Fréttablaðið - 16.04.2008, Side 4
4 16. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ 15.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
151,2567
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
74,41 74,77
146,55 147,27
117,82 118,48
15,795 15,887
14,880 14,968
12,521 12,595
0,7368 0,7412
122,08 122,80
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ALÞINGI Þingmenn VG vilja að
dómsmálaráðherra geri í skýrslu
grein fyrir aðgerðum lögreglu
gagnvart mótmælendum Kára-
hnjúkavirkjunar og stóriðjufram-
kvæmda síðustu þrjú ár.
Vilja þeir meðal annars vita
hve margir lögreglumenn tóku
þátt í hverri aðgerð fyrir sig og
tilefni afskipta þeirra.
Segir í greinargerð að mark-
miðið sé að kanna hvort lögreglu-
aðgerðir gegn mótmælendum
hafi staðist ákvæði stjórnarskrár
og laga um hugsana- og skoðana-
frelsi, tjáningarfrelsi, persónu-
frelsi og friðhelgi einkalífs. - bþs
Þingflokkur Vinstri grænna:
Vill skýrslu um
lögregluaðgerðir
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur fellt úr gildi þá
ákvörðun Útlendingastofnunar að
synja umsókn hælisleitanda um
hæli hér.
Þá er úrskurður dómsmálaráðu-
neytisins, þar sem ofangreind
ákvörðun Útlendingastofnunar er
staðfest, einnig felld úr gildi.
Hælisleitandinn bjó í Máritan-
íu, en kom hingað til lands 23. okt-
óber 2004. Hann framvísaði föls-
uðu vegabréfi við komuna til
landsins, en upplýsti síðan lög-
reglu um nafn sitt og óskaði eftir
hæli á Íslandi.
Maðurinn lýsti ástæðum
flóttans frá heimalandinu þannig
að hermenn hefðu komið á heimili
hans og föður hans. Þeir hafi beitt
feðgana ofbeldi, tekið búfénaðinn
og sig og sett sig í fangelsi. Þar
hafi hann verið hnepptur í þræl-
dóm í tvö ár, eða þar til hann
strauk.
Hann óttaðist að lenda í sömu
aðstæðum aftur yrði hann sendur
heim. Útlendingastofnun taldi
ekki komna fram sönnun á því að
maðurinn segði satt. Honum staf-
aði því ekki hætta af því að verða
sendur til heimalands síns.
Dómurinn taldi lýsingar manns-
ins trúverðugar þegar litið væri
til þess ástands sem ríkt hefði í
Máritaníu. - jss
ÚTLENDINGASTOFNUN Synjun um
hælisvist felld úr gildi.
Úrskurðir Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytis felldir úr gildi:
Flóttamaðurinn fær hæli
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðuneytið
spáir fimmtán prósenta falli fast-
eignaverðs að raungildi fram til
ársins 2010. Þetta kemur fram í
endurskoðaðri þjóðhagsspá fjár-
málaráðuneytisins sem gefin var
út í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segist telja spá fjár-
málaráðuneytisins nærri því sem
hún telji að verði raunin á fast-
eignamarkaði. „Þetta er miklu nær
því sem gæti orðið reyndin og
þetta er svipað því sem bankarnir
spá,“ segir Jóhanna. Hún segir þá
þróun sem Seðlabankinn hefur
nefnt að geti átt sér stað ekki lík-
lega til þess að verða að veruleika.
„Ég hef ekki séð forsendurnar
fyrir því sem Seðlabankinn setti
fram, en það ber að segja eins og
fram kemur þar, að það var ekki
spá heldur sagt þróun sem gæti
orðið. Aðstæðurnar sem nú eru
fyrir hendi eru ekki sambærilegar
því sem var 1983 þegar raunlækk-
un fasteignaverðs varð upp undir
30 prósent. Þá var 20 til 30 pró-
senta kaupmáttarminnkun, lán
fóru úr öllum böndum og verð-
bólgan mældist upp undir 100 pró-
sent. Nú er allt annað ástand og
þess vegna finnst mér spá fjár-
málaráðuneytis og bankanna nær
lagi.”
Þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins gerir ráð fyrir nokkru minni
verðlækkun en Seðlabanki Íslands
telur að komi fram og gert er grein
fyrir í Peningamálum, sem komu
út á vaxtaákvörðunardegi síðast-
liðinn fimmtudag. Samkvæmt því
sem þar kom fram mun fasteigna-
verð lækka að raungildi um þrjá-
tíu prósent
fram til loka
árs 2010.
Greining-
ardeildir
Glitnis,
Kaupþings
og Lands-
bankans hafa
spáð mun
minni verð-
lækkun en
Seðlabank-
inn og spár þeirra gera heldur ekki
ráð fyrir eins mikilli lækkun og
þjóðhagsspá fjármálaráðuneytis-
ins segir til um. Þær gera þó ráð
fyrir að verð lækki um tíu til
fjórtán prósent að raungildi fram
til ársins 2010.
