Tíminn - 26.01.1982, Blaðsíða 17

Tíminn - 26.01.1982, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 26. janúar 1982. 17 Iþróttir „Völlurinn var eitt drullusvað” — sagði Arnór Guðhjonsen, Lokeren náði jafntefli gegn Standard þrátt fyrir furðulegan vítaspyrnu- dóm — Sævar lék með Brugge en Pétur, Lárus og Ragnar voru ekki með í leikjum sinna liða ■ „Þetta var ágætur leikur og sérstaklega i fyrri hálfleik þá náöu liöin að sýna góöa knatt- spyrnu þrátt fyrir að völlurinn væri eitt drullusvaö” sagöi Arnór Guöhjonsen sem leikur meö Lokeren í Belgiu í samtali viö Tlmann I gær. lto.keren lék á sunnudaginn viö Standard Liege og fór leikurinn fram á heimavelli Standard og lauk honum meö jafntefli 2-2. „Það er mjög gott að ná jafn- tefli á útivelli og sérstaklega gegn Standard, sem er i þriðja sæti i deildinni. Við tókum forystuna i leiknum á 15.min. með marki frá Larsen en tiu min. fyrir lok fyrri hálfleiks tókst Standard að jafna metin. Þeim tókst siðan að komast yfir i upphafi siðari hálf- leiks. Um miðjan seinni hálfleik fékk Standard dæmda auka- spyrnu rétt fyrir utan vitateiginn hjá okkur um leið og leikmaður Standard spyrnti i boltann flaut- aði dómarinn og allir stóðu kyrr- ir, einn leikmanna okkar tók þá boltann með höndunum inn i vita- teig hjá okkur en þá flautaði dómarinn og dæmdi vitaspyrnu öllum til undrunar. Það héldu all- ir að hann ætlaði að láta endur- taka aukaspyrnuna, þvi þetta var furðulegur dómur. Það vildi bara svo vel til að hollenski markvörö- urinn okkar varði vitaspyrnuna frá Tahmata. Okkur tókst siðan að jafna met- in er 10 min voru til leiksloka og vorum við ánægðir að ná öðru stiginu”. Að sögn Arnórs þá léku þeir Lárus Guðmundsson og Ragnar Margeir ekki með sinum félögum i leikjum liða þeirra en Sævar Jónsson lék með Brugge er þeir og Lierse gerðu jafntefli 2-2. Pétur Pétursson lék ekki með meisturum Anderlecht er þeir unnu stórsigur á Tongeren. Staðan i Belgiu er nú þannig: Anderlecht 18 12 3 3 35-18 27 Gent 19 10 6 3 28-14 26 Standard 19 10 6 3 29-18 26 Courtrai 19 11 2 6 27-24 24 Antwerpen 18 10 4 4 28-13 24 Lierse 19 9 5 5 28-25 23 Molenbeek 19 9 2 8 27-26 20 Lokeren 18 7 6 5 23-19 20 Waregem 18 7 5 6 22-18 19 Beveren 18 6 7 5 20-16 19 Beringen 18 6 4 8 19-25 16 Waterschei 18 5 5 8 20-31 15 Tongeren 19 5 5 9 22-35 15 CS Brugge 18 4 5 9 29-33 14 FC Liege 19 5 4 10 21-29 14 FC Brugge 18 4 3 11 24-31 11 Wintersiag 17 3 5 9 11-26 11 Mechelen 19 2 4 13 16-30 8 ■ Arnór Guðhjonsen knattspyrnumaöur meö Lokeren I Belgfu. Danir höfnuðu Jóhanni — Mikkelsen verdur áfram þjálfari danska landslidsins í handknattleik ■ Jóhann Ingi Gunnarsson fyrr- verandi landsliðsþjálfari i hand- knattleik og þjálfari KR veröur ekki landsliðsþjálfari hjá Dönum danska handknattleikssambandið hefur ákveðið að endurnýja samning sinn við Leif Mikkelsen. Eins og fram hefur komið var stjórn danska handknattleiks- sambandsins ekki á einu máli hvort hún ætti að endurnýja samning sinn við Mikkelsen og var þvi rætt við Jóhanna Inga hvort hann yröi tilbúinn til að taka að sér liöið. Jóhann Ingi fór á dögunum til Kaupmannahafnar og ræddi við Gunnar Knudsen for- mann danska sambandsins. Stjórn danska sambandsins