Tíminn - 26.01.1982, Page 15
Þriðjudagur 26. janúar 1982.
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Watford gerir þad
ekki eradasleppt
— fyrst lögdu þeir United að velli og nú fékk West Ham að fjúka úr
bikarnum — Leeds, Sunderland, Man. City og Brighton
voru einnig slegin út úr bikarnum
■ úrslit leikja i bikar-
keppnum vilja oft verða á
annan veg en gert hefur
verið ráð fyrir áður en
leikirnir hefjast og enska
bikarkeppnin á laugar-
daginn var þar engin
undantekning.
Á laugardaginn var
leikin fjórða umferð i
bikarkeppninni og þar
urðu nokkuð óvænt úrslit
eins og vera ber i slíkum
keppnum. Sputnik líðíð
Watford úr 2. deild gerði
það ekki endasleppt á
laugardaginrw Watford
sem nýlega sló Man.
United úr bikarnum
gerði sér litið fyrir og sló
annað 1. deildarlið út á
laugardaginn er þeir
sigruðu West Ham 2-0. En
■ Birtles meö mark...
1. deild
Ipswich 18 12 2 4 35-23 38
Southampton 21 11 4 6 39-30 37
Man. United 20 10 6 4 32-16 36
Man.City .. 21 10 5 6 30-23 35
Everton .... 22 9 6 7 32-27 33
Swansea ... 21 10 3 8 31-33 33
Nottingh F . 20 9 5 6 25-26 32
Liverpool... 19 8 6 5 29-20 30
Brighton ... 20 7 9 4 25-19 30
Arsenal .... 18 9 3 6 17-15 30
Tottenham . 17 9 2 6 26-19 29
West llam .. 18 6 8 4 33-26 26
W.B.A 18 6 6 6 23-19 24
Notts County 19 6 5 8 27-31 23
Leeds 19 6 5 8 20-32 23
Aston V'illa . 20 5 7 8 23-24 22
Coventry ... 21 6 4 11 31-36 22
Stoke 21 6 3 12 24-33 21
Wolvés 20 5 4 11 13-30 19
Birmingham 18 4 6 8 26-28 18
Sunderland. 19 3 5 11 16-33 14
Middlesboro 18 2 6 10 16-30 12
West Ham var ekki eina
1. deildarliðið sem var
slegið út úr keppninni.
Leeds, Man. City og
Sunderland voru einnig
slegin út en sárabót
þeirra er sú að þar voru 1.
deildarlið að verki.
En af leikjunum á laugardag-
inn kom örugglega langmest á
óvart sigur 3. deildarliös Oxford
yfir 1. deildarliöi Brighton en
Oxford geröi sér litið fyrir og
sigraði 0-3 og það á heimavelli
Brighton, sigur sem sjálfsagt
hefurekkisist komið þeim sjálf-
um á óvart. En litum á úrslitin i
4. umferð bikarsins:
Bristol City-Aston Villa 0-1
Brighton-Oxford 0-3
Blackpool-Q.P.R. 0-0
Chelsea-Wrexham 0-0
Crystal Palace-Bolton 1-0
Gillingham-W.B.A. 0-1
Luton-Ipswich 0-3
Man. City-Coventry 1-3
Newcastle-Grimsby 1-2
Norwich-Doncaster 2-1
Sunderland-Liverpool 0-3
Shrewsbury-Burnley 1-0
Hereford-Leicester 0-1
Tottenham-Leeds 1-0
Watford-West Ham 2-0
Leikmenn Watford tóku leik-
inn gegn West Ham strax i sinar
hendur og gjörsamlega yfirspil-
uðu andstæðinga sina i leiknum.
Watford var alls ráðandi i leikn-
um en tókst samt ekki að skora
fyrr en á fyrstu minútunni i
seinni hálfleik. Phil Parkes
markverði West Ham mistókst
að ná til boltans er hann var gef-
inn fyrir mark West Ham.
Gerry Armstrong náði boltan-
um og skoraði auðveldlega. A
73. minútu bættu Watford siöan
öðru marki við og var hinn 19
ára Nigel Neatly þar að verki.
Keith Cassels markaskorar-
inn mikli hjá Oxford kom þeim á
bragðið i leiknum gegn Brighton
er hann skoraði fyrsta mark
þeirra efst i hornið á marki
Brighton á 20. minútu. Leik-
menn 3. deildarliðs fylgdu þessu
vel eftir og Peter Foley bætti viö
tveimur mörkum, það fyrra á 42
min og hið siðara kom i upphafi
seinni hálfleiks og Brighton átti
sér ekki viðreisnarvon i leikn-
um.
