Fréttablaðið - 25.05.2008, Qupperneq 8
8 25. maí 2008 SUNNUDAGUR
EURES, samevrópsk vinnumiðlun sem rekin
er á vegum Vinnumálastofnunar stendur fyrir
ráðstefnu þar sem fjallað verður um fyrirséðan
skort á sérfræðingum og samkeppni um
hæfasta fólkið í nokkrum löndum EES-svæði-
sins. Talið er að helsta áskorun á Evrópskum
vinnumarkaði í framtíðinni verði að laða að
hæfa sérfræðinga og stjórnendur en það er
meginforsenda áframhaldandi hagvaxtar og
samkeppnishæfni svæðisins.
Sören Kaj Andersen, prófessor við Kaupman-
nahafnarháskóla fl ytur erindi undir yfi rskriftinni,
„Framtíðarhorfur á Evrópskum vinnumarkaði;
aukin samkeppni og skortur á sérhæfðu
vinnuafl i“. Pawel Kaczmarczyk, prófessor við
háskólann í Varsjá fjallar um áhrif fólksfl utnin-
ga undanfarinna ára á efnahagslíf Póllands og
Eystrasaltsríkjanna.
Ráðstefnan markar upphaf samstarfs EURES
á Íslandi, Noregi, Írlandi og Danmörku um
aðgerðir til að laða til landana sérhæft starfs-
fólk. Þróunin í þessum löndum hefur um
margt verið svipuð undanfarin ár; mikil þensla
þar sem framboð á vinnuafl i hefur ekki haldið
í við eftirspurn. Þessari eftirspurn hefur verið
mætt með innfl utningi vinnuafl s frá nýju aðil-
darríkjum ESB í Austur Evrópu. Nú er þörfi n á
sérfróðu starfsfólki hins vegar að verða meira
aðkallandi. Forstöðumenn EURES í þessum
löndum munu fara yfi r stöðu mála í sínu landi
og ástand á vinnumarkaði.
Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á
www.eures.is
Skráning fer fram á eures@vmst.is
Framtíðarhorfur á Evrópskum vinnumarkaði
Baráttan um besta fólkið.
HEILBRIGÐISMÁL Reynsla af nýju
fyrirkomulagi sjúkraflutninga á
höfuðborgarsvæðinu hefur
gengið vonum framar samkvæmt
skýrslu sem kynnt var á föstu-
daginn.
Með fyrirkomulaginu, sem tók
gildi 17. janúar síðastliðinn, eru
sjúkrabílar ekki lengur mannaðir
læknum. Var það nokkuð gagn-
rýnt af þeim sem óttuðust að með
þessu væri verið að skerða þjón-
ustu við sjúklinga og jafnvel taka
óþarfa áhættu með líf fólks.
Þá sögðu nokkrir læknar á
slysa- og bráðamóttöku Landspít-
alans upp störfum vegna óánægju
með breytingarnar og samráðs-
leysi við undirbúning þeirra.
Í skýrslunni segir að deildin
hafi átt í nokkrum vandræðum
með mönnun á tímabilinu. „Við
höfum gengið í gegnum ákveðið
erfiðleikatímabil,“ segir Már
Kristjánsson, sviðsstjóri lækn-
inga á slysa- og bráðadeild Land-
spítalans. Komið hafi fyrir að
enginn læknir hafi getað farið á
vettvang og þá sé læknir á bráða-
móttöku í talstöðvarsambandi við
bráðatækna á vettvangi.
Á þeim tíu vikum sem liðnar
eru frá því breytingarnar tóku
gildi hafa fimm endurlífganir
farið fram þar sem læknir var
ekki boðaður og er skýringin
sögð vandræði deildarinnar með
mönnun lækna.
Í niðurstöðum skýrslunnar
segir að þrátt fyrir ýmsa smá-
vægilega hnökra hafi breytingin
ekki haft áhrif á gæði þjónust-
unnar. Þær hafi leitt til talsverðr-
ar fækkunar tveggja bíla útkalla
og læknir fari nú í um 5 prósent
fjölda þeirra útkalla sem var
fyrir breytingu. Þá hafi 27 af 28
útköllum læknis verið vegna
endur lífgunar. Eru tilfellin fimm,
þar sem fæð lækna á vakt á slysa-
og bráðadeild kom í veg fyrir að
læknir kæmist í útkall, þar undan-
skilin.
Már segir ákvörðun um breyt-
ingar á fyrirkomulagi sjúkra-
flutninganna hafa verið tekna
vegna grunsemda um að það væri
ekki alltaf þörf á lækni. Í ljós hafi
komið að í þremur til fjórum til-
fella á viku þurfi sannarlega á
lækni að halda í útköllum sjúkra-
bíla.
Jón Baldursson, yfirlæknir á
slysa- og bráðadeild, segir tak-
markað gagn af því að skoða tíu
vikur. Auðvitað hefði ýmislegt
komið í ljós, „en við höfum ekki
rekið okkur á neina alvarlega
hnökra“.
