Fréttablaðið - 25.05.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
25. maí 2008 — 140. tölublað — 8. árgangur
FÓLK „Mér dugar aldrei dagurinn,
það er svo mikið að gera,“ segir
Margrét Árnadóttir, eigandi og
hönnuður prjónalínunnar M-
Design, sem hefur notið sívaxandi
vinsælda undanfarin ár. Vörurnar
höfða ekki síður til íslenskra
kvenna en ferðamanna og að sögn
Margrétar hafa ermaslár hennar
selst svo vel að lítið er eftir fyrir
vertíðina sem er fram undan.
Margrét hefur verið að búa til
og hanna úr ull í um 50 ár og er
enn uppfull af nýjum hugmyndum
þrátt fyrir að vera 79 ára gömul.
- ag / sjá síðu 30
Nær áttræð tískudrottning:
Hefur hannað
í hálfa öld
MARGRÉT ÁRNADÓTTIR Ermaslár eru
vinsælar hjá M-Design.
Núna
þarftu aðei
ns
að sofa í
5 nætur þar
til við opnu
m
á Akureyri
VILJA SKIPTA NÁTTÚRUNNI ÚT
Bandaríski vísindamaðurinn Jeffrey Smith
varar við erfðabreyttum matvælum. Hann
segir líftæknifyrirtæki einungis stjórnast af
peningum en ekki hugsjónum.
STJÓRNMÁL „Athugun okkar leiðir í
ljós að um 80-90 prósent þeirra
verkefna sem tilgreind eru í
stjórnarsáttmálanum eru komin
til framkvæmda eða á góðan
rekspöl.“ Þetta kemur fram í
sameiginlegri grein Andra
Óttarssonar og Skúla Helgasonar,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins og Samfylkingarinnar, í
Fréttablaðinu í dag.
Andri og Skúli stikla á stóru í
störfum ríkisstjórnarinnar
undanfarið ár og fara yfir það
sem fram undan er. Brýnasta
verkefnið sé að tryggja jafnvægi
í efnahagslífinu en nýlegir
gjaldeyrisskiptasamningar við
norræna seðlabanka séu til marks
um að sterk staða ríkissjóðs skapi
Íslandi traust á alþjóðavettvangi.
- bs / sjá síðu 12
Meta störf ríkisstjórnarinnar:
Góður árangur
á stuttum tíma
AFTUR Á HVÍTA
TJALDIÐ
Gwyneth Paltrow ræðir
Hollywood, eiginmann-
inn Chris Martin, börnin
tvö, austurlenska heim-
speki og Barack Obama
í viðtali við Fréttablaðið.
HELGIN 16
Matur
[ SÉRBLA
Ð FRÉTT
ABLAÐS
INS UM M
AT ]
Maí 2008
V i lur
Veislur fy
rir börn
Ævintýr
aleg afm
æli
Erla Guð
mundsdó
ttir
Sumarle
gir réttir
Nanna Rö
gnvaldar
dóttir skr
ifar
Ofnbaka
ður fi sk
ur
– ljúffen
gur í
veisluna
VEÐRIÐ Í DAG
FYLGIR Í DAG
18
BJARTVIÐRI Í dag verður hæg
suðlæg átt, 3-8 m/s. Hálfskýjað eða
léttskýjað um mest allt land. Hætt
við þokulofti með ströndum norðan
og austan til. Hiti 10-20 stig, hlýjast
til landsins norðan og austan til.
VEÐUR 4
12
20
18
1413
SKOÐANAKÖNNUN Flestir, eða 40,2
prósent, segjast vilja að Hanna
Birna Kristjánsdóttir, forseti
borgar stjórnar og önnur mann-
eskja á lista flokksins, verði borgar-
stjóri þegar embættið flyst til
Sjálfstæðis flokksins í mars á næsta
ári. „Mér þykir auðvitað vænt um
að fólk kunni að meta það sem ég
stend fyrir og mín störf,“ segir
Hanna Birna. Hún hefur mestan
stuðning meðal kjósenda allra
flokka, en 45,1 prósent sjálfstæðis-
manna vill að Hanna Birna taki við
embætti borgarstjóra.
20,2 prósent segjast ekki vilja
neinn úr núverandi borgar stjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokks til að
verða borgarstjóri.
