Fréttablaðið - 16.04.2008, Síða 20
[ ]Sólarder eða sólhatt þarf að hafa þegar ferðast er til heitari landa til að forðast sólsting og bruna. Drekka þarf mikinn vökva til að varna ofþornun.
Nýverið varð til eitt öflugasta
útivistarfyrirtæki landsins.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa
gert samning um kaup á Íslensk-
um ferðamarkaði, ásamt því að
undirrita samkomulag um sam-
einingu við Iceland Rovers. Fyrir-
tækið verður rekið undir nafni
Íslenskra fjallaleiðsögumanna.
Með sameiningunni verður til
eitt öflugasta fyrirtæki landsins í
rekstri og sölu göngu-, hvata- og
ævintýraferða. Íslenskir fjalla-
leiðsögumenn var stofnað 1994 og
hefur sérhæft sig í gönguferðum á
skriðjökla og hæstu tinda lands-
ins, sem og í lengri gönguferðum
hér heima og í útlöndum. Iceland
Rovers var stofnað 1997 og hefur
sérhæft sig í afþreyingu, hvata-
og jeppaferðum, auk hópeflis og
menningartengdri ferðaþjónustu.
Íslenskur ferðamarkaður er sér-
hæft þjónustufyrirtæki við
erlenda ferðamenn sem selur fjöl-
breytt úrval dagsferða, skoðunar-
ferða og afþreyingar. - þlg
Lykill að
ævintýrum
Það er auðvelt að lenda í ævintýrum
uppi á fjöllum.
Ný sæti, afþreyingarkerfi og
íslensk menning eru aðalsmerki
ímyndarbreytingar Icelandair
sem nú stendur yfir.
Icelandair rekur í dag ellefu Boe-
ing 757 farþegavélar sem eru frá
árunum 1989 til 2002. Samhliða
nauðsynlegum endurbótum ákvað
félagið að ráðast í viðamikla ímynd-
arbreytingu sem nú stendur yfir.
„Samkeppni meðal alþjóðlegra
flugfélaga er meiri en nokkru
sinni. Þessar breytingar eru því
liður í að marka enn frekar sér-
stöðu Icelandair. Breytingarnar
munu hafa í för með sér auknar
tekjur vegna afþreyingarkerfis-
ins. Hinsvegar munum við ekki
hækka fargjöldin,“ segir Halldór
Harðarson, yfirmaður markaðs-
sviðs.
Stærstu breytingarnar eru leð-
ursæti með betra plássi og afþrey-
ingar- og skemmtikerfi fyrir far-
þega. „Í hverju sætisbaki er
snertiskjár með tónlist, kvikmynd-
um, bæði nýjum og gömlum, sjón-
varps- og heimildaþáttum auk
ýmissa tölvuleikja sem hægt er að
spila á milli sæta. Síðan eru í boði
upplýsingar um sjálft flugið og að
sjálfsögðu góð kynning á landi og
þjóð,“ segir Halldór, en eitt af
markmiðunum er að kynna
íslenska menningu fyrir ferða-
löngum. Í því samhengi nefnir
hann hluta úr bókinni Íslendingar
eftir Unni Jökulsdóttur og Sigur-
geir Sigurjónsson, heimildaþætti
og íslenskukennslu. Halldór segir
þó að kerfið geti ekki tekið við efni
af iPod né flakkara.
Hljóðkerfi vélanna hefur einnig
verið skipt út og þaðan mun óma
tónlist og hljóðverk með skírskot-
anir í náttúruna, meðal annars
eftir tónlistarmennina í Ghostigi-
tal, þá Einar Örn og Curver.
Á almennu farrými kostar
aðgengi að úrvali kvikmynda tíu
dollara, sem er á núgildandi gengi
745 kr. Hinsvegar er aðgengi að
öðru efni frítt. þegar fram líða
stundir stendur einnig til að bjóða
íslenskar kvikmyndir, að sögn
Halldórs.
Nýir einkennisbúningar sem
líta dagsins ljós á næstunni eru
einnig hluti af heildaryfirhalningu
félagsins. Steinunn Sigurðardóttir
hönnuður hefur haft veg og vanda
og leitað innblásturs í íslenska
náttúru. Eldfjöllin okkar koma
einnig við sögu og munu vélarnar
skarta nöfnum ellefu slíkra þegar
breytingum lýkur.
Boeing 757 vélar Icelandair eru
þær fyrstu í heiminum sem ganga
í gegnum þessar breytingar. Að
sögn Halldórs hafa nú fleiri flug-
félög fylgt í kjölfarið og er nú
tveggja ára biðlisti eftir sætunum
og afþreyingarkerfunum.
rh@frettabladid.is
Bíó og leikir um borð
Guðjón Arngrímsson, talsmaður Icelandair, og Halldór Harðarson markaðsstjóri í
æsispennandi leik í nýja afþreyingar- og skemmtikerfi Boeing 757 vélanna.
Flugleiðin kemur fram á nýja snertiskjánum, sem og flugtími sem eftir er.
ferðavernd
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
Ferðavernd býður upp á bólusetningar
og ráðgjöf til ferðamanna. Þjónustan er í
umsjón Helga Guðbergssonar, læknis.
Vinnuna annast læknar og hjúkrunarfræðingar.
Mikilvægt er að panta bólusetningu og leita
ráðgjafar tímanlega áður en haldið er utan.
Tímapantanir í síma: 535 77 00
www.ferdavernd.is
Hertz Car Rental
Flugvallarvegi
101 Reykjavik, Iceland
hertz@hertz.is
Tel. +354 522 44 00
Fax. +354 522 44 01 www.hertz.is
Bókaðu bílinn fyrir 1. maí á
www.hertz.is og fáðu 1000 vildarpunkta
hjá Vildarklúbbi Icelandair.
Tilboðið gildir til 1. maí.
Hertz hefur yfi r 7600 afgreiðslustaði í 146 löndum.