Fréttablaðið - 25.05.2008, Side 13
SUNNUDAGUR 25. maí 2008 13
vegum hins opinbera. Stofnunin
getur leitað hvort sem er til ríkis-
stofnana eða einkaaðila um þau
innkaup en tryggt verður að allir
hafi jafnan aðgang að þjónustunni
sem veitt er óháð efnahag. Í sam-
ræmi við stefnu ríkisstjórnarinn-
ar hefur með góðum árangri verið
lögð áhersla á að nota útboð og
þjónustusamninga til þess að
stytta biðlista.
Stjórnarsáttmálinn kveður á
um að fylgt verði eftir áætlunum
um uppbyggingu fangelsa. Endur-
bótum á fangelsi á Akureyri er
lokið sem og á Kvíabryggju. Á
Litla-Hrauni hefur rekstur sér-
staks meðferðargangs fyrir fanga
verið tryggður.
Landið verði eitt búsetu-
og atvinnusvæði
Hafin er vinna við að tryggja að
sem flestir hafi greiðan aðgang að
menntun, atvinnu og þjónustu
óháð búsetu. Efnt hefur verið til
stórátaks í samgöngumálum og er
lagningu bundins slitlags á hring-
veginum nánast lokið. Á þessu ári
eru framlög til vegamála aukin
um 18 milljarða króna.
Ríkisstjórnin leggur mikla
áherslu á úrbætur í fjarskiptamál-
um. Stefnt er að því að GSM kerfi
nái til alls landsins fyrir lok þessa
árs og verið er að bæta net
háhraðatenginga um landið. Nýr
sæstrengur Farice milli Íslands
og Danmerkur verður tekinn í
notkun fyrir lok ársins og gert
hefur verið samkomulag um lagn-
ingu Danice-strengsins á næsta
ári. Strengirnir munu auka veru-
lega flutningshraða og öryggi í
gagnaflutningum milli landa.
Unnið er að því að skilgreina
þau störf á vegum ríkisins sem
hægt er að vinna án tillits til stað-
setningar til að stuðla að fjölgun
atvinnutækifæra á landsbyggð-
inni. Ríkisstjórnin hefur beitt sér
fyrir nýsköpun og atvinnuþróun á
landsbyggðinni í nánari samvinnu
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,
Byggðastofnunar, Ferðamálastofu
og atvinnuþróunarfélaga en áður
hefur tíðkast. Nýsköpunarmiðstöð
hefur á fyrstu níu starfsmánuðum
sínum opnað nýjar starfsstöðvar á
Ísafirði, Höfn í Hornafirði og í
Vestmanneyjum auk þess að taka
þátt í uppbyggingu frumkvöðla-
setra á Höfn og á Keflavíkurflug-
velli.
Umhverfismál í brennidepli
Ísland skipaði sér í forystusveit
þeirra ríkja sem vilja ná hnatt-
rænu og bindandi samkomulagi
vegna loftslagsbreytinga á Balí-
fundinum í lok síðasta árs. Ríkis-
stjórnin styður markmið um að
hlýnun lofthjúpsins verði ekki
meiri en 2°C á þessari öld og telur
nauðsynlegt að stórlosendur gróð-
urhúsalofttegunda axli mesta
ábyrgð á lausn vandans. Í
umhverfis ráðuneytinu er unnið að
áætlun um leiðir til samdráttar í
losun gróðurhúsalofttegunda hér
á landi.
Unnið er að tillögum til breyt-
inga á skatt- og gjaldlagningu
eldsneytis og bifreiða sem miða
að því að draga úr útblæstri frá
ökutækjum.
Eftir áralangar deilur um nýtan-
lega orkukosti á Íslandi er stefnt
að því að ljúka gerð rammaáætl-
unar um nýtingu og verndun nátt-
úrusvæða og leggja hana fyrir
Alþingi til formlegrar afgreiðslu
veturinn 2009-10. Öllum umsókn-
um um ný rannsóknarleyfi hefur
verið vísað frá þar til áætlunin
liggur fyrir. Engar framkvæmdir
verða heimilaðar á óröskuðum
svæðum án samþykkis Alþingis á
meðan unnið er að rammaáætlun-
inni, nema rannsóknar- og nýtingar-
leyfi liggi fyrir.