Góöur sigur Ipswich
Leikur Luton efsta liðsins i 2.
deild og Ipswich efsta liðsins i 1.
deild var i jafnvægi i fyrri hálf-
leik en i seinni hálfleik fóru leik-
menn Ipswich smátt og smátt
að taka leikinn i sinar hendur. A
62. min skoraði Alan Brazil
fyrsta mark Ipswich með
vinstri fótarskoti og átta minút-
um siðar bætti Eric Gates við
öðru marki og hann var aftur á
ferðinni á 86. min. og innsiglaði
sigur Ipswich. Mick Mills fyrir-
liði Ipswich lék gegn Luton sinn
700. leik fyrir Ipswich.
Hartford rekinn af veli
Mikiö gekk á er Coventry sótti
Man. City heim i bikarnum.
Skoski landsliðsmaðurinn hjá
Man. City Asa Hartford var rek-
inn af velli i fyrri hálfleik.
Coventry mun betri aðilinn i
leiknum gekk á lagið og áður en
fyrri hálfleik lauk voru þeir
búnir að skora tvö mörk, fyrst
Steve Hunt og siðan Mark Hate-
ley. Peter Bodak bætti siðan
þriðja markinu við i seinni hálf-
leik og þó að City fengi vita-
spyrnu sem Kevin Bond skoraði
úr þá breytti það litlu. City sem
lék til úrslita við Tottenham i
fyrra situr þvi nú eftir meö sárt
enniö þar sem þeir hafa verið
slegmr út úr bikarnum.
Liverpool eöa öllu fremur
Kenny Dalglish gerðu út um
leikinn gegn Sunderland á
fyrstu 15 minútunum. Kenny
Dalglish skoraöi þá tvö mörk
fyrir Liverpool. Ian Rush inn-
siglaði siðan sigur Liverpool 11
min fyrir leikslok.
lan Kush skoraði...
Aston Villa heppiö
Heppnismark Aston Villa að-
eins 16 min fyrir leikslok færði
þeim 0-1 sigur yfir Bristol City
og áframhald i 16 liða úrslitin i
bikarkeppninni. Tólf minútum
Southampton
í annað sætið
— nýliöinn David Puckett skoraöi tvö mörk fyrir
„dýrlingana” gegn Arsenal — Southamton skaust
upp í annað sætid en Ipswich hefur enn forystu
■ Fjórir leikir fóru fram í 1
deild ensku knattspyrnunnar
um helgina og einnig voru fjórir
leikir leiknir i 2. deild.
Southampton skaust upp i
annað sætið i 1. deild eftir 3-1
sigur á Arsenal og Man. United
er komið i þriðja sætið i deild-
inni eftir 0-3 sigur á Stoke á
heimavelli Stoke. Ipswich hefur
sem fyrr forystuna i deildinni,
hefur hlotið 38 stig eftir 18 leiki,
Southampton er með 37 stig en
hefur leikið 21 leik, Man. United
hefur leikið 20 leiki og er með 36
stig.
En þráttfyrir sigur Sothamp-
ton á Arsenal þá voru það
Arsenal sem tók forystuna i
leiknum með marki David
O’leary en á 3a min jafnaði
David Armstrong fyrir South-
ampton. O’leary varð silian að
yfirgefa völlinn undir lok fyrri
hálfleiks með brotinn ökkla og
veikti það mikið leik Arsenal.
Hinn 21 árs David Puckettsem
lék i stað Steve Moran hjá
Southampton var hetja þeirra.
Puckett skoraði tvö mörk i
seinni hálfleik og tryggði
Southampton sigur í leiknum.
Félögin frá Nottingham, Nott-
ingham Forest og Notts County
mættust i 1. deildinni á heima-
velli Forest á laugardaginn og
var það i fyrsta skipti i 57 ár
sem þessi félög mætast i 1.
deild. A 23. min fyrri hálfleiks
fékk Forest dæmda vitaspyrnu,
en John Robertsson mistókst að
skora úr vi'tinu. Við þetta var
eins og allur vindur væri úr For-
est og i seinni hálfleik var
County mun betri aðilinn i leikn-
um og þeir Paul Hooks og
Trevor Christie skoruðu fyrir
County.
