Fréttablaðið - 25.05.2008, Síða 32

Fréttablaðið - 25.05.2008, Síða 32
ATVINNA 25. maí 2008 SUNNUDAGUR168 Þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR Önnur verkefni þjóðgarðsvarðar eru: • Að aðstoða svæðisráð við gerð tillögu að verndaráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði • Að koma verndaráætlun þjóðgarðsins til framkvæmda innan þess fjárhagsramma sem viðkomandi rekstrarsvæði er ætlaður hverju sinni. • Að hafa eftirlit með því að farið sé eftir ákvæðum laga og reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð og að ákvæði verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn séu virt. • Fræðsla um náttúruvernd á sínu rekstrarsvæði og um Vatnajökulsþjóðgarð. Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu eru hafðar til viðmiðunar við val á umsækjendum: • Háskólamenntun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur. • Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd. • Reynsla af almennum rekstri og mannaforráðum. • Reynsla eða þekking á fræðslu til mismunandi hópa. • Góð íslensku- og enskukunnátta. Frekari tungumálakunnátta er kostur. Eftirfarandi kröfur um hæfni eru hafðar til viðmiðunar við val á umsækjendum: • Tekur ákvarðanir og fylgir þeim eftir. • Sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi. • Er skipulagður og með ríka þjónustulund. • Sýnir lipurð í mannlegum samskiptum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir um ofangreint starf skulu hafa borist Vatnajökulsþjóðgarði, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík, eigi síðar en 10. júní nk. Upplýsingar um starfið veita Rúnar Þórarinsson, formaður svæðisstjórnar Norðursvæðis, runarth@ kopasker.is, og Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, thordur@vatnajokulsthjodgardur.is, eða í síma 575 8400. Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf þjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum laust til umsóknar. Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun, sem bráðlega mun taka við rekstri landsvæða sem tilheyra munu Vatnajökulsþjóðgarði og ná yfir u.þ.b. 12.000 km2. Vatnajökulsþjóðgarður skiptist í fjögur rekstrarsvæði: Norðursvæði, Austursvæði, Suðursvæði og Vestursvæði. Starf þjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum tilheyrir Norðursvæði. Á öllum rekstrarsvæðum starfa svæðisráð sem eru þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði. Svæðisráðin gera tillögu um ráðningu þjóðgarðsvarðar á hverju svæði, vinna tillögu að rekstraráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði, sem og tillögu að verndaráætlun á sínu svæði. Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum annast daglegan rekstur og stjórn á sínu svæði í samráði við framkvæmdastjóra og ræður starfsfólk á því svæði. Spennandi starf í markaðsdeild VÍS F í t o n / S Í A Þar sem tryggingar snúast um fólk VÍS leitar að framúrskarandi einstaklingi til starfa í markaðsdeild fyrirtækisins. Í deildinni starfar hópur fólks sem leggur metnað sinn í árangursríkt markaðsstarf hjá öflugu fyrirtæki. Leitað er að starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum m.a. umsjón með auglýsingaefni, birtingum auglýsinga, textagerð, stjórnun viðburða, greiningu tölfræði- upplýsinga og samskiptum við auglýsingastofur. Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi Reynsla úr atvinnulífi skilyrði Reynsla af markaðsstörfum æskileg Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði Þekking og reynsla af tölfræði er kostur Skipulagshæfni og nákvæmni í starfi Umsóknarfrestur er til og með 30. maí nk. Umsóknum skal skilað á heimasíðu okkar vis.is. Nánari upplýsingar veitir María Hrund Marinósdóttir markaðsstjóri VÍS, mariam@vis.is eða í síma 560 5000. VÍS er nútímalegt þjónustufyrirtæki með 43 þjónustuskrifstofur víðsvegar um landið. Markmið VÍS er að vera alltaf í fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi og er ánægja starfsfólks og viðskiptavina lykilatriði í velgengni félagsins. Hjá VÍS starfar framúrskar- andi hópur einstaklinga sem saman myndar sterka liðsheild. Mikil áhersla er lögð á að skapa starfsfólki gott starfsumhverfi og aðstöðu til að veita viðskiptavinum góða þjónustu. VÍS vill fela starfsfólki störf við hæfi, þannig að hæfileikar þess og frumkvæði fái notið sín við áhugaverð og krefjandi verkefni. Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is Starfsmaður óskast Leitum að starfsmanni á lager, útkeyrslu, merkingar o.fl Vinnutími 8-17 virka daga um framtíðarstarf er að ræða Viðkomandi þarf að vera hraustur og samviskusamur. Gerum kröfur um stund- vísi, áreiðanleika, bílpróf og tölvukunnáttu. Umsóknarfrestur er til 1. júní Umsóknum skal skilað á netfangið: thjarkur@thjarkur.is Skólastjóri Staða skólastjóra Drangsnessskóla er laus til umsóknar Grunnskólinn á Drangsnesi er fámennur, vel búinn skóli með nemendur í 1 til 10 bekk Starfi ð hentar vel fjölskyldufólki sem hefur áhuga á náttúru og útivist. Gott ódýrt húsnæði í boði ásamt fl utningsstyrk. Allar upplýsingar veitir Óskar Torfason, formaður skðólanefndar í síma 8983239 eða drangur@snerpa.is Og Jenný Jensdóttir, oddviti Kaldrananeshrepps í síma 4513277 eða drangsnes@snerpa.is Píanókennari í uppsveitum Árnessýslu Gítarkennari á Selfossi Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa píanókennara í fullt starf í uppsveitum Árnessýslu (Flúðir, Reykholt, Þjórsárskóli) og gítarkennara í hlutastarf á Selfossi. Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 482-1717 eða 861-3884. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2008. Senda má fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti á tonar@tonar.is. Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með starfsemi á 11 kennslustöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 600 og starfa 30 kennarar við skólann.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.