Vatnajökulsþjóðgarður verður
stofnaður formlega 7. júní næst-
komandi. Þjóðgarðurinn verður sá
stærsti í Evrópu og einstakur á
heimsvísu. Hér er án efa stærsta
náttúruverndarverkefni sem
Íslendingar hafa ráðist í.
Umbætur í innflytjendamálum
Ríkisstjórnin leggur áherslu á
náið samstarf við atvinnulífið og
samfélagið allt í baráttunni gegn
fordómum. Því hefur verið lögð
fram þingsályktunartillaga um
framkvæmdaáætlun í málefnum
innflytjenda með það að markmiði
að taka betur á móti fólki sem
flytur hingað. Í sama skyni voru
framlög til fjölmenningarseturs
tvöfölduð í fjárlögum 2008. Áætl-
anir gera ráð fyrir eflingu
íslenskukennslu fyrir útlendinga
á næstu árum.
Ný frumvörp fela í sér breyt-
ingar á lögum um atvinnuréttindi
útlendinga og útlendingalögunum.
Ætlunin er að útlendingar á vinnu-
markaði njóti sambærilegra rétt-
inda og íslenskt launafólk og ráðn-
ingar erlends verkafólks séu í
samræmi við kjarasamninga. Enn
fremur er skerpt á reglum um
ráðningar erlendra sérfræðinga
og flokkum tímabundinna atvinnu-
leyfa fjölgað. Þá er lögð áhersla á
að komið verði í veg fyrir félags-
leg undirboð á markaði.
Frumkvæði í alþjóðamálum
Mannréttindi, aukin þróunar aðstoð
og friðsamleg lausn deilumála eru
nýir hornsteinar íslenskrar utan-
ríkismálastefnu. Gefin hefur verið
út aðgerðaáætlun um að tryggja
stöðu kvenna á átakasvæðum,
aðgerðaáætlun um mannúðarmál
er í vinnslu og ný heildarlöggjöf
um þróunarsamvinnu er nú til
meðferðar á Alþingi. Ný varnar-
málalög hafa verið samþykkt og
samstarf aukið við nágrannaríki á
því sviði. Ríkisstjórnin styður ekki
stríðsátökin í Írak og leggur
áherslu á uppbyggingarstarf í
landinu og að veita flóttamönnum
þaðan liðsinni. Fé hefur verið varið
til uppbyggingar á flóttamanna-
svæðum í Jórdaníu og Sýrlandi.
Hefur sérstök áhersla verið lögð á
framlög til skólagöngu barna.
Ríkisstjórnin hefur markað þá
stefnu að allar meiri háttar ákvarð-
anir um utanríkismál séu teknar í
samráði við utanríkismálanefnd
Alþingis.
Opinská umræða um Evrópumál
Í samræmi við ákvæði stjórnar-
sáttmálans um opinskáa umræðu
um Evrópumál var í ársbyrjun
komið á fót föstum samráðsvett-
vangi allra þingflokka, svokallaðri
vaktstöð, sem ætlað er að fylgjast
með þróun mála í Evrópu og leggja
mat á breytingar út frá hagsmun-
um Íslendinga.
Endurskoðun stjórnarskrár
Ríkisstjórnin hyggst halda áfram
vinnu við endurskoðun stjórnar-
skrárinnar með áherslu á að leiða
til lykta ágreining um þjóðareign
á náttúruauðlindum.
Jafnvægi og umbætur
Hér hefur verið stiklað á stóru um
þá áfanga sem þegar hafa náðst
við framfylgd stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar. Samantektin
varpar vonandi ljósi á það mikla
starf sem unnið hefur verið, að
mestu utan kastljóss fjölmiðlanna,
á þessu fyrsta ári ríkisstjórnar-
innar.
Stjórnarflokkarnir hafa gert
með sér sáttmála um að stuðla að
mikilvægum umbótum í samfé-
lagi okkar auk þess að taka af yfir-
vegun, og festu á þeim óvæntu
málum sem á fjörur okkar kann að
reka á kjörtímabilinu. Þótt flokk-
arnir tveir hafi mismunandi
áherslur eru þeir samtaka um að
leiða þjóðina inn í nýtt tímabil
jafnvægis og spennandi tæki-
færa.
Andri Óttarsson er framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins og
Skúli Helgason er framkvæmda-
stjóri Samfylkingarinnar.