plötu 5 eru önnur íslensk lög úr undankeppnum sem náð hafa vinsældum. Ekki er um tæmandi útgáfu af sigurlögum keppn- innar að ræða, enda 52 sigurlög til, en aðeins eru 39 í kassanum. Fáir Íslendingar þekkja öll sigurlögin en þekkja þess betur ýmis lög sem lentu neðar. Á plötu 3 er þessum lögum safnað saman. Þar verða til dæmis Congratulations með Cliff, Volare með Domenico Modugno, In My Dreams með Wig Wam og Le Dernier Qui A Parle með frönsku gyðjunni Aminu. Eftir mikla leit náðist í síðustu viku samband við höfund lagsins Shir ha’batlanim, sem hefur notið óvenju mikilla vin- sælda á Íslandi undir heitinu „Hoopa Hulle Hulle“. Lagið varð í 8. sæti fyrir Ísrael árið 1987 og telst ekki til þekktari laga keppninnar þrátt fyrir vinsældirnar hér. Lagahöfundurinn hafði samband við gríndúettinn Datner og Kushnir, eða Lazy Bums eins og þeir kölluðu sig, og voru þeir yfir sig hrifnir að heyra um vinsældir lagsins hér og yfir því að fá að vera með á safnplötunni. Flytjendur Hoopa Hulle í skýjunum 37 DAGAR TIL STEFNU GLEYMDIR ALLS STAÐ- AR NEMA Á ÍSLANDI Hoopa Hulle Hulle lifir! Nú eru aðeins tveir söngv- arar eftir í Bandinu hans Bubba. Þeir berjast til síðasta raddbands á föstu- daginn, einn fær millurnar þrjár, útgáfusamninginn og söngvarastöðuna í Bandinu, en hinn fær ekki neitt. Fúlt. Hverjir eru svo þessir strákar? EYÞÓR: Mesta rokkið að vera maður sjálfur Ég fattaði fyrst að ég gæti sungið þegar... „ég byrjaði að tala. Ætli ég hafi ekki verið sex ára þegar ég sönglaði hin og þessi lög og meðal annars Elvis Presley á mjög slakri íslensku.“ Þegar ég var lítill var ég aðdá- andi... „Elvis Presley og Ladda. Ég hreinlega sá ekkert annað. Sönglaði lög með snillingunum til skiptis. Svo var til spóla heima með Heilsu- bælinu í Gervahverfi og það fannst mér og finnst enn eitthvað það besta sem hefur sést í íslensku sjónvarpi.“ Mín helsta fyrirmynd er... „Thom Yorke og Jeff Buckley.“ Það rokkaðasta sem ég hef gert... „er að vera ég sjálfur.“ Þrjár bestu hljómsveitir í heimi eru... „Led Zeppelin, Bítlarnir og Radiohead.“ Besta íslenska hljómsveitin í dag er tvímælalaust... „Mugison.“ Ef ég mætti syngja dúett með hverjum sem er, lífs eða liðnum, syngi ég með... „David Bowie, vegna þess að hann er einhver sá eitursvalasti.“ Þótt mér væri borgað fyrir það færi ég aldrei á tónleika með... „það er ýmislegt sem mér þykir afar slæmt en fyrsta hljómsveitin sem mér dettur í hug er Linkin Park.“ Ef ég vinn... „verð ég hress, kátur og held bara áfram að reyna að sanna mig sem sjálfstæður tónlist- armaður.“ Ef ég tapa... „held ég bara áfram að semja tónlist, koma henni á framfæri og hreinlega rokka fram á níræðisaldur.“ ARNAR: Stagedive-ið um síðustu helgi var mesta rokkið Ég fattaði fyrst að ég gæti sung- ið... „fyrir alvöru þegar ég reyndi að syngja erfið lög sem er ekkert fyrir alla að syngja, háu tónana í perlulögum með Queen, Deep Pur- ple og Zeppelin, til dæmis. Og maður bara, heyrðu nú mig, get ég þetta? Haha, þannig byrjaði þetta nú allt saman... svo fór maður bara að æfa sig og syngja á fullu.“ Þegar ég var lítill var ég aðdá- andi... Rokklinganna, en þegar Synir stuðningsfullt J. K. Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, bar vitni fyrir rétti í New York á mánudag vegna máls sem hún höfðaði á hendur útgáfufyrirtækinu RDR Books til að reyna að koma í veg fyrir útgáfu Harry Potter-alfræðibókar. Bókin verður í raun einungis prentútgáfa af heimasíðu Steven Vander Ark, en Rowling telur útgáfu hennar vera brot á höfundarrétti. Hún segir bókina vera lítið annað en umritun á hennar eigin efni, og sagði dómara að svo mikið af hennar eigin skrifum væri notað þar að það jafngilti ritstuldi. „Þessi bók er stuldur á sautján ára langri erfiðisvinnu minni,“ sagði Rowling. Hún sagði einnig að hún hefði nýverið hafist handa við að gera sína eigin alfræðibók, og áformaði að gefa ágóða af sölu hennar til góðgerðarmála. Hún segir að verði bók Vander Ark gefin út sé hún alls ekki sannfærð um að hún gæti lokið verki sínu, og að hún haldi þar að auki að sú útgáfa myndi verða þess valdandi að ýmis konar og misgáfulegar vörur tengdar Harry Potter myndu flæða inn á markaðinn. Lögmaður RDR Books vill meina að alfræðibókin falli undir lög varðandi uppsláttarrit og væri þannig ekki brotleg gagnvart höfundarrétti. J. K. Rowling í vitnastúkuna SEGIR ALFRÆÐIBÓK RITSTULD J. K. Rowling bar vitni fyrir rétti í New York á mánudag, vegna máls sem hún höfðaði á hendur RDR Books, sem hyggur á útgáfu alfræðibókar um Harry Potter. NORDICPHOTOS/GETTY Eyþór Ingi Gunnlaugsson verður nítján ára í maí. Hann er fæddur og uppalinn á Dalvík þar sem hann býr ennþá, nema þessa dagana býr hann á Hótel Loftleiðum. Hann á tvær yngri systur, mamma hans er í skóla en vann áður sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla. Pabbi hans er sjómaður og gerir út trilluna Toni EA. Eyþór segist ekki vera góður námsmaður og hætti námi í VMA. Hann segist sjá sig sem tónlistarmann í framtíð- inni, frekar en söngvara – finnst „tónlistarmaður“ virðulegra og ná betur utan um það sem hann vill gera. Hann hefur líka áhuga á leiklist og reynir kannski einhvern tímann að komast inn í Leiklistarskól- ann. Hann hefur tekið að sér „lítil og plebbaleg“ hlut- verk hjá Leikfélagi Akureyrar og leikið ýmis hlutverk hjá Leikfélagi Dalvíkur. Eyþór er lagahöf- undur og hefur verið í bílskúrsbandi á Dalvík. Það kallaði sig fyrst The Mashed Bananas, þá Engima, en endaði sem The Turn-offs, sem þótti nógu hallærislegt til að vera töff. Bandið er í pásu enda orðið „fast í sama grautn- um“ að mati Eyþórs. Eyþór sigraði í Söngkeppni fram- haldsskólanna í fyrra þegar hann söng Deep Purple- lagið Perfect Stranger.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.