Fréttablaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 16. apríl 2008 15
KOSOVO Stjórn hins nýstofnaða Kosovoríkis hefur
engan áhuga á að láta rannsaka ásakanir um að
Kosovo-Albanir hafi árið 1999 drepið hóp ungra
Serba til að selja úr þeim líffæri. Ríkisstjórn Serbíu
hyggst hins vegar fara formlega fram á það að
stríðsglæpadómstóll í Haag hefji rannsókn á málinu.
Carla del Ponte, fyrrverandi aðalsaksóknari
stríðsglæpadómstóls í Haag, segir í nýrri bók sinni
frá því að dómstólnum hafi borist upplýsingar um að
sumarið 1999, undir lok Kosovostríðsins eða jafnvel
eftir að því var nýlokið, hafi hópur Serba verið
fluttur til Albaníu þar sem læknar hafi fjarlægt
líffæri úr einstaklingum úr hópnum. Þetta hafi gerst
með vitneskju hátt settra foringja í KLA, Frelsisher
Kosovo, en æðsti leiðtogi hans er Hasim Thaci,
núverandi forsætisráðherra Kosovo.
Del Ponte fór árið 2002 ásamt starfsfólki dóm-
stólsins á staðinn, skammt norður af Pristina,
höfuðborg Albaníu, þar sem brottnám líffaranna var
sagt hafa átt sér stað. Í húsi þar fundust meðal
annars leifar af blóði, sprautunálar og vöðvaslökun-
arlyf sem oft eru notuð við skurðaðgerðir.
Þessi fundur styður ásakanirnar, sem upphaflega
bárust frá blaðamönnum og starfsmönnum Samein-
uðu þjóðanna, en nægir þó ekki til að sanna neitt.
Mannréttindasamtökin Human Rights Watch
segja ásakanir Cörlu del Ponte svo vel rökstuddar að
hefja þurfi rannsókn á málinu hið fyrsta. - gb
Kosovostjórn segir ekkert hæft í ásökunum um líffærastuld sumarið 1999:
Serbar krefjast rannsóknar
FORSÆTISRÁÐHERRA KOSOVO Hasim Thaci er fyrrverandi leið-
togi KLA, hersveitanna sem sakaðar eru um líffærasmygl.
NORDICPHOTOS/AFP
HÖFÐABORG, AP Innan við átján af
hundraði þingmanna í heiminum
eru konur og hlutfallið er hærra á
þjóðþingum margra þróunarlanda
en rótgróinna vestrænna lýðræð-
isríkja. Þetta kemur fram í úttekt
sem lögð var fram á ársþingi
Alþjóða þingmannasambandsins í
Höfðaborg í Suður-Afríku. Þrír
alþingismenn sitja þingið.
Í úttektinni kemur fram að
hæst er hlutfall þingkvenna á
þingi Rúanda, 48 prósent. Næst
þar á eftir koma þingin í Svíþjóð,
Finnlandi og Argentínu. Banda-
ríkjaþing er í 71. sæti með 16
prósent. Þriðjungur fulltrúa á
Alþingi Íslendinga eru konur. - aa
Alþjóðasamtök þingmanna:
Aðeins fimmti
hver er kona
ÍRAN, AP Reza Zarei, lögreglustjóri í
Teheran, höfuðborg Írans, var í
síðasta mánuði handtekinn og
rekinn eftir að hann var tekinn
nakinn í bólinu með sex konum á
vændishúsi í borginni. Talsmaður
lögregluyfirvalda í Íran, skýrði frá
þessu í gær. Málið hefur vakið
mikla athygli í Íran, þar sem vændi
er ólöglegt og illa séð að tala
opinberlega um kynlíf.
Stjórnvöld hafa allt fram á
síðustu ár ekki viljað viðurkenna
að vændi þekkist í landinu, en
vændiskonur hafa þó orðið æ
meira áberandi síðustu misseri.
Lögreglustjórinn fyrrverandi hafði
haft umsjón með því að útrýma
spillingu og siðleysi í borginni, og
meðal annars staðið fyrir handtök-
um á ungu fólki sem virti ekki
reglur íslamstrúar um klæðaburð
eða samskipti kynjanna. - gb
Lögreglustjóri rekinn í Íran:
Fannst nakinn
á vændishúsi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Hvols velli tók 27 ökumenn fyrir
hraðakstur í umdæmi sínu í
síðustu viku.
Sá sem hraðast ók var á 139
kílómetra hraða og óku sjö
ökumenn á yfir 120 kílómetra
hraða þar sem leyfilegur
hámarkshraði er níutíu kílómetr-
ar á klukkustund.
Frá áramótum hafa 340
ökumenn verið teknir fyrir að
aka of hratt í umdæminu.
Jafngildir það því að rúmlega
þrír ökumenn hafi verið teknir
fyrir hraðakstur í umdæminu á
degi hverjum.
Af þeim voru 53 á yfir 120
kílómetra hraða. Sá sem hraðast
ók var á 171 kílómetra hraða á
klukkustund, sem er tæplega
helmingi meiri hraði en
leyfilegur er. - ovd
340 teknir frá áramótum:
Hraðakstur
við Hvolsvöll
SIMPLY CLEVER
HEKLA Laugavegi 172-174 · Sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is · Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranes · Ísafjörður · Reyðarfjörður · Reykjanesbær · Selfoss
SIMBABVE, AP Stjórnarandstaðan í
Simbabve segist því aðeins taka
þátt í seinni umferð forsetakosn-
inga að alþjóðasamfélagið stjórni
framkvæmd þeirra.
Stjórnarandstaðan boðaði í gær
til allsherjarverkfalls um land
allt, en lítið varð úr því og margir
íbúar í höfuðborginni Harare
sögðust ekkert hafa orðið varir
við neitt verkfall.
Úrslit forsetakosninga, sem
haldnar voru fyrir tæpum þremur
vikum, hafa enn ekki verið birt
opinberlega. Morgan Tsvangirai,
helsti leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar, segist hafa öruggar heim-
ildir fyrir því að hann hafi sigrað
í kosningunum. Tregða stjórn-
valda til að birta niðurstöðurnar,
þykir staðfesta það.
Robert Mugabe forseti krefst
þess að haldin verði önnur umferð
kosninganna. Lögregla og her
landsins standa með forsetanum
og hafa viðbúnað til að hindra
verkfallsaðgerðir.
„Tsvangirai er til í að taka þátt í
seinni umferð svo fremi sem þró-
unarsamtök Suður-Afríku og
alþjóðasamfélagið stjórni fram-
kvæmd þeirra,“ segir George
Sibotshiwe, talsmaður Tsvangira-
is. „Kjörstjórnin hefur greinilega
enga burði til að halda trúverðug-
ar kosningar.“ - gb
Stjórnarandstaðan í Simbabve treystir ekki kjörstjórn til að halda kosningar:
Lítið varð úr boðuðum verkfallsaðgerðum
EKKERT VERKFALL Íbúar í Harare héldu til vinnu sinnar í gær, þrátt fyrir boðaðar
verkfallsaðgerðir. NORDICPHOTOS/AFP