Tíminn - 02.02.1982, Page 6
Þriöjudagur 2. febrúar 1982.
6____________________________
þingfréttir
f réttir
Tölvuöldin í garð
gengin á
■ Daviö Aöalsteinsson hefur
mælt fyrir þingsályktunartil-
lögu sem hann flutti ásamt sex
öðrum þingmönnum Fram-
sóknarflokksins um þróunar-
horfur og stefnumótun i upp-
lýsinga- og tölvumálum.
Hér er hreyft máli sem á
eftir að skipta miklu með si-
aukinni notkun öreindatækni á
fjölmörgum sviðum.
Tillagan er svohljóöandi:
„Alþingi ályktar aö fram fari
athugun á stöðu og þróunar-
horfum i upplýsinga og tölvu-
málum og á hvern hátt unnt er
að stjórna þeirri þróun.
Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að skipa nefnd er
kanni almenna stöðu þessara
mála, þróunarhorfur og bendi
á valkosti varðandi stefnu-
mótun og opinbera á-
kvarðanatöku á fyrrgreindu
sviði.
Nefndin geri tillögur um
með hvaða hætti islenskt þjóð-
félag geti best numið og hag-
nýtt sér hina nýju tækni til al-
híiða framfara, svo sem aö
þvi er varöar atvinnumál,
félagsmál, fræðslumál, mál
varðandi almennar upp-
lýsingar og aðra þá þætti er
varða samfélagið. Nefndin
skal vib störf sin hafa hliösjón
af þeirri vinnu og þeim skýrsl-
um sem þegar kann aö vera
lokið hérlendis og erlendis
Nefndin skal hafa lokið störf-
um og birt niðurstööur fyrir
árslok 1982.”
1 framsöguræðu sinni rakti
Davið þá þróun sem orðin er i
þessum málum og benti á að
Alþingi
nauösyn bæri til að fylgst væri
vel með gangi þessara mála
og að þjóðfélagið verði tilbúið
að taka við þeim breytingum
sem fyrirsjáanlega verða á
upplýsinga- og tölvuöld.
Vilmundur Gylfason lýsti
yfir ánægju með tillöguna i
heild og sagði sjálfsagt að
styðja hana þótt sitthvað
mætti að henni finna.
Davið sagði það eðlilegt
enda vekti það aðallega fyrir
flytjendum hennar að vekja
máls á þessum atriðum og að
búa svo í haginn að þjóðin væri
sem best undirbúin að taka
þeim miklu breytingum sem i
vændum eru.
OÓ.
■ ólafur Þ. Þóröarson og Jón
Ingi Ingvarsson hafa lagt
fram frumvarp þess efnis aö
tekið sé tillit til kostnaðar for-
eldra við menntun barna sinna
við álagningu skatta.
Er lagt til að málsgrein i
lögum um tekju- og eignar-
skatt veröi breytt þannig, aö
ef maður hefur veruleg út-
gjöld vegna menntunar barna
sinna 14 ára og eldri, verði þau
að hluta frádráttarbær.
Greinargerð frumvarpsins
er svohljóðandi:
„Arlega er varið miklum íjar
munum af opinberu fé til
menntunar barna og ung-
menna. Foreldrar kosta
einnig miklu til menntunar
barna sinna. Það ræður miklu
um þeirra kostnað hvort hægt
er að ljúka grunnskólaprófi
innan sveitar eða hvort senda
þarf börnin langan veg til
náms i efstu bekkjum grunn-
skólans.
Samkvæmt lögum þurfa
nemendur i efstu bekkjum
grunnskóla að vera minnst 12 i
árgangi að meðaltali svo skóli
eigi rétt á að hafa efstu bekk-
ina. Meö þvi að safna þessum
nemendum saman og hafa
fleiri nemendur saman i bekk
sparar hið opinbera. Þetta
leiðir aftur á móti til stórauk-
inna útgjalda foreldra og
leiðir oft til búferlaflutninga.
Einnig er vitað að lægra hlut-
fall nemenda fer til fram-
haldsmenntunar frá þessum
svæðum og meira um það að
nemendur þar ljúki ekki
grunnskólanámi.
Það, sem hér er lagt til, er
aöeins skref i réttlætisátt. Með
bættum efnahag þjóðarinnar
veröa vonandi stigin stærri
skref. Jafnir menntunar-
möguleikar æskunnar eru ekki
bara réttlætismál, heldur
einnig undirstaða efnahags-
legrar velferöar þjóöarinnar”
Oó
Kostnaður við
menntun verði
frádráttarbær
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum deila við
kaupfélagið um gatnagerðargjöld:
KAUPFÉLAGH) SVKNAÐ
f BÆIARMNGIEN
BÆRINN AFRyjAR
■ „Þetta er prófmái. öllum hef-
ur fundist þetta réttlætismál, en
sumum á hinn bóginn virst spurn-
ing hvort þetta væri löglegt eða
ekki og þvi var ákveðið að fara i
prófmál”, svaraði Páll
Zóphóníasson bæjarstjóri i Vest-
mannaeyjum er Timinn ræddi við
hann um dóm i bæjarþingi þar
sem Kaupfélag Vestmannaeyja
er sýknað af kröfu bæjarsjóðs um
greiðslu gatnagerðargjalda af
húseignum félagsins við Báru-
götu i Vestmannaeyjum og bær-
inn hefur ákveðið aö visa til
Hæstaréttar.