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segist
ekki hafa trú á því að spár fjár-
málaráðuneytisins eða Seðlabank-
ans gangi eftir. „Auðvitað á verð
eftir að lækka eitthvað og það er
nú þegar farið að gera það. En ég
hef ekki trú á að þessar svartsýn-
isspár gangi eftir.“
Grétar segir uppsagnir þegar
vera byrjaðar hjá fasteignasölum.
„Menn eru byrjaðir að bregðast
við þessari lægð sem nú er og því
miður eru uppsagnir starfsfólks
fylgifiskur hennar.“
magnush@frettabladid.is
Spá 15 prósenta falli
íbúðaverðs til 2010
Endurskoðuð þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins gerir ráð fyrir fimmtán pró-
senta lækkun fasteignaverðs til ársins 2010. Uppsagnir hjá fasteignasölum eru
þegar hafnar. Greiningardeildir bankanna gera ráð fyrir minni verðlækkunum.
FASTEIGNIR Blikur eru á lofti á fasteignamarkaði eftir mikla uppgangstíma á síðustu
árum. Í fyrra hækkaði vísitala íbúðaverðs um fimmtán prósent en líklegt má telja að
hún lækki innan tíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
JAPAN, AP Flaggskip japanska
hvalveiðiflotans, Nisshin Maru,
kom til heimahafnar í gær ásamt
öðrum skipum sem fylgdu því á
vetrarvertíð í Suður-Íshafi.
Aðeins voru veidd 55 prósent
kvótans að þessu sinni.
Lagt var upp með að veiða
1.000 hrefnur, 50 langreyðar og 50
hnúfubaka, en heildaraflinn var
551 hrefna. Í desember ákváðu
japönsk stjórnvöld að fresta því
að veiða hnúfubaka vegna þess
hve harkaleg viðbrögð þau áform
höfðu fengið víða um heim.
Hvalveiðiandstæðingar eltu
japönsku hvalveiðiskipin alla
vertíðina og reyndu að hindra
veiðarnar. - aa
Hvalveiðiflotinn heim:
Suður-Íshafs-
veiðum lokið
NISSHIN MARU Fréttamenn við flaggskip
japanska hvalveiðiflotans eftir komu
þess til Tókýóhafnar í gær. MYND/AP
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
8
7
7
6
8
7
7
5
5
5
13
7
10
7
13
11°
11°
6°
7°
11°
12°
13°
11°
8°
9°
21°
18°
15°
11°
23°
17°
23°
18°
3
10
9
12
Á MORGUN
3-10 m/s, stífastur SV-til.
FÖSTUDAGUR
Hægviðri.
9
8
5
3
4
13
8
10
7
8
10
108
GÓÐVIÐRISKAFLI
FRAM UNDAN
Enda þótt nokkuð
blási suðvestan-
lands í dag og
sumpart á morgun
er góðviðri í kort-
unum. Horfur eru
á björtu og hlýju
veðri um mestallt
land og það fram
yfi r helgi. Á föstu-
dag verður komið
hægviðri um allt
land. Helgin verður
björt og mild með
hægri breytilegri
átt.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI Baugur hefur sett
bresku fataverslunina MK One í
söluferli. Verslunin sérhæfir sig
í sölu á ódýrum tískufatnaði
fyrir konur, stúlkur og táninga.
Baugur keypti verslunina á
móti Landsbankanum og
stjórnendum MK One haustið
2004 fyrir 55 milljónir punda, 6,9
milljarða króna að þávirði.
MK One tapaði 17,4 milljónum
punda, rúmum 2,5 milljörðum
íslenskra króna, í fyrra og hefur
verslunin verið dragbítur í
bókum Baugs, að sögn breska
dagblaðsins Times. Því hafi
verið ákveðið að selja fyrirtæk-
ið. - jab
Baugur losar sig við MK One:
Breskur drag-
bítur til sölu
FÉLAGSMÁL Margrét Sverrisdóttir
tók í gær við formennsku í
Kvenréttindafélagi Íslands af
Þorbjörgu Ingu Jónsdóttur sem
óskaði eftir að hætta formennsku.
Kjörtímabil Þorbjargar var
hálfnað og var það tillaga
uppstillingarnefndar að Margrét,
sem verið hefur varaformaður,
tæki við af Þorbjörgu. Var sú
tilaga samþykkt. - ovd
Kvenréttindafélag Íslands:
Margrét nýr
formaður
ÍRAK, AP Meira en fimmtíu manns
fórust þegar bílsprengjur
sprungu á fjölförnum stöðum í
hádeginu í gær í Bakúba og
Ramadí í Írak. Einnig sprakk
bílsprengja í miðborg Bagdad í
gær og fórust þar fjórir óbreyttir
borgarar.
Árásirnar í Bakúba og Ramadí
eru þær mannskæðustu sem orðið
hafa í landinu mánuðum saman.
Þá felldu bandarískir hermenn
sex íraska uppreisnarmenn, sem
höfðu ráðist á þá. Íraska lögregl-
an segir tvo pilta einnig hafa
fallið, en Bandaríkjaher neitar
því. - gb
Bílsprengjur í Írak:
Mannskæðustu
árásirnar lengi
BÍLSPRENGJA SPRENGD Íbúar í Bagdad
bregðast við. FRÉTTABLAÐIÐ/AP