Af borgarfulltrúum flokksins
vilja næstflestir að Gísli Marteinn
Baldursson, þriðji maður á lista
flokksins, taki við embætti borgar-
stjóra, eða 15,8 prósent. „Vinsældir
manna fara upp og niður og það er
gott hve margir úr okkar hópi njóta
trausts,“ segir Gísli Marteinn. Af
kjósendum Sjálfstæðisflokks nefna
19,6 prósent Gísla Martein.
Formaður borgarráðs og fyrr-
verandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ.
Vilhjámsson, hefur stuðning 10,8
prósenta þeirra sem afstöðu tóku.
Hann hefur stuðning 15,7 prósenta
sjálfstæðismanna í stól borgar-
stjóra. Ekki náðist í Vilhjálm í
gær.
Könnunin var framkvæmd í gær
þar sem hringt var í 600 Reykvík-
inga. Spurt var: Sjálfstæðisflokk-
urinn fær embætti borgarstjóra í
mars á næsta ári. Hver úr þeirra
hópi vilt þú að verði þá borgar-
stjóri? 60,2 prósent tóku afstöðu til
spurningarinnar. - ss / sjá síðu 4
Vilja Hönnu Birnu
sem borgarstjóra
Flestir styðja Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til að verða borgarstjóri þegar sjálf-
stæðismenn fá borgarstjórastólinn á næsta ári. 16 prósent vilja Gísla Martein.
HVAÐA SJÁLFSTÆÐIS-
MAÐUR VILT ÞÚ ÞAÐ VERÐI
NÆSTI BORGARSTJÓRI?
Hanna Birna Kristjánsdóttir 40,2%
Annar 20,2%
Gísli Marteinn Baldursson 15,8%
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 10,8%
Júlíus Vífill Ingvarsson 5,5%
Kjartan Magnússon 3,9%
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 3,0%
Jórunn Ósk Frímannsdóttir 0,6%
Skv. könnun Fréttablaðsins 24. maí
TIL SÓMA Í SERBÍU Regína Ósk og Friðrik Ómar stóðu sig með sóma á sviðinu í Belgrad í gærkvöldi. Ísland hlaut 64 stig í keppn-
inni og af Norðurlandaþjóðunum fengu aðeins Norðmenn fleiri stig en Íslendingar. NORDICPHOTOS/AFP
EUROVISION Eurobandið, með þau
Friðrik Ómar og Regínu Ósk í
broddi fylkingar, lenti í fjórtánda
sæti með lagið This Is My Life í
úrslitakeppni Eurovision sem hald-
in var í Belgrad, höfuðborg Serbíu,
í gærkvöldi. Sigurvegari varð hinn
rússneski Dima Bilan með lagið
Believe.
Íslenska lagið fékk tólf stig frá
Dönum og endurgalt íslenska þjóð-
in greiðann með tólf stigum á móti.
Örlygur Smári, höfundur íslenska
lagsins, var sáttur við úrslitin að
lokinni keppni. „Við erum þokka-
lega ánægð með þetta. Við erum að
skála og allir að óska okkur til
hamingju.“
Grétar Örvarsson, meðlimur
Eurobandsins, þakkaði íslensku
þjóðinni stuðninginn og sagði alla
hafa skemmt sér konunglega í
Serbíu. Jónatan Garðarsson sagð-
ist mjög ánægður með úrslitin og
að fjórtánda sæti væri alveg nýtt
fyrir Ísland í þessari keppni.
Dr. Gunni, sem er í Serbíu á
vegum Fréttablaðsins, sagði
mikinn hug hafa verið í íslensku
keppendunum fyrir keppni. „Þau
stóðu sig vel og hlutu góðan hljóm-
grunn í salnum. Keppnin varð
aldrei mjög spennandi þar sem
Rússinn var í raun búinn að vinna
þetta rétt eftir hálfleik og það var
nánast þögn í salnum þegar hann
hlaut stigin sín. Það var fínt að
Danir björguðu okkur frá sextánda
sætinu eins og allt stefndi í þar til
undir lokin,“ sagði Gunni, sem var
á leiðinni á hótelið sitt og þaðan í
partí. - kg
Rússar sigruðu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í gærkvöldi:
Ísland í fjórtánda sæti í Belgrad