Mál þetta gengur, i stuttu máli,
út á það hvort bænum er heimilt
að leggja á gatnagerðargjöld
þegar slitlag er lagt á þær götur
sem einhverntimann áður var bú-
iö að leggja slitlag á. I Vest-
mannaeyjum var um nokkrar
götur að ræða, þar sem þurfti að
taka fyrra slitlag af vegna af-
leiðinga gossins og annarra
ástæðna. Um leið var þá jafnvel
skipt um holræsi og um jarðveg
áður en nýtt slitlag var lagt á
aftur. Bárugatan var þá m.a.
hellulögð. Þá var samþykkt i
bæjarstjórn að leggja B-gatna-
geröargjöld á húseigendur við
þessar götur. En tekið skal fram
aö B-gatnagerðargjöld voru ekki
innheimt i Vestmannaeyjum fyrr
en eftir 1976 þannig að þarna var
ekki um endurálagningu aö ræða.
Páll sagði menn á einu máli um
að haldiö skuli áfram meö þetta
mál fyrir Hæstarétti. Nokkrir
húseigendur hafa þegar greitt
umrædd gjöld sem bærinn yrði þá
að endurgreiða ef hann tapar
málinu einnig fyrir Hæstarétti.
En vinni hann málið yrðu það á
hinn bóginn stærri fjárhæðir sem
hann fengi greiddar. —HEI
Timamynd: Ella
Það hefur verið nóg að gera i snjóbyggingaiðnaöinum undanfarna daga
þingfréttir
Málþóf um lækkun á
heimilistækjatollum
■ Frumvarp um breytingu á
tollskrá var rætt á alþingi i gær,
en i þvi' felst helmingslækkun á
tollum á ýmis heimilistæki, eða
úr 80% f 40%, og er lagt fram i
tengslum við efnahagsaðgeröir
rikisstjórnarinnar. Fjármálaráö-
herra mælti fyrir frumvarpinu og
kvaöst hann vænta þess að hægt
væri að afgreiða frumvarpiö
samdægurs i báðum deildum
þingsins.
1. ágúst s.l. gekk i gildi niður-
felling á 24% vörugjaldi á kæli-
skápum, þvottavélum, hrærivél-
um og ryksugum. Með frumvarp-
inu sem afgreiða átti i gær lækkar
verðá þessum tækjum enn meira,
en frumvarpið felur í sér lækkun
tolla um 50% á kæliskápum,
frystikistum, eldhúsviftum, upp-
þvottavélum, þvottavélum,
þurrkurum, strauvélum, ryksug-
um, viftum, hrærivélum og
brauöristum. Tekjutap rikissjóðs
vegna breytinganna eru um 22
millj. kr. á ári, að þvi er ætlað er.
Frumvarpið var lagt fram i
neðri deild og var hin efri starfs-
litil meðan umræður fóru fram.
Margirþingmenn tóku tilmáls og
gagnrýndu stjórnarandstæðingar
þann flýti sem þeim fannst vera á
afgreiðslu frumvarpsins og töldu
að ekki lægi nein ósköp á að af-
greiða það samdægurs. En sam-
kvæmt þingsköpum þarf laga-
frumvarp að fara til nefndar að
lokinni fyrstu umræðu, í þessu til-
felli fjárhags- og viöskiptanefnd-
ar ogþrjár umræöur að fara fram
i hvorri deiid. Nokkrir stjórnar-
andstæðingar lögðu til að tollar á
nokkrum vöruflokkum til viðbót-
ar yrðu endurskoðaðir og lækkað-
ir og kváðust vilja athuga frum-
varpið betur.
Fjármálaráöherra sagði að
frumvarpið hafi veriö lagt fram
s.l. fimmtudag og hefðu menn
haft nægan tima til aö skoða þaö
enþað væri einfaltað allri gerð og
vorkunnarlaust að afgreiða þaö á
einum degi.
Páll Pétursson, formaður þing-
fiokks Framsóknarflokksins kvað
mótstöðu stjórnarandstæðinga
koma sér á óvart, þar sem hann
vissi ekki betur en að samkomu-
lag hafi tekist með formönnum
þingflokkanna og fleiri aðilum
um að afgreiða málið á einum
degi og sagðist treysta þvi aö
frumvarpið yrði ekki tafið af
óþörfu.enda væri máliö einfalt og
væri afgreiðsla þess leikur einn.
Þegarliðinn var nær helmingur
þingtímans lauk fyrstu umræöu i
n.d. og málið sent i nefnd. Henni
var gefinn hálftimi til að skila af
sér en það tókst ekki svo aö enn
varð töf, en þingfundir boöaðir i
báðum deildum kl. 18.00.
Væntanlega hefur málið hlotið
farsæla afgreiöslu i' gærkvöldi og
stjórnarandstaðan sé að að sér,
svo að fólk geti farið að kaupa
ódýru heimilistækin sem fyrst.
OÓ