Steve Coppel tók forystuna
fyrir Man. United I leiknum
gegn Stoke er hann skoraði á 11.
min leiksins. Leikmenn Stoke
reyndu ákaft að jafna metin en
án árangurs en þremur min
fyrirleikslok skoraði United tvö
mörk og innsiglaöi sigur sinn.
Frank Stapleton skoraði úr
vitaspyrnu og Garry Birtles
skoraði þriöjamark United sem
við þennan sigur komst i þriðja
sætiö i deildinni.
Kevln Richardsson skoraöi
snemma fyrir Everton i
leiknum gegn Wolves og þetta
mark setti leikmenn Wolves út
af laginu. Alan Irvin skoraði
siöan tvivegis fyrir Everton eitt
mark i hvorum hálfleik.
Úrslit leikja i 2. deild:
Bla ck burn -R ot he rha m 2-0
Charlton-Cambridge 0-0
Derby-Oldham 1-0
Orient-Barnsley 1-3
fyrir leikslok fengu leikmenn
Aston Villa hornspyrnu, gefið
var fyrir markiö, skallaö frá
marki og boltinn hrökk til Gary
Shaw sem skaut lausu skoti
framhjá Jan Moller markveröi
Bristol City.
Þaö var ekki fyrr en Mike
Hazard var skipt inn á sem
varamanni hjá Tottenham i
leiknum gegn Leeds aö Totten-
ham fór að ganga betur.
Hazard var ekki búinn aö vera
inn á nema i fimm min. er hann
byggði upp sigurmark Totten-
ham sem Garth Crooks skoraði
með jarðarbolta inn i vitateig
Leeds.
Grimsby sem berst á botnin-
um i 2. deild náði góðum sigri
yfir Newcastle i bikarnum er
þeir sigruðu 2-1 og það voru
leikmenn Grimsby sem skor-
uðu öll mörkin i leiknum. Kevin
Kilmore skoraöi fyrsta markið
og nafni hans Drinkell bætti
öðru við á 80. min. Phil Crosby
varð siðan á að skora i sitt eigið
mark rétt fyrir leikslok og með
þvi komst Newcastle á blað.
Statham hetja Albion
Bakvörðurinn Derek Statham
var hetja Albinon i leiknum
gegn þriðju deildarliði Gilling-
ham. Statham skoraöi sigur-
markið aðeins minútu fyrir
leikslok sigur sem svo sannar-
lega var ekki sanngjarn þar
sem Gillingham var mun betri
aðilinn i leiknum.
Leicester mátti teljast heppið
að ná sigri i leiknum gegn Here-
ford. Það var Larry May sem
skoraði mark Leicester á 20.
min fyrri hálfleiks. Hereford,
hvattur vel af yfir 10 þúsund á-
horfendum sem er mesti fjöldi á
heimavelli þeirra yfir fjögur ár,
sóttu stift i seinni hálfleik en
Leicester slapp með skrekkinn
og tókst að hanga á þessu eina
marki sinu.
Sigurmark Crystal Palace i
leiknum gegn Bolton var skorað
úr umdeildri vitaspyrnu sem
dæmd var á Bolton i fyrri hálf-
leik.
Boltinn kom viö höndina á
Gerry Mcelhinney inn i vitateig
en leikmenn Bolton töldu að þar
væri um óviljandi brotaðræða,
en dómarinn dæmdi vitaspyrnu
sem Jim Cannon skoraði Ur
sigurmark Crystal Palace.
röp-.
2. deild
Luton 20 14 3 3 44-20 45
Oidham ... 24 11 3 5 34-25 41
Watford ... 20 10 5 5 31-24 35
Blackburn. 24 9 8 7 20-24 35
Q.P.R 21 10 4 7 28-20 34
Sheff. W ... 20 10 4 6 26-25 34
Barnsley .. 20 10 3 7 33-22 33
Chelsea ... 21 9 6 6 30-29 33
Charlton .. 24 3 7 9 30-33 31
Norwich... 21 8 4 9 24-30 28
Newcastle . 19 8 3 8 26-21 27
Leicester.. 19 6 8 5 25-20 26
Derby 20 7 4 9 26-33 25
Cardiff.... 20 7 3 10 22-30 24
Orient 22 7 3 12 20-29 24
C. Palace.. 17 7 2 9 15-16 23
Shrewsbury 18 6 5 7 19-24 23
Cambridge 19 7 1 11 25-29 22
Rotherham 19 6 3 10 25-29 21
Bolton 21 6 3 12 19-31 21
Wrexham . 19 5 4 10 21-27 19
Grimsby .. 17 4 5 8 18-29 17