hélt siöan á laugardaginn fund og á þeim fundi var ákveöið að endurráða Mikkelsen. röp-. ■ Jóhann Ingi Gunnarsson. Léttur sigur Þróttar — yfir UMSE i I. deild i blaki — ÍS sigraði Viking og i I. deild kvenna sigraði ÍS lið Breiðabliks ■ Tveirleikir fóru fram i 1. deild karla i blaki um helgina. UMSE og Þróttur léku á Akureyri og sigraöi Þróttur i þeirri viðureign 3-0 hrinurnar fóru þannig, 14-16, 8-15 og 10-15 UMSE átti viö ramman reip að draga þar sem Þróttarar eru, þeir hafa ekki tapað leik á yfirstandandi ís- landsmóti og eru i efsta sæti I deildinni. Þá fengu Vikingar Stúdenta i heimsókn og var sá leikur öllu jafnari heldur en sá sem fram fór á Akureyri. Stúdentar fóru með sigur af hólmi 1-3 og hrinurnar i þeim leik enduöu þannig: 9-15 12-15^:5-3 10-15.1 raun má segja að þessir leikir hafi endaö eins og fyrir var gert ráð fyrir. Einn leikur fór fram I 1. deild kvenna og áttust þar við IS og Breiðablik og lauk þeim leik með öruggum sigri Stúdina 3-0,16-14 15-5 og 15-13. röp-. Staðan ■ Staöan i úrvalsdeildinni i körfuknattleik er nú þessi: Njarövik — ÍS 109-102 IR — Fram 78-77 KR — Valur 81-78 Njarövik ...13 11 2 1139-1025 22 Fram ....... 13 9 4 1094-1001 18 Valur....... 13 7 6 1056-1023 14 KR.......... 13 7 6 1014-1081 14 1R.......... 13 4 9 1001-1083 8 IS.......... 13 1 12 1043-1174 2 Leik Vfkings og KA frestað ■ Fyrirhugaö var að Vikingur og KA léku i gærkvöldi i Laugardals- höllinni i 1. deild karla á tslands- mótinu en leiknum varö að fresta þar sem KA-menn komust ekki suður vegna veðurs. 1 gærkvöldi lá ekki fyrir hvenær leikurinn yröi settur á að nýju. röp-. Teitur skoraði — fyrir Lens, en það dugði skammt Lens tapaði 1:3 fyrir St. Etienne — Laval liðið sem Karl Þórðarson leikur með sigraði Nice 5:0 ■ Teitur Þóröarson sem leikur Etienne sem er i efsta sæti. meö franska félaginu Lens skor- Staðan i Frakklandi er nú aöi fyrir félag sitt er þeir léku viö þannig: St. Etienne en þaö dugöi Lens St. Etienne 24 16 6 4 48-20 34 skammt þar sem Etienne sigraöi Monaco 24 14 4 6 46-24 32 i leiknum 3-1. Lens er nú i næst Bordeaux 23 12 8 3 36-23 32 neösta sæti i 1. deildinni frönsku Laval 24 11 8 5 32-23 30 hefur hlotiö 14 stig aö loknum 23 Sochaux 22 11 7 4 34-24 29 leikjum en sama stigafjölda og i ParisSG 23 10 7 6 35-22 27 neösta sæti er Nice en hefur leikiö Lille 24 10 7 7 36-34 27 einum leik meira. Brest 24 9 9 6 32-32 27 Karl Þórðarson var einnig i Nancy 23 8 8 7 34-29 24 sviösljósinu en Karl leikur með Nantes 23 9 5 9 24-26 23 Laval en þeir léku viö neðsta liðið Tours 24 9 4 11 37-36 23 Nice og unnu Karl og félagar Bastia 22 8 6 8 30-39 22 stórsigur 5-0. Karl Þóröarson lék Lyon 24 9 4 11 19-23 22 meö Laval gegn Nice en undir lok Montpellier 23 6 6 11 21-38 18 leiksins varð hann að skipta út af Auxerre 22 6 6 10 20-38 18 hafði fengiö mörg spörk i sig en Strasbourg 21 6 5 10 23-26 17 leikurinn þótti ákaflega grófur. Valenciennes 23 6 4 13 23-40 16 Laval er nú i fjórða sæti i Metz 22 2 11 9 16-26 15 frönsku deildinni hefur hlotiö 30 Lens 23 5 4 14 24-40 14 stig fjórum stigum minna en Nice 24 4 6 14 22-41 14 ■ Teitur Þóröarson skoraöi fyrir Lens.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.