Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 57

Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 57
TVÆR LEIÐIR AÐ GÓÐRI VEISLU Barnaafmæli matur 9 Skreytingarnar eru mikilvægar í barnaafmælum og Gyða reynir að leyfa krökkun- um að taka þátt í stússinu, þeim til mikillar gleði. NAMMIKAKA BOTN 2½ dl sesam fræ 2½ dl kókosmjöl örlítið salt Blandið hráefni saman í matvinnsluvél uns allt loðir saman. Þrýstið í bökunar- eða muffinsform og setjið í frysti. FYLLING 4 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2-3 klukkustundir 1½ dl agave-síróp 1½ dl kaldpressuð kókosolía 3 msk. sítrónusafi safi úr 1 appelsínu 2 tsk. vanilluduft eða 1 tsk. vanilludropar smá salt 400 g frosin jarðarber HEIMATILBÚIÐ SÚKKULAÐI 1 hluti kókosolía, brædd undir vatnsgufu 1 hluti kakóduft ½ hluti agavesíróp Öllu blandað saman. Bræðið kókosolíu undir heitu vatni og blandið saman hnetum, kókosolíu, sýrópi, safa, vanillu- dufti og salti í matvinnsluvél þar til fyllingin er orðin silkimjúk. Bætið þá jarðarberjunum við í litlum skömmtum. Setjið fyllinguna á botninn og frystið allt aftur í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt. Takið út 30 mínútum áður en borið er fram og hellið heimatil- búnu súkkulaði yfir fyllinguna. ÍS 3 dl kasjúhnetur, settar í bleyti í 2-3 klukkustundir 1 dl agave-síróp ½ msk. kaldpressuð kókosolía 1 kg frosnir ávextir 2 dósir lífræn jógúrt 2 flöskur „Feel good drinks“ Setjið allt hráefnið í blandara í tveimur til þremur hlutum. Setjið svo hráefnið í ísvél eða beint í frostpinnaform. Frystið. Hægt er að dýfa frostpinnanum í heimatilbúið súkkulaði rétt áður en ísinn er borinn fram. Ef fólk er með mjólkuróþol má sleppa jógúrtinu og nota sojajógúrt í staðinn. HEITT KAKÓ 1 dl kakóduft 1 dl agave-sýróp 5 dl vatn 1 msk. kaldpressuð kókosolía ¼-½ tsk salt 5 dl lífræn mjólk (hvaða tegund sem er eða vatn) Nokkrir vanilludropar eða vanilluduft. Setjið allt hráefnið saman í pott nema mjólkina. Hrærið í þar til fer að sjóða, bætið þá mjólkinni við og hitið að suðu. SYKURLAUST SÆLGÆTI Ljónakakan er að sögn Gyðu einstaklega auðveld og alltaf jafn vinsæl. Snákurinn getur verið snúinn. Til að kremið heppnist er gott að hita spaðann. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur leggur áherslu á hollustu þegar hún heldur sín barnaafmæli. „Hugsunin á bak við það tengist ekki megrunarfæði en mér finnst mikilvægt að maturinn sé aukaefna- og litarefnalaust og án alls sykurs og hveitis,“ útskýrir hún. Að sögn Elínar saknar enginn sykraðra kræsinga í afmælunum hjá henni. „Ég sker mikið niður af ávöxtum og grænmeti; melónur, banana, ananas, kíví, vínber og appelsínur og þetta rýkur alltaf út hjá mér.“ Elín býður einnig upp á kökur og ís þar sem hráefnið er bæði lífrænt og hollt. Þá er heitt kakó vinsælt í barnaafmælunum en Elín býr það einnig til með hollustuna í huga. „Ég fékk uppskriftir upprunalega hjá Himneskri hollustu en ég hef svo breytt þeim aðeins eftir mínu höfði,“ segir hún. - kka Elín Björk Jónasdóttir leggur mikla áherslu á hollt mataræði. Hægt er að búa til litlar kökur úr sömu nammikökuuppskrift. Nokkur kerti gera safaríka vatnsmel- ónu að veislumat. Sælgætislaus nammikaka, með ljúffengri fyllingu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hollt og gott í litla munna Sykursætar súkkulaðikökur, gos og pitsur eru ekki það eina sem dugir í barna- afmælin. Ávextir, grænmeti og sykur- og hveitilausar kökur vekja oft mikla lukku.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.