Tíminn - 26.01.1982, Side 4

Tíminn - 26.01.1982, Side 4
Þriðjudagur 26. jantíar 1982. „FRABÆR SNJÓR OG SKJÐAFÆRI” á annað þúsund manns fóru á skídi, fyrsta daginn sem opið var í Bláf jöllum Menn kunnu vel að meta það þegar loksins var opnað i Bláfjöllum sl. sunnudag. ■ Langþráð stund margra Sunn- lendinga rannupp rai á sunnudag- inn, þegar skiðaaðstaðan í Blá- fjöllum var opnuð almenníngi, en hingað til hefur ekki verið nægur snjór i fjöllunum, til þess að hægt væri að opna. Ljósmyndarinn okkar, hannr Róbert var á ferö- inni i Bláfjöllum á sunnudaginn og smellti nokkrum skiðamynd- um af skiðaiðkendunum sem vigðu aðstööuna þetta árið. Blaðamaður Timans ræddi litil- lega við Þorstein Hjaltason, for- stöðumann i Bláfjöllum, um skiöaaöstöðuna og aösóknþennan fyrsta dag. „Viö vorum meö þrjár lyftur opnar, hérna hjá Bláfjallanefnd i gær, og auk þess var Fram með sina lyftu opna. Þeir hjá Breiöa- blik eru með nýja lyftu, og eru nú að undirbUa að taka hana i notk- un.” „Frábær snjór og skiða- færi” — Er þá kominn nægur snjór i Bláfjöll núna? „Þaö er alveg frábær snjór hérna nírna og skiöafæri. Þaö hefur snjóað talsvert i nótt og veriö skafrenningur i morgun, þannig aö þaö hefur bætt töluvert á hérna, svo við erum komnir með hinn ágætasta skiðasnjó. Að visu hefur veriö það hvasst i morgun, að við höfum ekki getaö haftopið i dag, en þaö stendur nú vonandi allt til bóta. Ef þessi snjór tollir, þá er allt hér komiö i eðlilegt horf og viö getum farið aö hafa opið dag- lega.” — Hvernig er opnunartima hjá ykkur háttað? „Við opnum kl. 13 alla virka daga og höfum opið á mánudög- um og föstudögum til kl. 18, en á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum höfum við opið til kl. 22 og eftir að dimma fer, þá flóðlýsum við brekkurnar. Um helgar þá opnum við kl. 10 á morgnana og erum með opið til kl. 18. Þaö er,alltaf troöiö hjá okkur, jafnaö úr snjónum og lagöar gönguslóðir, eftir þvi sem viðrar, þannig að aðstaða sú sem hér er boðið upp á er hin ágætasta.” — Hvað giskar þú á að margir hafi notfært sér tækifærið I gær, og komið i Bláf jöllin og rennt sér á skiðum? „Hérna hjá okkur, reikna ég með að alls hafi komiö hingað i gær eitthvað á annað þUsund manns. Það var ansi skemmtilegt ■ Þaö er ekki mikiö verk að bregða á sig skiöunum nú til dags fullkominn er útbúnaðurinn orðinn. hérna framan af deginum og þá var mikið af fólki, en hann rauk upp i'ansi miklu hvassviöri svona upp úr kl. 4 og kl. 5 urðum við að ■ Maður getur nú þreyst á þvi að renna sér á skiðum, sérstaklega ef maður er aðeins nokkurra ára byrjandi, sem er að berjast við að læra „plóginn”. Þá getur verið gaman aö breyta til og búa til risasnjóbolta. Timamyndir: Róbert. loka lyftunum, enda hélst fólk lit- ið á skiðum eftir að gerði þetta norðaustan hvassviðri.” Þorsteinn sagði að ánægja Blá- fjallagesta með að geta nú loks- ins brugðið sér á skiði hefði verið mjög almenn og augljós, enda væri fólk bUið að biða þessarar stundar lengi. Sagði hann að það hefði veriðansi þreytandi að biöa eftir snjónum, þvi að undanförnu hefði verið þetta fina veður, en enginn snjór. Sagðist Þorsteinn treysta þvi, að ef það gerði frost núna, þá yrði nægur snjór i Blá- fjöllum á næstunni. —AB * ■ Svona kappar eru nú ekki ýkja vinsælir i skiðabrekkunum, en alltaf er talsvert um það i Biáfjöilunum, sem og á öðrum skiðasvæöum að vélsleðakappar séu að leik. ■ Gönguskiöin standa alltaf fyrir sinu, og auk þess sem það veitir manni holia og góða hreyfingu að ganga á gönguskíöum, þá fylgir notk- un þeirra sá kostur, að ekki þarf maður að hima timunum saman i löngum biðröðum við Jyfturnar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.