Björn Zoëga, starfandi for-
stjóri Landspítalans, segir að
orðið hefði ákveðinn sparnaður
vegna breytinganna en slíkt hefði
ekki verið forsendan. Hann segir
það eðli heilbrigðisstarfsmanna
að vera íhaldssamir en nauðsyn-
legt hefði verið að þora að taka
skrefið. Áfram verði fylgst með
áhrifum breytinganna.
olav@frettabladid.is
Fimm endur-
lífganir farið
fram án lækna
Tíu vikur eru síðan læknar hættu að fara í útköll
með sjúkrabílum. Reynslan er sögð góð en erfitt
hefur verið að manna slysa- og bráðadeild Landspít-
alans. Fimm endurlífganir hafa farið fram án lækna.
FARIÐ YFIR ÁRANGURINN Fram kom að líklega væri of snemmt að draga afdráttar-
lausar ályktanir af reynslu manna af breytingunum, til þess væri of skammur tími
liðinn, en ýmsar vísbendingar gæfu tilefni til bjartsýni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1 Hversu mörg kjörtímabil
hefur Ólafur Ragnar Grímsson
verið forseti Íslands?
2 Hvaða íslenski leikstjóri sýnir
stuttmynd sína Smáfuglar á
kvikmyndahátíðinni í Cannes?
3 Hvaða liði mætir íslenska
karlalandsliðið í knattspyrnu á
miðvikudag?
SVÖR Á BLS. 30
FUNDIR Hugarafl og Árni Tryggva-
son halda opinn fund um geðheil-
brigðismál í Norræna húsinu
klukkan hálffimm í dag undir
yfirskriftinni „Upp á grasið
aftur“.
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, verður fundar-
stjóri en fyrirlesarar verða Árni
Tryggvason leikari, Herdís
Benediktsdóttir frá Hugarafli,
Pétur Hauksson geðlæknir, Eyrún
Thorstensen hjúkrunarfræðingur,
Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi
og Elín Ebba Ásmundsdóttir
iðjuþjálfi. Tilgangur fundarins er
að varpa ljósi á leiðir í bata
geðsjúkra. - jse
Hugarafl í Norræna húsinu:
Fundur um geð-
heilbrigðismál
Íhaldsmenn vinna
Í aukakosningum um þingsæti fyrir
kjördæmið Crewe og Nantwich í
Norðvestur-Englandi vann frambjóð-
andi Íhaldsflokksins afgerandi sigur.
Þetta er enn einn álitshnekkirinn
fyrir Gordon Brown, forsætisráðherra
og leiðtoga Verkamannaflokksins,
en kjördæmið var lengi öruggt vígi
Verkamannaflokksins.
BRETLAND
Gefa vegna skjálfta í Kína
Hafnarfjarðarbær ætlar að senda
hálfa milljón króna í styrk til Kína
vegna jarðskjálftanna í Sichuan.
HAFNARFJÖRÐUR
KÍNA, AP Samkomulag milli Rúss-
lands og Kína um náið samstarf í
kjarnorkumálum var undirritað í
Peking í gær, á fyrsta degi opin-
berrar heimsóknar Dmítrís Med-
vedev Rússlandsforseta þangað.
Hann og gestgjafi hans, Hu Jintao
Kínaforseti, sendu einnig frá sér
sameiginlega ályktun þar sem
hnattræn eldflaugavarnaáætlun
Bandaríkjamanna er fordæmd.
Með hinni sameiginlegu yfirlýs-
ingu undirstrikuðu forsetarnir
gagnkvæman vilja sinn til að
Rússland og Kína taki saman
höndum til að skapa Bandaríkjun-
um mótvægi í alþjóðakerfinu.
Kínaforseti þakkaði enn fremur
Rússum fyrir að bjóða fram tafar-
lausa aðstoð í kjölfar jarðskjálft-
ans mikla í Setsúan-héraði í Kína í
síðustu viku.
Þetta er fyrsta ferð Medvedevs
út fyrir Rússland eftir að hann tók
við forsetaembættinu af Vladimír
Pútín fyrr í mánuðinum.
Samkomulagið um kjarnorku-
samvinnu ríkjanna styrkir Rússa í
sessi sem þá þjóð sem sér Kín-
verjum fyrir megninu af þeirri
tækni sem þeir þurfa á að halda til
að fjölga kjarnorkuverum til raf-
orkuframleiðslu eins hratt og þeir
stefna að. Samkomulagið kveður
bæði á um að Rússar byggi stöð til
auðgunar úrans í Kína og selji
þangað umtalsvert magn hálf-
auðgaðs úrans. - aa
Medvedev Rússlandsforseti til Kína í sína fyrstu embættisheimsókn erlendis:
Fordæma eldflaugavarnir
MÓTVÆGI Forsetarnir Medvedev og Hu
vilja taka höndum saman um að veita
Bandaríkjunum mótvægi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMHVERFISMÁL „Ljóst er að þrátt
fyrir ýmsar tilraunir hefur okkur
ekki tekist að koma böndum á
svifryk og því nauðsynlegt að
hyggja að róttækari breytingum,“
segir umhverfisnefnd Akureyrar.
Bæjarráðið vill endurskoða
aðferðir við hálkuvarnir í bænum.
Framkvæmdaráð bæjarins
hefur sagt mikilvægt að draga úr
sandburði sem hálkuvörn því
líklega hafi hann afgerandi áhrif
á myndun svifryks. Rétt sé að
halda áfram prófunum með
saltnotkun. - gar
Ráða ekki við svifrykið:
Draga verður
úr sandburði
VEISTU SVARIÐ?